Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Side 36
gera sérstaklega fyrir dómi eða stjórnvaldi. Sakadómara eða yfirvaldi er
skylt að lögum að dæma slík laun eða ákvarða eftir atvikum eftir
skýrslu lögmanns, nema þeim séu berum orðum afsalað. 1 gjafsóknar-
eða gjafvarnarmálum verður að gera kröfu um málskostnað, eins og
ekki sé um slíkt mál að tefla, því að þetta er jafnan tekið fram í leyfis-
bréfum dómsmálaráðherra. Ástæðan er augljós, þ.e. að ekki sé fyrirfarið
möguleika ríkissjóðs til þess að endurkrefja hina greiddu þóknun og út-
lagt fé úr hendi dómþola, þ.e. gagnaðila gjafsóknar- eða gjafvarnar-
hafa, ef tilefni gefst til.
Lögmenn og viðskiptamenn þeirra hafa samningsfrelsi um málflutn-
ingsþóknun, en lágmarksgjaldskráin gildir, ef samningur er ekki gerð-
ur. Samningar um bersýnilega ósanngjarna þóknun eru ekki skuld-
bindandi.
Málskostnaður
Hér er fjallað fremur lauslega um málskostnað fyrir dómstóli í einka-
máli í héraði með tilvísun til XII. kafla eml. I slíku máli koma mörg vafa-
atriði til ákvörðunar dómara. Um málskostnað er fjallað í kennslu-
ritum Einars Arnórssonar og Þórs Vilhjálmssonar.1) Verður hér að
vísa til eml. og umfjöllunar í ritum þessum, sem að sjálfsögðu er al-
1) Einar Arnórsson: Almerrn meðferð einkamála í héraði (1941) bls. 291-299.
Þór Vilhjálmsson: Réttarfar II. (2. útg. 1981) bls. 50-59.
Jón Edwald Ragnarsson varð cand. jur. í janúar
1966 og hóf þá störf sem fulltrúi borgarstjórans
í Reykjavík. Hann varð hdl. 1966 og hrl. 1973.
Frá 1969 hefur hann rekið eigin lögmannsstofu,
en það ár hætti hann störfum hjá Reykjavíkur-
borg. Samhliða málflutningi var hann 1969-70
framkvæmdastjóri Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar. Jón hefur átt sæti í stjórn Lög-
mannafélagsins og var fyrsti formaður kjara-
nefndar þess. Hann er nú formaður ráðs sjálf-
stætt starfandi háskólamanna innan Bandalags
háskólamanna. — Grein sú, sem hér birtist,
var rituð eftir námsstefnu lögfræðinga á Þing-
völlum í maí 1981, en þar var Jón talsmaður
nefndar, sem fjallaði um það efni, er greinin
snýst um.
78