Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 51
TILRAUN MEÐ HAFSTEIN BJÖRNSSON 49
þessum fámenna hópi miðla er Mr. A. Wilkinson, sem J. Ar-
thur Hill rannsakaði (1917).
Hafsteinn heldur venjulega skyggnilýsingafundi sína á op-
inberum stað þar sem fimmtiu, hundrað eða nokkur hundruð
fundargesta geta verið viðstaddir. Þegar Hafsteinn hefur lýst
framliðnum eða hópi framliðinna, spyr hann venjulega hvort
nokkur viðstaddra þekki þá og býður áheyrendum að spyrja
spurninga um þá. Hann svarar síðan spurningunum eftir beztu
getu og þar með getur komið fram nákvæmari lýsing á per-
sónueinkennum eða atburðum. Þannig geta farið fram nokkur
orðaskipti milli miðilsins og fundargests og oft svarar fundar-
gesturinn viðstöðulaust ef miðillinn segir eitthvað um hann,
sem hann þekkir.
Þeir, sem Hafsteinn kemst í samband við, eiga það stundum
sammerkt, sem er óvenjulegt og furðulegt, að þeir eru allt að
tveimur kynslóðum eldri en fundargesturinn. Þannig getur
Hafsteinn rætt um afa og ömmu og aðra ættingja, sem hafa
lifað fyrir svo löngu, að fundargesturinn þekkti þá aðeins laus-
lega eða alls ekki — í stað þess að gefa upplýsingar um látna
foreldra, frænda, frænkur o.s.frv. Þetta einkenni á sér ekki
alltaf stað, en er nógu algengt hjá honum til þess að það hefur
vakið athygli okkar og það hefur einnig þýðingu fyrir matið
á niðurstöðmn tilraunar þeirrar, sem hér um ræðir.
Þegar Hafsteinn dvaldist í New York veittist tækifæri til
þess að gera tilraun undir strangara eftirliti, svipuðu opinber-
umum skyggnilýsingarfundum þeim, sem hann venjulega
heldur, en þó þannig að sneitt yrði hjá ýmsum annmörkum
þeirra. Tilraunin fór fram i Chester F. Carlson rannsóknar-
stofu A.S.P.R. 15. ágúst 1972 á vegum félagsins.
AÐFERÐ
Fundarmenn voru tíu og frá Islandi, aðallega ungt fólk
og tiltölulega stutt var um liðið síðan það kom til Bandarikj-
anna. Fimm þeirra höfðu áður sótt miðils- og skyggnilýsingar-
fundi hjá Hafsteini á Islandi, en flestir nokkrum árum áður.
Á þrjátiu og fimm ára virkum miðilsferli Hafsteins hafa þús-
4