Birtingur - 01.01.1962, Blaðsíða 35
fjallvegur að baki og gömul hús í bland
við ný: Flateyri, á tanga út í sjó, húsa-
sund með sjálfstæðum skugga, blátt haf
neðar, rauð bauja. Fyrir endanum á öðru
sundi stendur hinn virðulegi öldungur
staðarins skreyttur kynlegum heiðurs-
merkjum nútímans: hið gamla verzlunar-
hús Kaupfélags önfirðinga, nú rusla-
kompa. Húsið reisti Hjálmar nokkur Jóns-
son frá Isafirði, húsasmiður og kaupmað-
ur í einni persónu, og líklega er hann
sjálfur höfundur þess. Á Flateyri er raun-
ar eitt hús eldra, svokallað Torfahús, en
svo breytt að ógerlegt er að greina upp-
runalega gerð þess. Af gamalli mynd sem
ég sá er þó auðséð, að þar hefur verið um
sérstæða húsgerð að ræða. Gamla kaup-
félagshúsið er ótrúlega lítið breytt frá
fyrstu gerð, til dæmis er allt með réttum
ummerkjum uppi á lofti, og- niðri eru
búðarborð og skúffur með upphaflegu
sniði. Fyrir tiltölulega lítið fé mætti korna
húsinu í rétt horf. Myndi það sóma sér
vel sem byggðasafn önfirðinga og stað-
arprýði.
Hugsa sér þennan fínmeitlaða bergvegg Ljósmyndir: Skarphéðinn Haraldsson
hérna handan Skutulsfjarðareyrar og Teikningar: Horður Águstsson
endurkast hans aðeins dekkra í stafa-
logni, veðramunstur. ísafjarðarkaupstaður
er undarlegt pláss, í aðra röndina eins og
safn til byggingarsögu Islands allt frá síð-
ari hluta átjándu aldar, þar sem lesa má
svipi húsa frá helztu skeiðum sögu okkar
eftir að timbur varð aðal byggingarefni
hérlendis — heillandi verkefni fyrir þá
sem unna hinni vanmetnu grein, bygging-
arlistinni.
I Neðstakaupstað, eins og Isfirðingar
Birtingur 29