Birtingur - 01.01.1962, Blaðsíða 75
nýjar sjóndeildir. En þegar það hefur tek-
izt, fer fregnin eins og logi um akur, og
endar þá stefnan stundum í tízku. Menn
hyggi að því, að þrír þeirra manna sem
ég nefndi eru fæddir fyrir aldamót, einn
1901, einn 1904, Á því sést að hér eru
ekki neinir ábyrgðarlausir unglingar að
verki, ef einhverjum kynni að vera hugg-
un í því.
F a u t r i e r er fæddur í París árið 1898.
Á ellefta ári fluttist hann til Englands,
og fjórtán ára innritaðist hann á Kon-
unglega listháskólann í Lundúnum. Árið
1917 er hann kvaddur til herþjónustu og
snýr aftur til Frakklands. Eftir fyrri
heimsstyrjöldina tekur hann sér bólfestu
í París. Á kreppuárunum neyðist hann
til að yfirgefa höfuðborgina og hverfur að
þvi ráði að gerast hótelstjóri og skíða-
kennari í Frönsku Ölpunum, dvelst þar
til 1939. Síðan 1942 hefur liann búið í
einni af útborgum Parísar: Chatenay.
Fautrier er sveipaður ljóma þjóðsögunn-
ar: erfitt er að afla sér fræðslu um ævi
hans, hann sýnir aldrei á samsýningum,
sjaldan á listsal, kemur hvergi. En sumir
mestu rithöfundar eða skáld Frakka hafa
rómað hann í riti, menn eins og Malraux,
Paulhan og Ponge og ekki skörið lofið við
Fautrier: Tóma dósin
Birtingur 69