Viðar - 01.01.1939, Síða 80
74
GUÐMUNDUR HJALTASON
[Viðar
En mun það nú eigi mála sannast, að brautryðjendurnir,
— og það var Guðmundur að því er snerti lýðháskólahreyf-
inguna hér á landi, — fái sjaldan eða aldrei að sjá fullan
ávöxt starfsins, fái ald'rei að sjá uppskeruna af fræi því,
er þeir í óeigingirni sinni og fórnfýsi sá í hrjósturjörð þá,
er þeir oftast þurfa að brjóta til ræktunar.
III.
Sé litið yfir æfistörf Guðmundar Hjaltasonar, þá ber þar
hæst fyrirlestrastarfið, bæði að fjölbreytni efnis og efnis-
vali.
Sumarið 1876, — eftir árs dvöl í Noregi, var Guðmundur
á fundi, er haldinn var í Vonheimi. Voru þar komnir saman
um 70 kennarar, flestir norskir. Á fundi þessum hélt Guð-
mundur 4 fyrirlestra um íslenzk efni. Lýsti hann landi og
þjóð, sögu og bókmenntum. Þetta voru fyrstu fyrirlestr-
arnir, sem hann hélt. Líkaði Bruun skólastjóra þeir svo
vel, að hann hvatti Guðmund til að halda lengra á þeirri
braut. Eftir fundinn fór Guðmundur svo í fyrirlestraferð
norður í Niðarós og víðar um vesturhluta Noregs. Pékk
hann góðar viðtökur víðasthvar og yfirleitt góða’blaðadóma
um fyrirlestrína. Þó vildu sumir kunningjar hans í Noregi
halda því fram, að í þeim efnum hefði hann notið þess, að
hann vár íslendingur, því að Norðmönnum væri mjög hlýtt
í geði til þeirra. En um þetta getur raunar enginn sagt neitt
með vissu.
Næsta sumar (1877) fór Guðmundur víða um Noreg sunn-
anverðan og hélt þar marga fyrirlestra víðast við sömu góðu
viðtökur og árinu áður. Þetta sumar fór hann úr Noregi,
og hafði hagur hans svo greiðzt þar, að þá átti hann um
500 krónur í gangsilfri, nógan fatnað og talsvert af bókum,
og það, sem mestu skipti, hann hafði náð tökum á málinu
og öðlazt talsverða þekkingu á ýmsum sviðum.
Þegar til Danmerkur kom, dró Guðmundur sig í hlé með
fyrirlestrana, en stundaði námið af kappi, hélt aðeins 3
fyrirlestra í skólanum í Askov annan veturinn, er hann var