Viðar - 01.01.1939, Page 166
160
FRÉTTIR AF LAUGVETNINGUM
[Viðar
Jósef Guðjónsson frá Strandhöfn í Vopnafirði vinnur að búi föður
síns þar.
Jón Pétursson og Otto Pálsson eru bílstjórar á Akureyri.
Jónína Guðmundsdóttir frá Kópaskeri var erlendis í húsmæðra-
skóla (Sórey í Danmörku).
Jóhanna Þórðardóttir Hvítárholti hefur verið heima. Var hún um
skeið við nám í Tónlistarskólanum.
Hálfdán Hannesson Brimhóli í Vestmannaeyjum var heima og
ekur bíl.
Hermann Guðjónsson frá Ási í Holtum var tollþjónn í Vestmanna.
eyjum.
Hermann Guðmundsson Blesastöðum var heima.
Helgi Vigfússon frá Klausturhólum var kennari í Ásahreppi s. 1.
vetur.
Hermann Bjarnason í Auðsholti í Biskupstungum hefur verið heima.
Helgi Kristófersson Sogahlíð var í Garðyrkjuskólanum á Reykjum,
en Haukur, bróðir hans, mun hafa verið heima.
Haraidur Hjálmarsson frá Rima í Mjóafirði var íþróttakennari á
Norðfirði í vetur.
Hallgrímur Stefánsson frá Fitjum var við' nám í búnaðarskólanum
á Hvanneyri s. 1. vetur og kenndi leikfimi að einhverju leyti, ennfremur
kenndi hann skólapiltum sund.
Hallgrímur Eðvarðsson hefur unnið heima á Helgavatni í Vatnsdal,
er hann trúlofaður eða giftur húnvetnskri heimasætu.
Jón Halldórsson frá Arngerðareyri var að læra trésmíði á ísafirði.
Jónatan Jónsson frá Bergþórshvoli var í Kennaraskólanum s. 1.
vetur.
Jónas Björnsson frá Siglufirði hefur verið heima. Hefur átt við
vanheilsu að stríða.
Jón Gíslason Stóru-Reykjum var s. 1. vetur í Samvinnuskólanum,
síðan heima.
Jón G. Guðjónsson var í Kennaraskólanum.
Jónas Ingvarsson var hér í skólanum, en tók próf inn í Samvinnu-
skólann í vor.
Kjartan Ólafsson frá Strandseli var starfsmaður við Kaupfélag Ár-
nesinga.
Katrín Árnadóttir hefur verlð heima í Oddgeirshólum, en Sigríður,
systir hennar, hefur verið kennari í Vestmannaeyjum, en er heima á
sumrum.
Kjartan Sveinsson frá Fossi var starfsmaður við búnaðarskólann á
Hvanneyri, en Sveinn, bróðir hans, mun hafa verið heima á Fossi.
Kristján Jóhannesson hefur verið bílstjóri á strætisvögnum í Rvík.
Kjartan Karlsson vann við kaupfélagið á Djúpavogi.