Viðar - 01.01.1939, Page 25
Viðar]
Eirfkur J. Eiríksson:
Björn á Núpi sextugur.
Einn ágætasti maður héraðsskólanna og þeirrar hreyfing-
ar, er hóf þá, Björn Guðmundsson, skólastjóri á Núpi í
Dýrafirði, varð sextugur 26. júní í vor. Er' skylt, að Viðar
votti þessum brautryðjanda virðingu í tilefni þessa afmæils
og má ungum lesendum vera til hvatningar að virða hann
fyrir sér.
Björn skólastjóri er fæddur á Næfranesi í Dýrafirði. Voru
foreldrar hans Guðmundur bóndi Þórarinsson og Guðbjörg,
kona hans, Guðmundsdóttir. Dó hún, er sveinninn var
þriggja ára. Er Björn í báðar ættir kominn. af þróttmiklu
vestfirzku bændafólki. Af löngu liðnum merkismönnum í
ætt Björns verður hér aðeins nefndur Jón Gissurarson, er
bjó á Núpi og vígði staðinn til menntaseturs með þjóðlegum
fræðastörfum.
Kennslu naut Björn lítillar í æsku. Árið 1898 veiktist
hann alvarlega í fæti og lá rúmfastur heilt ár. Telur hann,
að sú lega hafi jafnazt á við skólagöngu. Las hann þá margt
ágætra bóka. Ýmis giftudrjúg skapgerðareinkenni rnunu og
hafa þróazt hjá Birni í deiglu veikindanna. Honum gafst og
tóm til að huga að lífsstefnunni.
Faðir Björns dó árið 1902. Tveim árum síðar fór Björn í
Flensborgarskóla. Útskrifaðist hann þaðan 1906. Kennarar
voru þá í Flensborg þeir Jón Þórarinsson, sem var skóla-
stjóri, Magnús Helgason og Ögmundur Sigurðsson. Má geta
nærri, að þeir hafa allir haft mikil áhrif á Björn. Þótti
hann góður námsmaður og einkar álitlegt kennaraefni.
Veturinn 1906—07 var Björn barnakennari í sveit sinni
vestra. Haustið 1907 hélt hann til Noregs, að nokkru vegna
hvatningar Sams Sæland, rektors Osloarháskóla. Hafði
Björn kynnzt honum á íslandi. í utanförinni kynnti hann
2*