Viðar - 01.01.1939, Qupperneq 151
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
145
100. Þórhildur Skaftadóttir, Fossi V.-Skaft.
101. Þorsteinn Guðmundsson, Reykjavík.
102. Þorvaldur Halldórsson, Vörum Gullbrs.
íþróttaskóli Björns Jakobssonar.
Nemendur voru fjórir.
1. Davíð Sigurðsson, Hvammstanga.
2. Helgi Júlíusson, Leirá Borgarfirði.
3. Matthías Jónsson, Kollafjarðarnesi Strandasýslu.
4. Þórhalla Þorsteinsdóttir, Akureyri.
Þau luku öll kennaraprófi í vor með góðri einkunn.
Námsgreinar: Uppeldisfræði, líffærafræði, lífeðlisfræöi, fimleika-
fræði, sund, fimleikar, útiíþróttir margskonar og kennsla.
Lágmarkskrafa til inntöku er menntun, sem eigi sé síðri en tveggja
vetra nám í héraðsskóla með góðum árangri, bæði í bóknámi og
íþróttum. Einkum þarf umsækjandi að vera vel að sér í íslenzku.
Dönsku eða annað Norðurlandamál þarf hann að skilja fyrirhafnar-
lítið. Umsækjandi sé vel hraustur og noti hvorki áfengi né tóbak og
hafi vottorð um þetta frá Þekktum, áreiðanlegum manni.
Námsskeið s. I. vor.
Húsmœðranámskeið stóð yfir sex vikur, 33 stúlkur tóku þátt í því.
Kennt var matreiðsla og venjuleg innanhússtörf, einnig íþróttir og
og söngur. — Skemmtiferð var farin austur að Skógafossi. — Aðal-
kennari námskeiðsins var Ingibjörg Jónsdóttir, húsmæðrakennari frá
ísafirði.
/ gróörarstöðinni hér störfuðu tólf nemendur í maí og júní sex
vikur hver. Kennslan er að mestu verkleg, einnig nokkrir fyrir-
lestrar. Kennari var, eins og fyrr, Ragnar Ásgeirsson ráðunautur.
Sundnámskeið fyrir börn. Séra Eiríkur Brynjólfsson í Útskálum
dvaldi hér að venju í 10 daga með um 50 barna hóp við íþróttanám.
— Skólastjóri og kennarar frá Hafnarfiröi dvöldu einnig hér tveggja
vikna tíma með um 80 börn í tveimur hópum. Hafnfirðingarnir
fengu leigt hér húsnæði, en sáu um börnin að öllu öðru leyti, mat,
þjónustu og kennslu, þó með nokkurri aðstoð. Konur þeirra kennara,
sem hér störfuðu, önnuðust barnaheimilið. — Árangur þessara stuttu
sundnámskeiða var furðu góður, enda var börnunum sérlega vel stjórn-
að, öll reglusemi mjög fullkomin.
10