Morgunblaðið - 30.01.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 31
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur
Þorvaldar Thoroddsen
Ferðabók 1-4, Lýsing Íslands 1-4,
Landfræðisaga 1-4, Árferði á
Íslandi, allt frumprent, samstætt
band, selst saman.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Gisting
Vetrargisting í Reykjavík 2008
Til leigu nýjar 3ja herb. íbúðir, 2 dagar
eða fleiri. Öll þægindi, rúm fyrir 4-5.
Frítt net. Fallegt útsýni. Rólegt og
gott heimili í Borginni. "eyjasolibu-
dir.is" S. 698 9874 og 898 6033.
Heilsa
Mikið úrval fæðubótarefna
Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer
Ármúla 32. Sími 544 8000
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18.
Húsnæði í boði
Til sölu Veghús 31 íbúð 903, 92 m²
Góð 3 herb. íbúð á 9. hæð í 10 hæða
lyftublokk. Gott ÍLS-lán áhvílandi.
Laus núna. Lækkað verð niður í 21,9
m.kr. Opið hús fimmtud kl. 16-16,30.
Uppl. í 896 3867.
Húsnæði óskast
Íbúð óskast!
Einstæð móðir óskar eftir 3ja herb.
íbúð til leigu á höfuðborgarsvæðinu á
allt að 90 þús á mán. sími: 892 9418.
Reglusöm og skilvís, með meðmæli.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Vertu þín eigin ferðaskrifstofa
Spennandi námskeið: Vertu þín eigin
ferðaskrifstofa, 13. febrúar n.k.
Lærðu að nota netið til að skipu-
leggja ferðalagið og spara. Uppl. á
www.ferdalangur.net.
PMC Silfursmíði.
Grunnnámskeið helgina 2 og 3
febrúar.Uppl. www.listnam.is
skráning sími 6950495
Föndur
Prjón - prjón
Vantar flínkar prjónakonur til að
prjóna lopapeysur. Bæði hefðbundnar
og eftir nýjum uppskriftum.
Áhugasamir hafi samband við Ásdísi
í síma 693 4072 eða í versluninni
Diza, Laugavegi 44.
Til sölu
Stórir skór.is hætta
30% afsláttur af öllum dömuskóm í
stærðum 42-44 og herraskóm í
stærðum 47-50.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl.16-
18,30, laugardaga 11-14.
Ásta skósali,
Súðarvogi 7,
sími 553 60 60.
Verslun
ÚTSALA, ÚTSALA: Allt að 60%
afsláttur á völdum vörum!!
Árshátíðar-
kjólar og
undirföt
www.orkidea.is
Byggingavörur
HALOGEN LJÓSKASTARAR,
mikið úrval.
KASTARAR Á GRIND MEÐ
SNÚRU OG PERU,
150W: 1,095 kr.,
500W: 1,370 kr.,
1000W: 2,299 kr.
VERKFÆRALAGERINN ehf.,
Skeifunni 8.
Sími 588 6090. vl@simnet.is
Ýmislegt
Vantar þig sal fyrir veislu?
Alhliða veisluþjónusta, stórar sem
smáar veislur.
Upplýsingar í s. 567 8197.
Netfang: eldhus@heittogkalt.is
Kirkjustétt 2-6, Reykjavík.
Úrval af herrakuldaskóm úr leðri
með gæruskinnsfóðri.
Verð frá 6.885.- til 12.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18,
og laugardaga 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
Audi Allroad 2003.
Ek. 95 þús. mílur. 2,7 vél með 2 túrb-
ínum, 250 hö. Beinskiptur. Hækkan-
leg loftpúðafjöðrun, leður, topplúga,
rafmagn í öllu, Bose-hljóðkerfi.
Lúxusbíll með öllu hugsanlegu og sér
ekki á honum. Verð: 2,6 millj.
Upplýsingar í síma 899 2005.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Húsviðhald
Rennur og niðurföll
Tek að mér uppsetningar/lagfæringar
á rennum og niðurföllum og alla al-
menna smíðavinnu. Uppl. í síma
694 8448, Ólafur.
