Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Qupperneq 3
rniAim- —
iik.iHi:m\<>\
2. HEFTI 32. ÁRGANGUR SEPTEMBER 1982
HÆSTARÉTTARLÖGIN
OG LÖGRÉTTUFRUMVARPIÐ
Breytingar þær, sem gerðar voru á hæstaréttarlögunum á s.l. vori með
lögum nr. 67/1982, hafa illu heilli leitt til þess, að enn hefur tafist, að endan-
leg afstaða væri tekin til lögréttufrumvarpsins og þeirra hugmynda um hraðari
meðferð dómsmála og aðskilnað dóms- og framkvæmdavalds, sem frumvarp-
ið er grundvallað á. í fljótu bragði kann að sýnast, að fjölgun dómara við
Hæstarétt úr 7 í 8, en það ákvæði eitt í hinum nýju lögum skiptir hér máli,
varði ekki lögréttumálið. Þarna eru þó tengsl á milli. Dómurum í Hæstarétti
hefur á tæpum áratug fjölgað úr 5 í 8. Sú stefna felur í sér, að Hæstiréttur
verði deildaskipt stofnun þar sem meirihluti getur farið eftir tilviljun. i þjóð-
félagi okkar er hann þá ekki lengur Hæstiréttur, sem hefur að aðalhlutverki
að dæma mikilvægustu mál og stuðla að réttareiningu, heldur almennur
dómstóll til að sinna áfrýjunarmálum af öllu tagi, þar á meðal smámálum.
Lögréttufrumvarpið myndi, ef lögleitt væri, gera Hæstarétti kleift að einbeita
sér að því, sem mestu skiptir á starfssviði hans, og það myndi jafnframt
tryggja, að mikilvægustu málin yrðu á fyrsta dómstigi dæmd af dómendum,
sem ekki væru jafnframt stjórnsýslustarfsmenn. Lögréttulög myndu með
öðrum orðum stuðla að því, að á landi okkar væri sæmilega nútímaleg réttar-
farslöggjöf.
Þegar þetta er skrifað, 30. ágúst 1982, er ekki kominn út sá hluti umræðu-
parts Alþingistíðinda frá síðasta þingi, sem geymir ræður um hæstaréttar-
frumvarpið eftir 1. umræðu í síðari deild. En í því, sem komið er á prent,
kemur í ijós, að áhugi á framgangi lögréttumálsins er eða var lítill. Dóms-
málaráðherrann, Friðjón Þórðarson, sagði m.a. í framsöguræðu sinni í Efri
deild 16. nóvember 1981: ,,Með þessu frv. er enginn dómur í sjálfu sér lagður
á lögréttufrumv. Það hefur legið fyrir nokkrum þingum, en ekki vakið sér-
staka athygli hv. alþm. En á hitt er að líta, að það verður lagt til hliðar nú
um sinn. Hver er tilgangur lögréttufrumv.? Hann er einmitt sá sem hér er
leitast við að ná ... Ég er alls ekki að segja, að með því frv., sem ég hef
45