Morgunblaðið - 30.01.2008, Síða 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 19
tyn-skógi. Einn þeirra,
sem voru teknir af lífi,
var Jakub Wajda, faðir
leikstjórans.
x x x
Ein af spurning-unum, sem tekist
er á við í myndinni er
hvort maður eigi að
gefast upp og lifa við þá
skömm að starfa með
óvininum eða standa í
hárinu á valdinu og
eiga yfir höfði sér fang-
elsi eða dauða. Mynd-
inni lýkur á því að
fjöldamorðin í Katyn-
skógi eru dregin upp með mjög slá-
andi hætti. Sagt er að eftir fyrstu
sýningu hafi áhorfendur setið sem
lamaðir nokkra stund og ekki komið
upp hljóði. Myndin er þó ekki bara
sögð þrúgandi. Á einum stað í mynd-
inni mætast flóttamenn á brú í miðri
heimsstyrjöldinni. Annar hópurinn
er á flótta undan nasistum og varar
hina við að ana í flasið á þeim. Hinn
er á flótta undan kommúnistum og
varar hina við að lenda í klóm þeirra.
Alræðisöflin sækja úr tveimur átt-
um. Við slíkar kringumstæður fær
harmleikurinn á sig blæ fáránleika.
x x x
Wajda er kvikmyndaáhuga-mönnum á Íslandi að góðu
kunnur. Í lok áttunda áratugarins
voru sýndar hér á kvikmyndahátíð
myndirnar Járnmaðurinn, Marm-
aramaðurinn og Án deyfingar og
vöktu mikla athygli. Á sjötta ára-
tugnum gerði hann þríleik þar sem
hann gekk eins langt og hann gat í
að fjalla um samtíma sinn fyrir
pólska áhorfendur. Wajda er orðinn
áttræður og segir að nýja myndin sé
að vissu leyti uppgjör við verk hans
og annarra pólskra leikstjóra á þeim
tíma. Forvitnilegt væri að fá að sjá
þetta verk hins aldna meistara á
hvíta tjaldinu hér á landi. Ekki má
heldur gleyma því að umtal um
þessa mynd hefur örugglega þegar
borist til eyrna þeim mikla fjölda
Pólverja, sem búsettir eru hér á
landi.
Katyn nefnist nýj-asta kvikmyndin
eftir pólska leikstjór-
ann Andrzej Wajda.
Nafnið eitt dugar til
þess að fyrir öllum Pól-
verjum rifjist upp sag-
an af hernámi Sovét-
manna í heims-
styrjöldinni síðari og
tilvist í skugga Sov-
étríkjanna í kalda
stríðinu. Vorið 1940
tóku Sovétmenn af lífi
samkvæmt fyrirskipun
Stalíns um 22 þúsund
manns sem voru í
fremstu röð í pólsku
þjóðlífi og grófu í fjöldagröfum í Ka-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Baldur Sigurðsson, dósent viðKennaraháskólann, yrkir um
sviptingar í borgarstjórn:
Borgarstjórinn barmar sér,
í baki stendur kutinn.
Þreytulegur þykir mér
þriðji meirihlutinn.
Þá Baldur Hafstað, prófessor við
sama skóla:
Ég sá Ólaf eins og draug,
en annar lúinn raftur,
Vilhjálmur, sem víða laug,
er víslega genginn aftur.
Þegar sýnt var frá mótmælum í
Ráðhúsinu datt Helga Zimsen í hug:
Er organdi lýð ég lít á skjám
þá laumast að þankanum mínum
hve ráðamenn gjarnan draga dám
af dyggustu kjósendum sínum.
Magnús Ólafsson frá
Sveinsstöðum yrkir:
Á borgarstjórnar bratta hólinn
bröltu þessi litlu skinn
Keyptu Óla í kapteins stólinn
og kofa fyrir afganginn.
Rúnar Kristjánsson frétti af
átökunum alla leið norður til
Skagastrandar. Og varð að orði:
Létt á sviði leika sér
lýðskrumaraflokkar.
Borgarstjórastóllinn er
stöðugt það sem lokkar.
Sjá má nú að sitt á hvað
svífa menn á skýi.
Merkti þó sín mál á blað
meirihlutinn nýi.
Ólafur með ýmsum hætti
aukið hefur þungan klið.
Fremur illa að sér gætti
í að tryggja baklandið.
Kaus hann ei með Degi að dúsa,
drýgja vildi sína hagi.
Fór til sinna föðurhúsa,
frjálslyndur í meira lagi!
Már Högnason bloggar um frétt
af því að margir hafi ekið framhjá
slösuðum manni:
Frétt er eflaust færð í stíl
en fáir rengja Morgunblað
fólk vill ekki blóð í bíl
basl er víst að þrífa það.
VÍSNAHORNIÐ
Enn af
borgarstjórn
pebl@mbl.is
DÝRAÞJÁLFARINN Guo Shutong
lætur hér rottur sem hann hefur
þjálfað sýna listir sínar á akróbata-
sýningu í borginni Wuqiao í Hubei
héraðinu í Kína.
Guo hefur þjálfað rottur frá
árinu 1993 og lætur þær m.a.
stunda línudans líkt og þann sem
rotturnar á myndinni sýna.
Kínverska nýja árið gengur í
garð þann 7. febrúar næstkomandi
og verður það ár rottunnar sem þá
tekur við af ári svínsins.
Fimir fætur
Reuters