Viðar - 01.01.1939, Page 165
Viðar]
FRÉTTIR AF LAUGVETNINGUM
159
Helgi Ó. Einarsson á Urriðafossi vinnur á búi föður síns, en er á
vertíðum í Sandgerði.
Halldór Jörgensson á Akranesi er giftur og stundaði húsasmíði á
Akranesi.
Hans Jörgensson var leikfimikennari við barnaskólann á Akureyri.
Hannes Erasmusson var á fornum slóðum, Stafafelli í Lóni.
Helga S. Eysteinsdóttir hefur verið á Hrauni í Ölfusi, en Bryn-
hildur, systir hennar, sem var hér s. 1. vetur, vinnur nú í þvottahúsi
í Reykjavík.
Hallgrímur Egilsson frá Reykjahjáleigu í Ölfusi hefur unnið að
garðrækt og er nú í Garðyrkjuskólanum á Reykjum.
Halldóra Bjarnadóttir Öndverðarnesi hefur unnið að búi móður
sinnar heima.
Halldór Á. Gunnarsson frá Akranesi var hér í skólanum s. 1. vetur.
Hann vann á Blikastöðum í Mosfellssveit í sumar.
Frændurnir úr Dölum, Guðmundur Þorsteinsson frá Þorsteinsstöðum
og Helgi Jóhannesson frá Svínhóli, voru hér s. 1. vetur í skólanum, en
tóku próf inn í Samvinnuskólann í vor.
Ingibjörg Heiðdai vann við Útvegsbankann í Reykjavík.
Inga D. Karlsdóttir frá Veisu var norður á Hólum í Hjaltadal í
vetur.
Inga Magnúsdóttir frá Sýrlæk var í Kennaraskólanum s. 1. vetur.
Ingimundur Ólafsson frá Nýjabæ var barnakennari í Laugardal
s. 1. vetur.
Jóna Þorsteinsdóttir frá Langholti hefur verið í Reykjavík. Vinnur
hún með áhuga að trúvakningarmálum.
Jón Emil Guðjónsson frá Kýrunnarstöðum var við nám í útlöndum
og komst alla leið suður til Frakklands. Síðastliðinn vetur var hann
kennari í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði.
Jón A. Tryggvason var þjónn í Oddfellowhúsinu í Reykjavík.
Jón Bjarnason Hlemmiskeiði kenndi fimleika í sveit sinni, var
dyravörður í Alþingishúsinu um þingtímann, annars heima.
Jóakim Pálsson í Hnífsdal var þar formaður á báti.
Jóhann Hannesson Stóru-Sandvík hefur verið heima á fornum
slóðum.
Jón Guðmundsson frá Blesastöðum hefur löngum verið í Hafnar-
firði, annars á ýmsum stöðum við trésmíði.
Jósafat Sigvaldason frá Hrafnabjörgum var norður í Þingeyjar-
sýslu síðast er við fréttum af honum.
Júlíus Jónsson frá Norðfirði er bílstjóri i Reykjavík.
Jón Gestur Jónsson frá Stóragerði var í Menntaskólanum á Akur-
eyri, þar voru einnig Jón Sigtryggsson frá Hrappsstöðum í Dalasýslu
og Hjalti Jónsson frá Valadal.