Lyftarar
Til sölu BobCat T3571
skotbómulyftari, árg. 2005.
Lyftigeta 3.5 tonn, notk. 1600 klst.
Glussakrókur að aftan. Skófla og
gafflar. Tækið er í toppstandi, selst
yfirfarinn og smurður, verð 3,8 m.
án/vsk. Mögulegt að yfirtaka kaup-
leigusamning.
Allar upplýsingar í s. 892 0566.
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Mistök í
myndbirtingu
RÖNG mynd var
birt með viðtali á
bls. 22 í Morgun-
blaðinu 29. jan-
úar. Mynd af
réttum manni,
Guðmundi
Ingvasyni, birt-
ist hér með. Beð-
ist er velvirð-
ingar á mistök-
unum.
Myndabrengl
Myndabrengl
urðu þegar birt
var grein eftir
Hallgrím Helga
Helgason undir
fyrirsögninni
Ógæfuleg fyrir-
mynd í Morg-
unblaðinu í gær.
Hér birtist rétt
mynd af Hall-
grími Helga
Helgasyni. Hlutaðeigandi eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Lausafjárstaða
Í FRÉTT á bls. 14 í blaðinu í gær
af umfjöllun erlendra fjölmiðla um
Kaupþing og hollenska bankann
NICB var vitnað í The Daily Tele-
graph um að Fjármálaeftirlitið
myndi geti skipað Kaupþingi að
afla meira fjár til að „styrkja eig-
infjárstöðuna“. Þarna átti að
standa „styrkja lausafjárstöðuna“.
LEIÐRÉTT
Guðmundur
Ingvason
Hallgrímur Helgi
Helgason
Kæri frændi.
Mig langar að
þakka þér allar
ánægjustundir og allt
það sem þú hefur gert
fyrir mig og mína.
Sendi Hrafnhildi, Ínu,
Björgu og Ragnheiði og fjölskyldum
og systrum hans og fjölskyldum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Með þessum orðum kveð ég góðan
dreng sem horfinn er nú frá okkur.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guðný Ragnarsdóttir, börn
og fjölskyldur þeirra.
Kveðja frá Krabbameinsfélagi
Hafnarfjarðar
Sunnudaginn 20. janúar, þegar
Skúli Þórsson
✝ Skúli Þórssonfæddist í
Reykjavík 31. maí
1943. Hann lést 20.
janúar síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Víðistaða-
kirkju 28. janúar.
Hafnarfjörður skart-
aði sínu fegursta með
snjó og sól, lést góður
vinur og félagi Skúli
Þórsson. Hann var bú-
inn að eiga í stríði við
sjúkdóm sem hann
þurfti að lokum að lúta
í lægra haldi fyrir en
var alltaf hress og bar
sig vel.
Ég kynntist Skúla
fyrir allmörgum árum
þegar hann settist í
stjórn Krabbameins-
félags Hafnarfjarðar
og það voru mín forréttindi að kynn-
ast slíkum manni. Skúli var einstak-
lega traustur maður og greiðvikinn
og gott að leita til hans.
Sem stjórnarmaður hjá Krabba-
meinsfélagi Hafnarfjarðar gaf hann
mikið af sér. Hann var alltaf til stað-
ar og tilbúinn að leggja sitt af mörk-
um. Ef eitthvað var um að vera á
vegum Krabbameinsfélagsins var
hægt að treysta á að Skúli mætti og
ávallt með Hrafnhildi – nú síðast í
desember á aðventukvöld Krabba-
meinsfélagsins. Hann lét veikindin
ekki aftra sér. Hrafnhildur alltaf svo
falleg og hlýleg við hlið hans. Skúli
hafði ákveðnar skoðanir en var alltaf
sanngjarn.
Í gegnum árin tókst með okkur
mikil vinátta og mér er sérstaklega
dýrmæt minningin um heimsókn til
þeirra Hrafnhildar og Skúla rétt fyr-
ir jólin. Við sátum og spjölluðum en
tíminn leið alltof hratt. Skúla verður
sárt saknað.
