Morgunblaðið - 30.01.2008, Qupperneq 36
... ægifagra nærri ní-
ræða listakonu með
augu sem Picasso líkti við
augu ránfugls… 43
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG var nú bara beðinn um að gera
þetta,“ segir Sverrir Þór Sverrisson,
Sveppi, sem hefur tekið að sér eitt af
aðalhlutverkunum í söngleiknum Ást-
in er diskó - lífið er pönk sem frum-
sýndur verður í Þjóðleikhúsinu í apríl.
„Ég þurfti aðeins að hugsa mig um,
ég er náttúrulega starfsmaður Stöðv-
ar 2 og að leika í Borgarleikhúsinu,
þannig að það er nóg að gera. En það
hefur alltaf heillað mig að vera á sviði,
mér finnst það voða gaman. Ég er líka
mikill söngleikjakarl, og það kæmi
mér ekki á óvart ef ég væri látinn
syngja í þessu,“ segir Sveppi og hlær.
„Mér finnst alltaf jafn furðulegt þeg-
ar fólk er að biðja mig um að syngja.“
Höfundur verksins er Hallgrímur
Helgason og bróðir hans Gunnar sér
um leikstjórn. Aðspurður segist
Sveppi leika diskógæjann Danna -
eitt af stærri hlutverkunum. „Ég er
að leika engisprettu á daginn og svo
er ég diskóbolti á kvöldin,“ segir
Sveppi sem er þar að vísa til hlut-
verks síns í Gosa í Borgarleikhúsinu.
Hann efast hins vegar um að hann
ætli að leggja leiklistina alfarið fyrir
sig. „Þetta tekur svo mikinn tíma,
þannig að maður getur ekkert skotist
upp í sumarbústað með fjölskyldunni.
En ég á svo erfitt að segja nei við öllu
svona, sérstaklega þegar það er eins
skemmtilegt og þetta.“
Diskóboltinn Sveppi
Morgunblaðið/Golli
Sveppi „Ég held alveg lagi, en ég myndi ekki bóka mig á árshátíð!“
Leikur eitt aðalhlutverkanna í nýjum söngleik
Ég með Róbert
Hjálmtýsson í
broddi fylkingar
er hinn hvíti hrafn
íslenskrar rokk-
tónlistar og það er
ávallt fagnaðar-
efni þegar þessi fáséða og skringi-
lega sveit kemur saman til að spila.
Sveitin sendi nýverið frá sér lag-
ið „Helgi“ sem sver sig í ætt við
ruglrokk-stefnu þeirra drengja en
von er á þriðju plötu sveitarinnar
með hækkandi sól. Hefur sú plata
fengið heitið Lúxusupplifun en enn
er óljóst hvaða plötufyrirtæki mun
gefa hana út. Þess ber hins vegar
að geta að knattspyrnuhetjan og út-
gáfurisinn Eiður Smári Guðjohnsen
gaf út síðustu plötu sveitarinnar,
sem hét því skemmtilega nafni
Plata ársins. Eiður stendur nú í út-
gáfu á fyrstu plötu Sverris Berg-
manns en biðin eftir þeirri plötu fer
að minna á biðina eftir Guns ’N Ro-
ses-plötunni Chinese Democracy.
Aðdáendur Ég (eða Mín) fá tæki-
færi til að heyra nýju lögin og önn-
ur eldri á Organ annað kvöld.
Þriðja hljómplata
„Mín“ væntanleg
með vorinu
Og að annarri hljómveit. Dýrðin
heldur til London á föstudag og
kemur fram á tvennum tónleikum
þar í borg. Upphaflega átti að halda
eina tónleika í London og eina í Ox-
ford en áður en til þess gat komið
fór tónleikastaðurinn í Oxford á
hausinn. Tónlistarskríbentinn Tom
Bartlett útvegaði þeim í staðinn
gigg í Brixton en Bartlett þessi var
víst fyrstur til að vekja athygli á
Dýrðinni utan landsteinanna.
Dýrðin til London
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ tíðkast erlendis að leikarar búi til svona
„showreel“ sem er sýningarbútur úr myndum
sem þeir hafa leikið í,“ segir Ágúst Bjarnason,
nemi í kvikmyndaleik við Kvikmyndaskóla Ís-
lands, en á vefsíðunni YouTube má nú skoða
myndskeið með því sem hann hefur leikið í.
