Viðar - 01.01.1939, Page 175
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
169
Tilhögun náms og kennslu.
Hún var um flest óbreytt frá fyrra ári. Bókleg kennsla fór fram
mest með viðtali og yfirheyrslum og skriflegum æfingum. Nám var
bundið að mestu, nema að nokkru í smd., með mjög litlum undan-
þágum. Frjáls var þátttaka í ensku. Piltar í y. d. fengu að velja
milli teikningar og söngfræði. Sú tilhögun var höfð vegna þess, hve
mjög var skipað á dag hvern yfirleitt. Stúlkum var ekki ætluð þátt-
taka sökum þess, hve saumanám þeirra var tímafrekara en smíða
nám pilta. í söng tóku þátt allir nemendur að 13 undanskildum.
Kennslan skiptist þannig á kennarana:
Leifur Ásgeirsson kenndi réttritun og málfræði í y. d. A, íslenzku í
e. d., reikning í y. d. B og e. d., mannkynssögu og eðlisfræði í e. d.,
ensku (framhaldsflokki) og las fornbókmenntir með b. d.
Konráð Erlendsson kenndi dönsku og landafræði í b. d. og reikning
í y. d. A.
Þórhallur Björnsson kenndi smíðar í öllum deildum og teikningu í
y. d.
Þorgeir Sveinbjarnarson kenndi í b. d. leikfimi og piltum sund,
íslenzku í y. d. B og ritgerð 1 y. d. A, heilsufræði í y. d. og sá um
útivist pilta.
Páll H. Jónsson kenndi söng í öllum skólanum, íslandssögu í y. d.,
þjóðskipulagsfræði og dýrafræði í b. d., söngfræði í y. d., las íslenzk
kvæði með b. d. og sá um útivist stúlkna. Ennfremur annaðist hann
afgreiðslu á bókasafni.
Hrefna Kolbeinsdóttir kenndi hannyrðir í b. d. og ensku byrjendum.
Bergþóra Davíðsdóttir kenndi sauma í b. d.
Erlingur Davíðsson sund stúlkum í b. d., svo og námsmeyjum Hús-
mæðraskólans sérstaklega.
Jóhannes Hjálmarsson kenndi íþróttir sem fyrr segir.
Námsgreinar, kennslustundafjöldi, námsbœkur.
(Stundatölurnar tákna vikulega kennslu, nema annars sé getið).
Yngri deild A og B.
islenzka. Réttritun 1 st., í B þó skipt að nokkru á alla íslenzku-
tímana. Stuðzt við Réttritunaræfingar eftir Friðrik Hjartar. — Mál-
fræði 2 st., notuð íslenzk málfræði eftir Bjöm Guðfinnsson, aðal-
áherzla lögð á beygingafræði. Skriflegar greiningar að staðaldri. —
Ritgerð 1 st., athugasemdir og greinargerð fyrir leiðréttingum heima-
stíla, er gerðir voru viku- til hálfsmánaðarlega.
Danska. 4 st. Kennslubók í dönsku eftir Jón Ófeigsson og Jóhannes
Si^fússon. Tveir flokkar, byrjendur og áleiðiskomnir. Byrjendur fóru
yfir I allt og II að bls. 99, hinir yfir II allt og III að bls. 48. Hvorir-