Viðar - 01.01.1939, Page 162
[Viðar
Guðmundur Ólafsson:
Fréttir af Laugvetningum.
í ársriti skólans voru jafnan fréttir af þeim, sem voru í nemenda-
sambandi skólans. En síðustu árin hafa þær fréttir fallið niður. Aðal-
orsökin til þess hefur verið sú, að erfitt hefur verið að ná ábyggilegum
fréttum af öllum. Fáir skrifa stjórn sambandsins, eins og gjört var ráð
fyrir í fyrstu, er nemendasambandið var stofnað. Er því skýrsla þessi
af vanefnum gjörð og mörgum sleppt, sem stjórnin vissi ekkert um
síðast liðið ár.
Árni Guðjónsson er bóndi á Plóðatanga í Stafholtstungum.
Ari Björnsson var vélstjóri á báti á Norðfirði.
Ármann Pétursson frá Skammbeinsstöðum var bílstjóri í Reykjavík.
Árni Kjartansson frá Seli er bóndi á Hömrum í Grímsnesi. Kona
hans er frá Heiöabæ í Þingvallasveit.
Ásta J. Snæbjörnsen er á símastöðinni á Akureyri.
Árdís Pálsdóttir frá Guðlaugsstöðum var hárgreiðslukona í Reykjavík.
Ágúst Gíslason er að nema járnsmíði í Reykjavík. '
Auðun Gestsson var heima á Kálfhóli á Skeiðum.
Andrés Pálsson var heima á Hjálmsstöðum s. 1. ár, nema á vetrar-
vertíðinni var hann á suðurnesjum.
Andrés Guðnason, Hólmum í Landeyjum var heima, nema um vet-
urinn var hann í eldri deild Laugarvatnsskólans.
Ásta Wíum frá Fagradal var í Eiðaskóla s. 1. vetur.
Anna Björnsdóttir vann í skóverksmiðju um sumarið, en var í Laug-
arvatnsskóla um veturinn.
Anna Þóra Steinþórsdóttir frá Breiðabólsstað var í Reykjavík s. 1.
vetur.
Anna Kolbeinsdóttir frá Eyvík var heima í föðurgarði.
Arnaldur Jónsson frá Varmahlíð var í Samvinnuskólanum í Reykja-
vík.
Anna Lárusdóttir Rist er gift þýzkum manni á Akureyri.
Bryngeir Guðjónsson, Bitru, vinnur heima.
Björn Björnsson var skrifstofumaður á Hótel Borg í Reykjavík.
Brynjólfur Ketilsson er giftur og hefur reist bú sitt á Bjargi í Hruna-
mannahreppi. Það býli hét áður Bolafótur.
Bjarni Gíslason var heima á Sandlækjarkoti í Gnúpverjahreppi.