Viðar - 01.01.1939, Qupperneq 179
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
173
1. desember var haldinn hátíðlegur fyrir heimamenn. Afmæla
nemenda (18 ára afmæla stúlkna, tvítugsafmæla pilta) var minnzt að
vanda. — Engar langar skemmtiferðir voru farnar, enda flestir vegir
nærlendis ófærir bifreiðum um lengri tíma vegna fannalaga. Nær
allir þeir nemendur, er farið höfðu heim til sín í jólaleyfi komu aftur
á skíðum eftir nokkra töf frá þvi, er til stóð. Höfðu sumir af því
talsverðan kostnað, en m. a. þess vegna var í mesta lagi um skíði
á staðnum og varð þá hið sama um skíðaferðir, því að snjór hélzt
lengi, og landslag er til þeirra hentugt. Skíðakennari, Björgvin Júníus-
son frá Akureyri, dvaldi hér og kenndi íþrótt sína í tæpan hálfan
mánuð, en því miður var það seinna á vetri en skyldi. Verður von-
andi kostur hans eða annars góðs kennara á heppilegri tíma næst.
Um haustið var skólanum tilkynnt af þorra hinna stærri Reykja-
víkurblaða, er honum hafa verið send endurgjaldslaust um sinn, að
slík sending félli framvegis niður. Önnur blöð komu sem verið hafði.
Á góðu heilsufari voru nokkrir misbrestir. Inflúenza kom í skóla-
byrjun, að vísu fremur væg í fyrstu, en sennilega hefur í sumum til-
fellum búið að henni. Af skarlatssótt veiktust 2 nemendur (fullvíst
þó ekki nema um annan) og var beitt sóttvörnum. Þá voru og ein-
stæð tilfelli, meiri og minni, og ollu sum töluverðum vanhöldum á
námi. Nálega allt fólk á staðnum hafði með sér sjúkrasamlag,
óstyrkt af almannafé.
Nemendur allir nema 4 og nokkur hluti kennaraliðs var í mötu-
neyti skólans. Dagsfæðiskostnaður, — hreinlætisvörur og ljós í íbúð-
um meðreiknað, — varð kr. 1,45 fyrir pilta, kr. 1,15 fyrir stúlkur.
Nemendur þvo sjálfir þvott sinn og annast að mestu ræstingu húsa,
hvorttveggja undir eftirliti, en vinna eigi að beinum eldhússtörfum.
Piltar fá gerðar nauðsynlegar viðgerðir á fötum og greiða 5 kr. í
þjónustugjald.
Umbœtur.
Frá því er síðasta skýrsla var samin, hefur allmikið verið lagað
innan húsa, einkum íbúðin á lofti leikfimihússins, er nú loks hefur
hlotið nokkurnveginn fullan frágang. — Fyrir atbeina Hákonar Bjarna-
sonar skógræktarstjóra fékk skólinn ókeypis 1000 furuplöntur og
talsvert af birkifræi úr Bæjarstaðarskógi, er að mestu var komið fyrir
í skógræktarlandi skólans. Nokkuð af birkiplöntum var og fengið úr
Vaglaskógi. — Flokkur manna frá Sambandi þingeyskra ungmenna-
félaga vann einn dag í vor að lagfæringu á brekkunni við Reykjadalsá.
Nú um allmörg ár hefur ekki orðið ráðizt í nýjar framkvæmdir
í verulegum mæli vegna örðugs fjárhags. Nú er þó einhver umbót á
húsakosti mjög aðkallandi. Er þannig auk annars aðstaða til verk-
legs náms of þröng. miðað við hug manna í því efni nú og fjölda