Morgunblaðið - 30.01.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
EINN umsækjenda um starf ferða-
málastjóra fékk þær upplýsingar úr
iðnaðarráðuneytinu að þar hefði ver-
ið ákveðið að starfinu ætti að gegna
frá Reykjavík en viðkomandi vildi
hafa aðsetur á starfsstöð Ferðamála-
stofu á Akureyri ef hann yrði ráðinn.
Ráðherra segir svarið ekki frá sér
komið og ekki hafa heyrt af því fyrr
en eftir á.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG og fjórði þingmaður Norð-
austurkjördæmis, beindi á Alþingi í
gær fyrirspurn um þetta mál til iðn-
aðarráðherra, sem frá áramótum fer
einnig með ferða- og byggðamál.
Ráðherrann, Össur Skarphéðinsson,
sagðist í svari sínu við spurningu
Steingríms geta verið ærlegur og
lýsti því yfir að hann hefði fyrst frétt
hvernig ráðuneytið svaraði þegar
hann fékk erindi um málið frá Ey-
þing, Sambandi sveitarfélaga í Eyja-
firði og Þingeyjarsýslum. Sér þætti
miður að svo hefði verið svarað en
þetta tiltekna mál hefði engin áhrif
haft á það hvern hann réð til starf-
ans. Össur sagðist hins vegar telja að
alveg hefði komið til greina að þessu
starfi væri hægt að sinna frá Akur-
eyri. Hann lýsti því yfir að yfirstjórn
stofnana gæti vel verið úti á landi,
ekki síst þeirra sem þar væru með
stórar starfsstöðvar.
Össur
Skarphéðinsson
Gæti setið
á Akureyri
Steingrímur J.
Sigfússon
REKSTUR Íslenskra verðbréfa hf.
gekk mjög vel á árinu 2007, skv. upp-
lýsingum frá fyrirtækinu en þetta
var það besta í 20 ára sögu félagsins.
Hagnaður fyrir reiknaðan tekju-
skatt nam 520 milljónum króna og
eftir reiknaðan tekjuskatt var hagn-
aðurinn 426,6 milljónir króna. Arð-
semi eigin fjár félagsins var 136,7% á
árinu.
Íslensk verðbréf hf. eru sérhæft
fjármálafyrirtæki á sviði eignastýr-
ingar. Félagið stýrir rúmlega 92
milljörðum króna fyrir viðskipta-
menn sína sem eru m.a. lífeyrissjóð-
ir, tryggingarfélög, fyrirtæki, sveit-
arfélög og einstaklingar.
„Vöxtur Íslenskra verðbréfa hf.
var mikill á síðasta ári og svo hefur
raunar verið á undanförnum árum.
Eignir í eignastýringu jukust um-
talsvert á árinu og að sama skapi
fjölgaði viðskiptavinum verulega,“
segir í frétt frá fyrirtækinu.
Hjá Íslenskum verðbréfum starfa
nú tuttugu starfsmenn sem hafa
mikla og langa reynslu af því að
starfa á verðbréfamarkaði.
„Íslensk verðbréf hafa lagt ríka
áherslu á faglega og jafnframt per-
sónulega þjónustu. Samkvæmt nið-
urstöðum viðhorfskönnunar á síð-
asta ári voru 95% fagfjárfesta ánægð
eða mjög ánægð með samskipti við
starfsfólk Íslenskra verðbréfa og
einnig kom fram að yfir 95% fagfjár-
festa telja Íslensk verðbréf yfir með-
allagi eða framúrskarandi í stýringu
skuldabréfa,“ segir ennfremur í til-
kynningu frá ÍV.
Sævar Helgason, framkvæmda-
stjóri Íslenskra verðbréfa, er mjög
ánægður með afkomu félagsins á
árinu 2007. „Rekstrarárangur fé-
lagsins á árinu 2007 er sá besti frá
stofnun, þess en síðan eru tuttugu
ár. Við getum ekki annað en verið af-
ar sátt við þessa niðurstöðu, ekki síst
þegar horft er til erfiðra markaðs-
aðstæðna undir lok ársins.“
Sævar segir að styrkur félagsins
felist í þeirri sérstöðu sem það hefur
skapað sér og þeirri stefnu að vera
sérhæft eignastýringafyrirtæki. „Þá
hefur félagið yfir afbragðs góðu
starfsfólki að ráða sem kann sitt fag.
Allt hefur þetta skilað þeim frábæra
árangri sem við náðum í rekstri fyr-
irtækisins á síðasta ári,“ segir Sævar
Helgason.
Besta rekstrarár
Íslenskra verðbréfa
Félagið stýrir rúmlega 92 milljörðum fyrir viðskiptavini sína
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Besta árið Sævar Helgason framkvæmdastjóri: Getum ekki annað en verið
sáttir, ekki síst þegar horft er til erfiðra markaðsaðstæðna undir lok ársins.
Í HNOTSKURN
»Fyrirtækið var stofnað 1987og er eina fjármálafyrirtækið
sem er með höfuðstöðvar utan
höfuðborgarsvæðisins. Stærstu
hluthfar eru Íslensk eignastýr-
ing, Sparisjóður Norðlendinga
og Lífeyrissjóður Norðurlands.
