Viðar - 01.01.1939, Side 60
54
HVAÐ MÁ GJÖRA... .?
[Viðar
mynda loft, — kolsýru, — er getur þanið magann svo út,
að sárið þoli ekki þensluna og springi.
5. Gefið ekkert að borða.
Einkenni botnlangabólgu eru: skyndilegur verkur, dreifð-
ur um kviðinn í fyrstu, oft kring um naflann, síðan stað-
bundinn í hægri kviðarhelmingi neðanverðum, verkirnir
koma í sárum köstum, uppköst, vaxandi hiti, hraður púls.
Kviður verður spenntur og helaumur á botnlangastað.
Óhætt er að leggja á heitan bakstur, meira skal ekki
gjört. Garnaflækju fylgja sár kvalaköst í kviði, staður
breytilegur eftir þvi, hvar garnaflækjan er, uppköst mjög
mikil, kviður ekki harður í fyrstu, sjúklingurinn kastar
bráðlega upp gori, og leynir það sér ekki á lyktinni. Forð-
ist ópíum, laxerolíu, pípur. Leggið á heitan bakstur. Inni-
klemmd kviðslit haga sér eins og leynir sér sjaldan, hvað
um er að vera. Reynandi er að troða gúlnum inn, en forð-
ast skal sterk átök og bíða læknis. Ef það er algjörlega
öruggt, að um inniklemmt kviðslit sé að ræða, má gefa 15
dropa af ópíum, annars alls ekki. Þegar maga- eða garna-
sár springur, er oftast vitað um það áður, að sjúklingurinn
hafi haft magasár eða þrálátan meltingarkvilla með verkj-
um og gefur það ætíð vissa bendingu.
Einkennin eru: mjög sárar, allt að því óþolandi, kvalir
í kviði, sárari í köstum, en hverfa ekki á milli, uppköst
fylgja oft, en ekki alltaf, sjúklingurinn fær venjulega
„shock“ um leið og sárið springur. Þ. e. hann verður fölur,
innfallinn í andliti og púls mjög lítill og hraður. Kviður-
inn verður bráðlega harður sem fjöl og blæs fljótt upp af
lofti. Leggja skal á heitan bakstur eða þá ískaldan bakstur,
helzt ís í vaxd'úki eða í hitapoka, en forðast skal að gefa
nokkur lyf.
Gallsteinaköst eru mjög kvalafull. Kvalirnar koma í
köstum undir hægra síðubarði eða hægra megin í kvið
ofanverðum. Þær leggja venjulega mjög aftur í bakið og
upp í hægri öxl. Uppköst fylgja oft, hiti ekki alltaf. Gefið
heitan bakstur og ekki annað.