Morgunblaðið - 30.01.2008, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30,
vinnustofa frá kl. 9.30, postulíns-
málning kl. 9 og 13.
Árskógar 4 | Bað, handavinna,
smíði/útskurður og heilsugæsla.
Upplýsingar í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, glerlist, fótaaðgerð, hádeg-
isverður, spiladagur, kaffi. Þriðjud. 5.
febrúar er Revía í Iðnó kl. 14. Rútu-
ferð frá Bólstaðarhlíð kl. 13.10. Miða-
verð kr. 2.500 og rútugjald kr. 500.
Skráning í s. 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16 m/ leiðb. kl. 13-16.
Leikfimi kl. 10.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin kl.
10-11.30, s. 554-1226. Skrifstofan í
Gjábakka er opin kl. 15-16, s. 554-
3438. Félagsvist í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Ganga frá Ásgarði kl. 10. Síðdeg-
isdans kl. 14.30, kaffi, Söngfélag FEB
æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Gler-
listahópar hittast kl. 9.30 og 13,
handavinnustofan opin, félagsvist kl.
13, söngur kl. 15.15, Guðrún Lilja
mætir með gítarinn, viðtalstími
FEBK kl. 15-16 og bobb kl. 16.30, dans
kl. 20-22 undir stjórn Sigvalda.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Myndlist kl. 9.05, ganga kl. 10, há-
degismatur, postulínsmálning og
kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45 og 10.30, brids og búta-
saumaklúbbur kl. 13. Skráning í ný
námskeið og hópa stendur yfir í
Jónshúsi, opið til kl. 16.30
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50,
dansæfing kl. 10. Frá hádegi spilasal-
ur opinn. Alla föstud. kl. 10.30 er leik-
fimi (frítt) í ÍR heimilinu v/Skógarsel,
á eftir er kaffi og spjall. S. 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við
böðun kl. 9, bókband kl. 13.15, létt
leikfimi kl. 14, framhaldssagan, kaffi.
Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin
kl. 9, handavinna kl. 9-16.30, út-
skurður kl. 9, hádegismatur, brids kl.
13, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, línu-
dans kl. 11, saumar kl. 13, pílukast kl.
13.30, handmennt kl. 13, gaflarakór-
inn kl. 16.15.
Hæðargarður 31 | Tölvuleiðbein-
ingar í dag og á fimmtud. kl. 13.15.
Þorrablót 1. feb. Veislustjóri Guðni
Ágústsson, lögreglukórinn syngur
o.fl. Miðar seldir í eldhúsinu. Uppl.
568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sport-
húsinu, Dalsmára kl. 9.30, ringó í
Smáranum kl. 12, línudans í Húna-
búð, Skeifunni 11, Rv. kl. 17. Upplýs-
ingar í símum 564-1490, 554-2780
og 554-5330.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
fimmtudag, er pútt á Korpúlfs-
stöðum kl. 10, Listasmiðjan á Korp-
úlfsstöðum opin kl. 13-16.
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands
| Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild
Rauða krossins prjóna föt fyrir börn í
neyð. Prjónað í sjálfboðamiðstöðinni
Hamraborg 11 kl. 16-18, prjónar, garn
og kaffi á staðnum.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16, handavinnustofa opin kl. 9-16,
m/leiðb. kl. 9-12, félagsvist kl. 14.
Hárgreiðslustofa s. 588-1288. Fóta-
aðgerðarstofa s. 568-3838.
Sjálfsbjörg | Félagvist kl. 19 í félags-
heimili Sjálfsbjargar á höfuðborgar-
svæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaað-
gerðir og aðstoð v/böðun. Handa-
vinna, sund, hádegisverður, versl-
unarferð í Bónus, tréskurður og kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, gler kl. 9, laus pláss, handa-
vinnustofan opin, morgunsöngur og
messa kl. 10, verslunarferð kl. 12.30,
upplestur kl. 12.30, bókband kl. 13,
dansað kl. 14 við undirleik harm-
ónikkuhljómsveitarinnar Vitabandið.
Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9,
opinn salur kl. 13, ganga kl. 14, boccia
kl. 15.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðra
safnaðarheimili kl. 11.
Bessastaðasókn | Bæna- og kyrrð-
arstund verður í leikskólanum Holta-
koti kl. 20.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Máls-
verður í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Bingó eldri borgara kl. 13.30.
Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16. TTT
10-12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Boðið upp á þorra-
mat kl 13. Árni Norðfjörð mætir með
harmonikkuna, skráning hjá kirkju-
verði í s. 553-8500. Uppl. um bíla-
þjónustu hjá kirkjuverði.