„Bjarni Gautur leikstjóri fékk þessa hugmynd,
klippti saman hlutverk sem ég hef farið með í eitt
myndband og setti á netið. Ég skynja það núna
að þetta er ekkert vitlaust ef maður vill koma sér
á framfæri, enda er slíkt myndband partur af
ferilskrá fyrir leikara.“ Ágúst segir að það sé
mjög algengt að leikarar erlendis noti YouTube
sem vettvang fyrir slík „showreel“ myndbönd til
að koma sér á framfæri en lítið hafi verið um það
meðal íslenskra leikara. Spurður hvort hann
stefni á erlendan markað sem leikari svarar
Ágúst játandi og segir að frá upphafi hafi stefn-
an verið sett á Bandaríkin. „Ég var að velta fyrir
mér að leika hér heima í sumar og fara síðan ut-
an á næsta ári og reyna að koma mér áfram þar.“
Eins og áður segir er Ágúst nemi í kvikmynda-
leik hjá Kvikmyndaskóla Íslands en þetta er
fyrsti veturinn sem það nám er í boði. „Námið
tekur tvo vetur og er byggt að fyrirmynd er-
lendra leiklistarskóla með áherslu á kvikmynda-
leik fremur en sviðsleik. Það er tvennt ólíkt,“
segir Ágúst og bætir við að kvikmyndaleikurinn
hafi alltaf heillað meira en leiksviðið.
Viðskiptafræði í bakhöndinni
Ágúst er ekki með langa ferilskrá sem leikari
en byrjaði þó að leika í stuttmyndum strax í
grunnskóla og hefur verið iðinn við kolann í
þeim geira síðan auk þess sem hann hefur komið
fyrir í nokkrum auglýsingum. Næstkomandi
sumar verður samt tíminn því hann er kominn
með hlutverk í stærri verkefnum sem verða tek-
in upp þá.
Ágúst er menntaður viðskiptafræðingur frá
Háskólanum í Reykjavík en segist samt alltaf
hafa verið með kvikmyndaleik í huga á námstím-
anum. „Kvikmyndaleikur er eitthvað sem mig
hefur alltaf langað til að gera en aldrei þorað að
sleppa örygginu sem felst í að vera í fjár-
málaheiminum. En ég ákvað að láta vaða núna,
maður getur ekki endalaust verið á rangri hillu.
Þetta er það sem ég á að vera að gera.“
Stelpur og stælgæjar
Í lok YouTubes-myndbandsins er vísað á My-
Space-síðu Ágústs sem er nokkuð skondin.
„Ég þarf nú að laga þessa síðu,“ segir hann og
hlær. „Ég og tveir vinir mínir fórum til Los Ang-
eles síðastliðið sumar. Til að komast inn á
skemmtistaði sem eru aðeins ætlaðir fræga, ríka
og fallega fólkinu bjó ég til bakgrunn; heimasíðu
fyrir íslenska stórstjörnu og sótti síðan um að
komast á gestalista. Það leiddi m.a. til þess að
okkur vinunum var boðið að vera sérstakir gestir
á tónleikum sem haldnir voru á Viper Room sem
er í eigu leikarans Johnny Depp. Persónan sem
ég bjó til fyrir ferðina til LA var mjög sjálfhverf
og lét alla snúast í kringum sig. Þetta hlutverk
gekk rosalega vel og ég er enn að fá boð í partí
og veislur,“ segir Ágúst en stelpur og sportbílar
koma nokkuð fyrir á MySpace-síðunni. Hann lét
þó ekki heillast af glamúrheiminum í LA. „Það
merkilega við þessa reynslu var að ég sannfærð-
ist enn frekar um að ég vil vera leikari en sá að
það er ekki eftir neinu að sækjast í heimi fræga
fólksins. Það skemmtilegasta við LA er allt lista-
fólkið sem er að reyna að komast áfram í brans-
anum. Það er alltaf mikil orka og ánægja sem
fylgir fólki sem virkilega sækist eftir draumum
sínum.“
Úr viðskiptum í leiklist
Ágúst Bjarnason viðskiptafræðingur stefnir á kvikmyndaleik í Bandaríkjunum
Árvakur/G. Rúnar
Á hvíta tjaldið Ágúst Bjarnason hefur alltaf átt þann draum að verða kvikmyndaleikari.
www.youtube.com
■ Á morgun kl. 19.30 – Örfá sæti laus
Ættgeng snilligáfa
Natasha Korsakova, ungur rússneskur fiðlusnillingur, flytur hinn
rómaða fiðlukonsert Brahms. Einnig verður fluttur eldfjörugur
brasilískur forleikur og magnþrungin önnur sinfónía Rakmaninoffs.
Stjórnandi: John Neschling.
Einleikari: Natasha Korsakova
■ Fim. 7. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Einstakur viðburður, frumflutningur tveggja íslenskra sinfónía, eftir
Atla Heimi Sveinsson og John Speight.
■ Lau. 16. febrúar kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð Þjóðmenningarhúsinu
Fransk rússneskur kammersirkus. Verk fyrir fjölbreytta hljóðfæra-
skipan eftir Debussy, Ravel og Prokofiev.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is