Viðar - 01.01.1939, Page 170
164
PRÉTTIR AP LAUGVETNINGUM
[Viðar
Þorkell Sigurðsson frá Bár er á fornum stöðvum. Var formaður fyrir
samvinnufélagi (útgerð) á Snæfellsnesi.
Þórunn Bjarnadóttir frá Öndverðarnesi er gift Valdimar, kennara á
Spóastöðum, og búa þau þar.
Þorbjörg Eiríksdóttir frá Torfastöðum í Biskupstungum var í hús-
mæðraskóla á ísafirði, en annars heima s. 1. ár.
Þorlákur Guðmundsson á heima í Hveragerði. Er sjómaður á vetrum.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir frá Kroppi í Önundarfirði var ekki fyrir
löngu á saumastofu í Reykjavík, annars er erfitt að fá fregnir af
henni.
Þorgils Stefánsson úr Ólafsvík lauk námi í Kennaraskólanum s. 1.
vor, var heima í sumar.
Þórður Þorsteinsson frá Grund í Svínadal hefur verið heima, að því
er við bezt vitum.
Þórður Gíslason frá Torfastöðum í Grafningi var í Kennaraskólan-
um s. 1. vetur.
Þorbjörg Þórhallsdóttir frá Húsavík S.-Þ. vann við Kaupfélag Þing-
eyinga.
Þorsteinn Guðmundsson frá Þórarinsstöðum er afhendingamaður í
verzlunarbúð K.f. Árnesinga við Selfoss.
Guðmundur Ólafsson, kennari á Laugarvatni, var á kennaranámskeiði
í Askov í Danmörku í sumar. Perðaðist að því loknu dálítið í Dan-
mörku, Þýzkalandi og Noregi.
Pregna þessara er aflað á þann hátt, að nemendur úr ýmsum lands-
hlutum eru spurðir um þá félaga, sem líklegt þykir að þeir viti um.
Þá er leitað eftir, hvað kennarar vita um þá.
Látnir nemendur frá Laugarvatnsskólanum.
Nær þrjú ár eru liðin, síðan fréttir voru birtar af félögum í Nem-
endasambandi Laugarvatnsskólans. Á þeim tíma hefur dauðinn
höggvið furðu stórt og tilfinnanlegt skarð í æskumannahópinn, sem
hér hefur dvalið. Okkur er kunnugt um þessa:
Jón Sigurðsson frá Ásbjarnarstöðum á Sléttu lézt á heilsuhæli s. 1.
vetur. Hann fæddist 23. ágúst 1915. Var hér í skólanum veturinn
1933—1934.
Ingvar Guðmundsson frá Staðarbakka í Miðfirði dó af slysi s. 1. vor.
Hann var fæddur 5. júní 1915. Var í skólanum veturinn 1933—1934.
Björn Sigurjónsson frá Hörgshóli í Vestur-Húnavatnssýslu dó á árinu
1937. Hann hafði þá lokið námi í Kennaraskólanum. Hann var fæddur
4. ágúst 1914. Var í skólanum veturinn 1932—1933.
Davíð Atli Guðmundsson fró Þingvöllum andaðist eftir stutta legu