Elsku Hrafnhildur, við vottum þér
og dætrum ykkar innilegustu samúð
og megi minningin um góðan dreng
alltaf lifa með okkur.
Þóra Hrönn Njálsdóttir
formaður.
Mig langar að minn-
ast hennar ömmu
minnar í nokkrum orð-
um. Sallý amma var
fædd á Ísafirði árið
1914. Hún á var fjórða elst í 19 systk-
ina hópi en 13 þeirra komust til full-
orðinsára. Amma ólst upp hjá foreldr-
um sínum til fimm ára aldurs en þá
var hún tekin í fóstur til móðurömmu
sinnar. Amma bjó á Ísafirði til 15 ára
aldurs en þá flutti hún til Reykjavíkur
og vann sem vinnukona hjá lækni.
Amma var 22 ára gömul þegar hún
giftist afa og ári seinna eignuðust þau
sitt fyrsta barn. Börnin urðu þrjú. Afi
var rakarameistari og um tíma bjó
fjölskyldan á Akranesi en fluttist síð-
an til Reykjavíkur árið 1956. Þau
bjuggu lengst af á Njálsgötu 58 og
rak afi þar rakarastofu. Eftir að
amma hætti að vinna var hún heima
að sinna því sem þurfti.
Í minningunni voru heimsóknir á
Njálsgötuna tíðar. Ef farið var í bæ-
inn var alltaf kíkt inn á Njálsgötunni.
Þetta vandi ég mig á þegar ég varð
eldri og fór að fara sjálf á bæjarrölt.
Þetta varð að hefð. Heimili þeirra var
hlýlegt og fallegt. Þar var pínulítið
eldhús en alltaf pláss fyrir alla í há-
degismat. Amma sá um að allir fengju
nóg að borða og eftir matinn lagði afi
Salvör Kristrún
Veturliðadóttir
✝ Salvör KristrúnVeturliðadóttir
fæddist á Ísafirði
24. september 1914.
Hún andaðist á
Droplaugarstöðum
15. janúar síðastlið-
inn og var jarð-
sungin frá Háteigs-
kirkju 25. janúar.
sig í bókastofunni.
Meðan ég var barn
fannst mér spennandi
að leika mér á efri hæð-
inni og í stiganum. Þau
áttu einnig lítinn garð
og hægt var að búa til
ævintýraheim í kring-
um litla burstabæinn
sem var í garðinum.
Þegar ég varð eldri fór
ég oftar en ekki til
ömmu til að spjalla og
hjálpa til við eitthvað.
Pússa silfrið fyrir jólin,
þurrka af og jafnvel
skreppa út í búð.
Árið 1996 seldu afi og amma litla
gula húsið við Njálsgötuna. Húsið var
á tveimur hæðum og þau áttu orðið
erfitt með að fara upp stigann. Þau
keyptu sér íbúð neðar á Njálsgötunni.
Við amma töluðum oft um flutn-
ingana. Að kaupa sér íbúð og flytja á
níræðisaldri! Afi hélt áfram að klippa
eftir að þau voru flutt. Hann klippti í
aukaherberginu og amma hitaði kaffi
og smurði fyrir gesti og gangandi.
Nokkrum mánuðum eftir flutning-
inn lést afi. Mér finnst eins og amma
hafi misst taktinn eftir það. Hún sakn-
aði hans mikið. Fyrstu dagana eftir
fráfall afa bjó ég nánast hjá ömmu. Ég
gisti hjá henni um tíma og reyndi að
styðja við hana. Amma hélt heimili
áfram í nokkur ár og ég á margar góð-
ar minningar frá þeim tíma með
ömmu. Amma flutti árið 2003 á Drop-
laugarstaði og henni leið vel þar. Þar
hafði hún fallegu hlutina sína, heklaði
dúllur og starfsfólkið hugsaði vel um
hana. Amma var sátt við að fara.
Hvíl í friði, elsku amma mín.
Helga.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
FRÉTTIR