Dómkirkjan | Bænastundir kl. 12.10,
hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Bænarefnum má koma á framfæri í
síma 520-9700 eða með tölvupósti
til domkirkjan@domkirkjan.is.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl.
12, fyrirbænir og altarisganga. Léttur
hádegisverður að lokinni stundinni.
TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Rima-
skóla. TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í
Korpuskóla.
Grensáskirkja | Samverustund aldr-
aðra, matur og spjall kl. 12, helgistund
kl. 14.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8.
Hugvekja, altarisganga, morgun-
verður í safnaðarsal eftir messuna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl. 12, skrifstofan lokar á
meðan. Unglingafræðsla kl. 17.30 og
fjölskyldusamveran kl. 18, súpa og
brauð gegn vægu gjaldi. Biblíu-
kennsla kl. 19 og Royal Rangers
skátastarf fyrir 5 ára og eldri.
Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð
með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10.
Hádegisverður, starf eldri borgara kl.
13-16, söngur, spilað, föndur, spjall,
kaffi o.fl.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10, gönguhópurinn Sólarmegin kl.
10.30. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur)
kl. 14.15, umsjón hafa prestar og
kirkjuvörður safnaðarins. Ferming-
artímar kl. 19.30, unglingakvöld (8.
bekkur) kl. 20.30.
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10,
messa kl. 12.15, sr. Sigurður Árni
Þórðarson, opið hús kl. 15. Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson prestur talar
um þrumuprédikarann Jón Biskup Ví-
dalín, kaffi.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Tinna
Gunnarsdóttir hjúkrunarfr. verður
með fræðslu og umræður um slys á
börnum, kaffi.
90ára afmæli. Níræður erí dag, 30. janúar, Pétur
Karl Andrésson bygging-
armeistari, Hringbraut 50
Reykjavík. Pétur Karl og fjöl-
skylda munu taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Blómasal
Hótels Loftleiða, sunnudaginn
3. febrúar milli kl. 15 og 17.
Hlutavelta | Þessar stelpur héldu tombólu við 11-11 í Hlíðunum og
færðu Rauða krossinum ágóðann, 8.236 krónur. Þær heita Kristjana Þór-
dís, Helena Björk, Marianna Hlíf og Júlía Sif.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 30. janúar, 30. dagur ársins 2008Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu
nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.)
Rannsóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum býður til fyr-irlestrar á morgun, fimmtu-dag. Fyrirlesari er Alyson
J.K. Bailes sagnfræðingur, og gesta-
kennari í stjórnmálafræði við HÍ. Er-
indi Alyson ber enska titilinn New Di-
mensions of Security – are they good
for women and are women good for
them?
„Í fyrirlestrinum velti ég upp þeirri
spurningu hvort hin nýja tilhneiging
til að skilgreina „öryggismál“ í mjög
víðum skilningi – svo að nær yfir alls-
kyns hættur sem stafa að almenningi
aðrar en hefðbundinn hernað– bæti
öryggi kvenna, og veiti þeim aðstöðu
og tækifæri til að vinna að bættu ör-
yggi,“ skýrir Alyson.
Bendir Alyson á að „stríð“ hafi
færst frá milliþjóðavettvangi inn í rík-
in sjálf, út á götur, inn í skóla og á
heimili. „Samkvæmt samantekt
SIPRI-stofnunarinnar í Stokkhólmi
voru öll meiriháttar stríðsátök árin
2006-7 borgarastríð, þar sem oft tak-
ast á fjöldi stríðandi fylkinga í mikilli
óreiðu,“ segir hún. „Afleiðing af þess-
ari þróun er stóraukið manntjón meðal
óbreyttra borgara. Dauðsföll kvenna
vegna vopnaðra átaka hafa aukist
mjög, og eru þá ekki talin óbein
dauðsföll, s.s. af völdum hungurs,
sjúkdóma og eyðileggingar.“
Einnig bendir Alyson á afleiðingar
þess fyrir réttindi kvenna að öfgahóp-
ar komast til valda í því umhverfi sem
ríkir í heiminum í dag: „Í Mið-
Austurlöndum vex strangtrúarsjón-
armiðum fiskur um hrygg í stjórn-
málum, og konur hafa þar víða þurft
að setja blæjuna upp að nýju. Á Vest-
urlöndum ganga stjórnvöld æ lengra í
baráttunni gegn hryðjuverkum svo að
borgaralegum réttindum og einkalífi
er fórnað. Til verður umhverfi sem el-
ur á tortryggni milli ólíkra þjóðfélags-
hópa.“
Alyson nefnir um leið að konur virð-
ast vera útilokaðar frá æðstu stöðum í
þessu nýja öryggisumhverfi: „Það á
ekki aðeins við yfirstjórn herja, heldur
einnig hjá lögreglu, við landamæra-
vörslu og innan ráðuneyta,“ segir hún.
