Viðar - 01.01.1939, Page 49
Viðar]
HVAÐ MÁ GJÖRA.. ..?
43
Hirðing og ræsting herbergisins verður að vera sem full-
komnust og ganga fljótt. Bezt er að strjúka af gólfinu dag-
lega með blautum klúti, en forðast að sópa það með sópi,
sem aðeins þyrlar upp rykinu, en nær ekki nema litlum
hluta þess burtu.
Gæta verður þess, að vel fari um sjúklinginn í rúminu,
dýnur séu valdar sem beztar og aðgætt að eigi séu fellingar
í rekkjuvoðum eða aðrar ójöfnur, er geta valdið óþægindum
og jafnvel legusárum á þungt veiku fólki.
Ef sjúklingurinn er ekki nógu heitur í rúminu, skal setja
flöskur með heitu vatni í kring um hann, en vefja þær í
dúk til þess að þær geti ekki valdið brunasárum.
Dagleg hirðing sjúklingsins er og þýðingarmikið atriði.
Nauðsynlegt er að honum sé þvegið daglega, munnur
hreinsaður og tennur, eftir því sem bezt verður við komið.
Ef hinn sjúki er þungt haldinn, má hann ekki fara á sal-
erni, heldur verður hann að nota pott og er rétt, að hann
sé hitaður, annaðhvort með því að hella í hann heitu
vatni eða bregða honum á ofn eða eldavél stundarkorn.
Ef grunur er um, að hinn sjúki sé haldinn af næmum
sjúkdómi, ber að hella karbólsýru, kreólíni eða öðru sótt-
hreinsandi efni yfir hægðir og í þvag til þess að draga úr
smithættu, t. d. við taugaveiki, og eins ber að fara með
hráka, sé grunur um smitandi lungnasjúkdóma, t. d. berkla-
veiki.
Gott er að þvo hinum sjúka um líkamann með þvotta-
poka, jafnvel kvöld og morgna, það bætir oft líðan sjúkl-
ingsins, herðir hann, einkum húðina, lækkar oft hitann
og færir sjúklingnum oft ró fyrir svefninn og nóttina.
Sé sjúklingurinn hafður einn í herbergi, og enginn að
staðaldri hjá honum, þarf að gæta þess, að hann geti gjört
vart við sig, án þess að reyna á sig. Sé eigi til bjalla, t. d.
sauðaklukka, má notast við tómt glas og skeið.
^egar flytja þarf sjúkling milli rúma, t. d. meðan búið
er um, er nauðsynlegt að kunna rétt handtök. Bezt er að
flytja rúmið, sem sjúklingurinn er lagður í á meðan, að