Birtingur - 01.01.1962, Blaðsíða 82
Soulages: Málverk
kenndur er við Saint Germanin des Pres
og var atkvæðamikill fyrstu árin eftir
seinni heimsstyrjöldina. Myndir Bryen
eru líkastar keðjusprengingum í litheim-
um: smáir litfletir byltast og brotna,
stíga og hníga, engin sjáanleg heildar-
formskipan, en innri stemning ber mynd-
ina uppi.
D e S t a el er eins og Wols dæmi um
mann, sem þreytir kvíðafulla leit að nýj-
um gildum, sem við nútímamenn getum
treyst, þegar flestum fornum dyggðum
hefur verið kastað fyrir róða, en hann er
miklu stærri í sniðum og dramatískari.
Áköf leit, veraldleg örbirgð oftast nær,
hlaup um álfuna, örstutt frægðarskeið,
snöggur sorglegur dauði: kastar sér út
um glugga á vinnustofu sinni í fullkom-
inni örvæntingu um að finna sjálfan sig
í öngstræti. Þannig var hans hlutskipti.
Skömmu eftir dauða hans var efnt til
sýningar á verkum hans í Nútímalista-
safninu í París (1957). Ég var svo hepp-
inn að sjá þessa sýningu, og hún líður
mér seint úr minni: stórbrotin skapgerð
og miklar gáfur í hamförum nýrrar ald-
ar. De Stael nálgast í myndum sínum
með einhverjum hætti norrænan express-
jónisma, sérstaklega í áferð og tækni,
breiðum næstum grófum pensil- eða
spaðaformum, en litaskali hans er allt
annar, mildari hlýrri, ekki eins skær og
skerandi og hann er oft hjá Norðurlanda-
búum og Þjóðverjum. De Staál er slavi:
fæddur í Pétursborg árið 1914 af her-
mannaættum. 1919 flýr fjölskylda hans
byltinguna og sezt að í Póllandi, þar deyr
faðir hans. De Stael og systur hans
76 Birtingur