Viðar - 01.01.1939, Page 199
Viðar]
Reykjaskóli, Hrútafirði.
Skólaskýrsla 1938-39.
Skólinn var settur viku síðar en venja er til sökum veikinda i
héraðinu.
Aðalkennaralið skólans var óbreytt frá því í fyrra, en tveir nýir
menn störfuðu við skólann nokkurn tíma í vetur. Það voru þeir
Jónas Benónýsson frá Borðeyri og Þorvaldur Jónsson frá Þorpum
við Hólmavík. Jónas kenndi bókfærslu, en Þorvaldur skósmíði. Þátt-
taka var mikil í hvoru tveggju og ánægja með þessa viðbót við starf-
semi skólans. í vetur var einnig í fyrsta skipti kennd þýzka. Þá
kennslu annaðist sr. Jón Guðnason. Tími til handavinnu var nokkuð
aukinn og var mjög mikið unnið í allskonar saumi, smíðum og skó-
viðgerðum.
Að öðru leyti var kennslu hagað líkt og í fyrra og vísast þar til
þeirrar skólaskýrslu.
Kennslutími skiptist þannig á námsgreinar. (Bóklegir tímar fyrir
hádegi stóðu í 40 mínútur):
íslenzka og bókmenntasaga ................ 6 st. e. d. 6 st. y. d.
íslandssaga .............................. 1 — -------- 2 — ----
Landafræði ........................... 2 — ---------- 1 — ---------
Reikningur ........................... 4 — ---------- 4 — ---------
Eðlisfræði ........................... 2 — ---------- 0 — ---------
Náttúrufræði ......................... 1 — ---------- 1 — ---------
Félagsfræði .......................... 1 — ---------- 1 — ---------
Heilsufræði .......................... 0 — ---------- 1 — ---------
Danska ............................... 3 — ---------- 3 — ---------
Enska ................................ 3 — ---------- 3 — ---------
Þýzka .................................... 3 — -------- 3 — ----
Teikning ................................. 1 — -------- 1 — ----
Skrift ............................... 0 — ---------- 1 — ---------
Upplestur og fyrirlestrar nemenda ........ 1 — -------- 1 — ----
Handavinna, piltar ................... 6—8 — -------- 6—8 — -------
Handavinna, stúlkur .................. 8 — ---------- 8 — ---------
Leikfimi og sund, stúlkur ................ 9 — -------- 9 — ----
Leikfimi og sund, piltar ................. 9 — -------- 9 — ----
Söngur ................................... 8 — -------- 8 — ----
Á meðan bókfærslukennslan stóð yfir, voru ýmsar námsgreinar
lagðar niður til þess að koma henni að.
Erlend mál eru ekki skyldunámsgreinar, og þátttaka í þeim ekki
13