Birtingur - 01.01.1962, Blaðsíða 93
stóru flatarspili. Eða hafið þið séð,
hvernig ölfusárósar verða að fínofnum
línusinfón, Berserkjahraun að nýstorkn-
aðri iithugsun? f einni svipan getur auga
þitt orðið flugtæki og svifið yfir mosa-
skóf eða asfaltmöskva götunnar.
Án þekkingar á sjálfum þér, án hug-
sæis, án hugmyndaflugs, án þeirrar get-
speki, að allir hlutir séu sömu ættar, að
eitthvað sé handan sérhverrar athafnar,
fjölbreytilegt, djúpt, ókannað, mikilúð-
Iegt, öðlast maðurinn aldrei andlegt líf,
án þess eykur hann aldrei skynmátt sinn..
Þessi furðuheimur, sem birtist þér úr
flugvél, birtist einnig fyrir tilstilli hugar-
flugs, og það er meðal annars fyrir at-
beina þess, að þér er léð hlutdeild í sýn
flugmannsins; menn skynja fyrirfram á
þess vegum það, sem seinna verður séð
berum augum. Síðan hefst keðjuverkan:
hinn innri maður vaknar, og veröldin
birtist honum í nýju Ijósi, og kraftur
opinberunarinnar er svo mikill, að hann
vígir manninn til enn fyllra lífs. Og í dag.
opnast þessi heimur líkt og guðspekin '
kennir, og flugmaðurinn sér: streymandi
vefjamunstur, litbárur, aðfall, útfall fín-
gerðra sjóneininga, hann rís upp þessi
flötur, steypist yfir þig, gegnum þig, þá
ert þú kannski hann, og þessi flötur þú.
Birtinguv 87