Tímarit lögfræðinga - 01.11.1985, Side 14
höfundaréttarins, semja um höfundaréttargj öld, innheimta gjöldin og
úthluta þeim síðar til rétthafa.
Áður er að því vikið að óframkvæmanlegt er með öllu að hver ein-
stakur tón- eða textahöfundur geti hverju sinni, áður en verk hans er
flutt, veitt leyfi til flutnings og innheimt síðan gjald fyrir hann. Þess
vegna hefur hvarvetna verið horfið að því ráði að mynda samtök sem
sjái um réttindameðferðina að öllu leyti, en meðferð höfundaréttar í
tónlist lýtur af óhjákvæmilegum ástæðum sérstökum reglum, sem eru
frábrugðnar þeim sem gilda í öðrum listgreinum. Þessu veldur einkum
hið gífurlega magn fluttrar tónlistar svo og það, að fjölmargir rétthaf-
ar geta átt rétt yfir einu og sama verki, litlu eða stóru (tónhöfundar,
textahöfundar, útsetjari, forleggjari), og loks, að vægi verka við út-
hlutun er mismunandi vegna gerðar þeirra og umfangs. Af þessum
ástæðum leiðir að hrein einstaklingsbundin sjónarmið verða í ríkum
mæli að víkja fyrir svoköllum „kollektívum“ sjónarmiðum, þ.e. hags-
munum hópsins sem slíks.
Heimildir sínar og starfsemi byggir STEF fyrst og fremst á umboð-
um frá innlendum rétthöfum. Þá hefur sambandið gagnkvæmnissamn-
inga við hliðstæð systurfélög í öðrum löndum og fer því með sanmings-
rétt fyrir nær alla tónlist innlenda og erlenda sem flutt er hér á landi.
Að þessu leyti er staða STEFs sterkari en annarra íslenskra höfunda-
réttarfélaga sem fara nær einvörðungu með innlend réttindi. Þessi um-
boð og samningar eru í rauninni sá grundvöllur sem öll starfsemi
STEFs byggist á. Auk þessa hefur félaginu verið veitt svonefnd lög-
gilding skv. 23. gr. höfundalaga, en löggilding þessi felur í sér að fé-
laginu er veittur einkaréttur til að semja við Ríkisútvarpið um flutn-
ingsrétt á tónverkum og textum með tónlist, þannig að utanfélags-
menn eru við samninga þessa bundnir. Þá felur löggildingin það í sér að
félagið á að lögum rétt til að tilnefna fulltrúa í svonefnda höfunda-
réttarnefnd skv. 58. gr. höfundalaga, en sú nefnd er ráðgefandi fyrir
ráðherra í höfundaréttarmálum.
f nýlega samþykktum lögum fyrir STEF er leitast við að skýra og af-
marka tilgang félagsins sem nákvæmast og segir svo um það efni í
í 2. grein samþykktanna:
2.1. STEF er höfundaréttarstofnun, sem gætir höfundaréttarlegra
hágsmuna innlendra og erlendra tónskálda, textahöfunda, svo og
annarra eigenda flutnings- og fjölföldunarréttar tónverka og til-
heyrandi texta. Sambandið er umboðs- og fyrirgreiðsluaðili um-
bjóðenda sinna og safnar ekki eignum í eigin þágu.
152