BJÖRN Snæ-
björnsson, for-
maður verka-
lýðsfélagsins
Einingar-Iðju í
Eyjafirði, segist
langþreyttur á
að bíða eftir að-
gerðum sem
kynntar voru til
sögunnar sem
mótvægi við nið-
urskurð þorskkvóta. Björn segir
gott að framkvæmdum við leng-
ingu flugbrautarinnar á Akureyri
verði flýtt en sú framkvæmd gagn-
ist ekki þeim sem nú eru að missa
vinnuna, sumir með áratuga
reynslu í fiskvinnslu. Aðgerðirnar
beinast fyrst og fremst að litlum
byggðarlögum, fjærst höfuðborg-
arsvæðinu. „Ég spyr, hvað með
Eyjafjarðarsvæðið? Að mínu mati
hefur svæðið orðið mikið til út-
undan í þessu sambandi og það litla
sem hefur verið gert virkar ekki
sem skyldi,“ segir Björn á heima-
síðu verkalýðsfélagsins.
Hvað með
Eyjafjörð?
Björn
Snæbjörnsson
Í FYRIRLESTRI á Félagsvísinda-
torgi í Háskólanum á Akureyri í
dag fjallar dr.Vanja Kljajevic um
nýjar rannsóknir á sviði taugavís-
inda sem varpa betra ljósi á hlut-
verk Broca-svæðis í málframsetn-
ingu. Broca-svæðið hefur verið
tengt við almenna málframsetn-
ingu annars vegar og við mun sér-
hæfðara hlutverk tengt setninga-
byggingu hins vegar. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 12 og verður í stofu L
201 á Sólborg.
Um hlutverk
Broca-svæðis
AKUREYRI
Í BÍGERÐ er að byggja tvær hæðir ofan á Tollhúsið
við Tryggvagötu og er stefnt að útboði framkvæmdar-
innar í kringum áramót 2008-2009.
Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu
ríkisins, segir stækkunina munu verða viðbót við hús-
næði tollstjóraembættisins. „Tollstjórinn þarf bara
stærra húsnæði,“ segir Óskar. „Hann er í húsinu og
annaðhvort þurfti hann að flytja úr miðbænum í stórt
hús eða þá að stækka þetta. Og niðurstaðan varð að
halda tollstjóranum í miðbænum,“ segir Óskar.
Tvær hæðir verða byggðar ofan á húsið og við það
mun húsnæði tollstjóra stækka um u.þ.b. 2.000 fer-
metra. Hönnunarvinna er að fara í gang og að sögn
Óskars verður útboð öðru hvorum megin við næstu ára-
mót. „Við ættum að ná að bjóða þessa framkvæmd út
fyrir áramót,“ segir hann, „og hún er af stærðargráð-
unni um 800 milljónir, samkvæmt fyrstu áætlunum.“
Að sögn Óskars stóð til að gera Kolaportið, sem er
þarna í sama húsi, að bílastæðahúsi á tveimur hæðum.
Það átti að gera með millilofti og rampa upp svo hægt
væri að keyra upp á bílastæðin á efri hæðum.
Kolaportið verður áfram
Fram kom hins vegar í Morgunblaðinu í síðustu viku
að framtíð Kolaportsins í núverandi mynd hefði verið
tryggð með viljayfirlýsingu Dags B. Eggertssonar og
fjármálaráðuneytis. „Þá ætlar borgin að útvega ríkinu
bílastæði annars staðar, gegn því að ríkið leigi áfram
þetta húsnæði undir Kolaportið. Þá fengi ríkið bílastæði
í þessum stóra bílastæðakjarna sem er í tengslum við
tónlistar- og ráðstefnuhúsið,“ segir Óskar.
Að loknu útboði verður strax hægt að hefjast handa
þar sem engin jarðvinna þarf að fara fram. Miðað við að
allt gangi eins og best verður á kosið telur Óskar að
hægt verði að flytja inn í viðbótarhúsnæðið á árinu
2010.
Tvær hæðir ofan á Tollhúsið
Hugmynd Tollhúsið eftir stækkun. Þeim megin sem sjá má skuggavarp (Geirsgötumegin) hefur verið bætt við
tveimur hæðum ofan á húsið. Jafnframt má sjá tengingu yfir í núverandi hús Tryggvagötumegin.
ÍRAFOSS, skip Eimskips, var dreg-
inn að bryggju á Miðbakka í
Reykjavíkurhöfn sl. laugardag. Að
sögn Níelsar Eyjólfssonar, skipaeft-
irlitsmanns hjá Eimskip, bíður Íra-
foss þess að fá nýtt stýri og verður
tekinn í slipp að nýju um miðja
næstu viku.
Írafoss missti stýri á Norðfjarð-
arflóa í byrjun janúar. Skipið fór
beint í slipp eftir að það var dregið
að austan, en þar sem tíma tekur að
smíða nýtt stýri var ákveðið að
setja það aftur á flot svo Slippurinn
gæti notað sleðann á meðan.
Miðbakkinn hefur ekki verið not-
aður til vöruflutninga lengi en
nokkuð algengt er að skip liggi þar
á meðan þess er beðið að þau kom-
ist í slipp auk þess sem þar er unnið
að viðgerðum á skipum.
Áratugir liðnir
Áratugir eru liðnir síðan skip frá
Eimskipafélaginu lagðist síðast að
bryggju á Miðbakka, en árið 1971
var Eimskipafélagi Íslands úthlutað
landi á og upp af Sundabakka. Á
áttunda áratugnum byggði Eim-
skipafélagið svo upp aðstöðu og
hefur síðan verið með starfsemi við
Sundahöfn.
Árvakur/Árni Sæberg
Bíður stýris
við Miðbakka
Miðbakki notaður til viðgerða