Fyrirlesturinn á fimmtudag er hald-
inn í sal 4 í Háskólabíói og hefst kl. 12.
Aðgangur er öllum heimill og ókeypis
en Alyson flytur erindi sitt á ensku.
Heimasíða Rannsóknastofu í
kvenna- og kynjafræðum er á slóðinni
http://rikk.hi.is.
Jafnrétti | Fyrirlestur á vegum RIKK á fimmtudag kl. 12 í Háskólabíói
Konur í heimi átaka
Alyson Judith
Kirtley Bailes
fæddist í Man-
chester 1949. Hún
hlaut MA-gráðu í
sagnfræði frá Ox-
ford-háskóla 1969.
Alyson starfaði við
bresku utanrík-
isþjónustuna frá
1969 til 2002, m.a. sem sendiherra í
Finnlandi, auk þess sem hún sinnti
störfum m.a. við Vestur-Evrópusam-
bandið og varnarmálaráðuneyti Bret-
lands. Hún er nú gestakennari við Há-
skóla Íslands.
Fyrirlestrar og fundir
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna sem fengið hafa krabbamein í
eggjastokka heldur rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, kl. 17.
Landakot | Fræðslunefnd Rann-
sóknastofu í öldrunarfræðum heldur
fræðslufund 31. janúar kl. 12.15 í kennslu-
salnum á 7. hæð á Landakoti. Jón Eyjólf-
ur Jónsson fjallar um 80+ rannsóknina.
Sent út með fjarfundabúnaði.
Ættfræðifélagið | Sr. Gísli Kolbeins held-
ur erindi um Skáld-Rósu 31. janúar kl.
20.30, í sal Þjóðskjalasafnsins, þriðju
hæð.
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Matarúthlutun
kl. 15-17 í Eskihlíð 2-4. Úthlutanir verða
alla miðvikudag á sama tíma.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Mat-
ar- og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12
B. Tekið á móti hreinum fatnaði og öðr-
um varningi á þriðjudögum kl. 10-15. Sími
551-4349, netfang maedur@simnet.is
SAMKVÆMT ákvæðum í skipulagsskrá Minningar-
sjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
skal sjóðurinn styrkja rannsóknir og nýjungar í lækn-
isfræði. Sérstaklega eru tilgreind fjögur svið: augn-
sjúkdómar, hjarta- og æðasjúkdómar, taugasjúkdóm-
ar og öldrunarsjúkdómar.
Í fréttatilkynningu segir að um árabil hafi styrkir
verið veittir í desember að undangenginni auglýsingu
og umfjöllun stjórnar sjóðsins. Fyrstu styrkir úr
sjóðnum voru veittir árið 1985. Að þessu sinni eru
veittir níu styrkir, samtals að upphæð kr. 4,7 millj-
ónir. Upphæðin skiptist á eftirtalda styrkþega:
Axel F. Sigurðsson, Fríða Rún Þórðardóttir og
Gunnar Þ. Gunnarsson til rannsóknarverkefnisins:
Skimun fyrir sjúkdómum sem geta valdið skyndidauða
hjá íþróttamönnum.
Ástríður Pálsdóttir og Elías Ólafsson til rannsókna
á arfgengri heilablæðingu vegna stökkbreytts cystat-
ins C.
Björn Guðbjörnsson til rannsókna á líffærasértæk-
um ónæmissjúkdómum með heilkenni Sjögrens sem
módelsjúkdóm.
Davíð O. Arnar og Hilma Hólm til verkefnisins:
Kortlagning og einangrun áhættugena gáttatifs.
Eydís Ólafsdóttir til rannsókna á augnsjúkdómum
og blindu við sykursýki.
Friðbert Jónasson til rannsókna á algengi, nýgengi
og áhættuþáttum flögnunarheilkennis og flögnunar-
gláku hjá Íslendingum 50 ára og eldri.
Guðleif Helgadóttir og Einar Stefánsson til verk-
efnisins: Lýðheilsuleg nálgun sjúklinga sem eru í
áhættuhóp fyrir sjóntap vegna hrörnunar í augnbotn-
um.
María Hrafnsdóttir til verkefnisins: Líknandi með-
ferð sjúklinga með MND-sjúkdóm.
Svanborg Gísladóttir og Einar Stefánsson til rann-
sóknarverkefnisins: Lyfja- og lífeðlisfræði glerhlaups
augans.
Styrkir til vísindarannsókna
FRÉTTIR
!!
! "
# "
" %
&
()& $ * (+,*$
-
. (&/ 0 $ 12 2&12
& '&3$ 4 5 6
4'7899