Morgunblaðið - 11.08.2012, Page 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Að fá að taka þátt ístærstu skartgripasýn-ing í Evrópu, er frábærttækifæri fyrir mig,“ seg-
ir gullsmiðurinn Berglind Snorra
sem er þátttakandi í sýningu úti í
Kaupmannahöfn sem nú stendur
yfir og heitir Brand New Copen-
hagen. Þar sýnir Berglind vöru-
línu sem hún kallar Uppsteyt og
hefur unnið við og þróað
undanfarin þrjú ár.
„The Danish Jewellers Asso-
ciation valdi tíu þátttakendur úr
fjölda umsókna og ég er sann-
arlega ánægð með að hafa verið
valin úr þeim stóra hópi til að vera
á sýningunni. Markmiðið með því
að fá þessa tíu inn á sýninguna er
að styðja við unga upprennandi
hönnuði sem eru að stíga sín
fyrstu skref á markaðnum. Þetta
er ungt fólk sem kemur allstaðar
að frá Evrópu,“ segir Berglind og
bætir við að á sýningunni gefist
henni kostur á að kynna vörulín-
una sína fyrir nýjum og stærri
markaði. „Þetta er sölusýning og
þeir sem eru með verslanir um
alla Evrópu koma hingað og skoða
nýja skartgripi. Í ár er sýningin í
fyrsta sinn tengd fataiðnaðinum og
það kemur vel út að blanda saman
tískusýningum og skartsýningum.“
Í gullsmíði frá því hún
var aðeins fimmtán ára
Berglind segist ekki vita til að
Íslendingur hafi áður tekið þátt í
þessari stórsýningu og er því að
vonum stolt af því að vera fyrst.
Hún er lærður gullsmiður en einn-
ig húsgagna- og vöruhönnuður.
„Fyrir vikið hanna ég ekki aðeins
og smíða skartið sem ég sýni hér,
heldur hanna ég líka alla umgjörð-
ina. Ég hanna umbúðirnar, sýning-
arstandana og bæklingana, ég sé
um alla grafíkina,“ segir Berglind
sem útskrifaðist úr gullsmíði árið
2003 og útskrifaðist sem hús-
gagna- og vöruhönnuður árið 2007.
Hún hefur mikla reynslu af gull-
smíði því hún hefur verið viðloð-
andi hana frá því hún var fimmtán
ára, því stjúpafi hennar var Jens
gullsmiður sem nánast allir Íslend-
ingar þekkja. „Jens var giftur
ömmu minni og pabbi er gull-
smiður og hann vann alla tíð með
honum og er enn í fyrirtækinu. En
ég ætlaði aldrei að verða gull-
smiður, af því mér fannst pabbi
Ætlaði aldrei að
verða gullsmiður
Hún var ein af þeim tíu ungu og upprennandi skartgripahönnuðum sem fengu að
sýna á Brand New Copenhagen nú um helgina. Hún er í útrás, skartgripalínan
hennar, Uppsteyt, er til sölu í einni verslun í London og annarri í Manchester.
Í Köben Berglind stoltur þátttakandi í sýningunni Brand New Copenhagen.
Nokkrar elskulegar manneskjur
ætla að gleðjast saman á Gay
Pride og reyna að koma fal-
legum fatnaði og fylgihlutum til
nýrra eigenda sem gætu gefið
þeim meiri ást en þau búa við
núna.
Þar verða ýmsar gersemar:
Dýrindis fatnaður frá Alexander
McQueen, Peter Jensen, Mini-
market, Marc by Marc Jacobs,
Beyond the Valley, Miu Miu o.fl.
Svo eru vel valdir vintage-
fjársjóðir og lítt nýttar og fal-
legar flíkur frá Topshop, Zöru og
fleiri vel þekktum verslunum.
Eitthvað verður í boði fyrir alla
og verður markaðurinn opnaður
klukkan 12:30.
Endilega …
… kíkið á dýr-
indis fatnað
Morgunblaðið/Ómar
Gersemar Fatamarkaður fyrir alla.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
Roki og rigningu fylgir einhver kósí
heimatilfinning. Mann langar að
hringa sig upp í sófa með góða bók
eða pára niður hugmyndir að því sem
mann langar til að fyrir heimilið til að
fegra það og bæta. Vefsíðan coy-
homeblog.com er full af fallegum
lausnum fyrir heimilið sem miða að
því að gera notalegt í kringum sig.
Á síðunni gefur t.d. að líta mjög
falleg hekluð teppi sem gæti gefið
hugmynd að fallegu mynstri fyrir
heklfæra. Ekki er nú amalegt að hlýja
sér undir slíku svona síðsumars.
Fleiri fallegum hlutum hefur verið
sankað saman á vefsíðunni; vegg-
fóðri, hillum, snögum, plötuspil-
urum … Fínar myndir af hlutunum
eru á síðunni og einnig tenglar á
ýmsar greinar og hugmyndir sem
geta reynst vel þegar þú vilt taka til
hendinni og breyta og bæta heima
fyrir.
Vefsíðan www.cosyhomeblog.com
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kósí Hér væri ekki slæmt að sitja og lesa bók í rigningu og roki.
Kósí og fallegt heima fyrir
Fylling
½ kg rabarbari
½ kg jarðarber, frosin eða ný
3 dl hrásykur
½ tsk kanill
½ tsk engifer
Deigið
1 bolli olía
1½ dl hrásykur
50 g hakkaðar möndlur
½ tsk kanill
½ tsk engifer
150 g haframjöl
Aðferð:
Stráið sykri og kryddi yfir ávextina
og látið liggja í klst. í forminu. Bland-
ið vel saman kryddi, möndlum og
haframjöli og þéttið vel yfir ávextina í
forminu. Bakið við 175-180°C þar til
deigið er orðið gyllt á litin. Dásamlegt
að bera fram með ís og/eða þeyttum
rjóma. Þessa uppskrift er að finna á
vefsíðunni www.lifandimarkadur.is.
Síðsumarsuppskrift
Rabarbarapæ með jarðarberjum
Hráefni Gott er að gera pæ með rabarbara og jarðarberjum.
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Í samræmi við lög nr. 152/2009 með áorðnum breytingum er fyrirtækjum sem stunda
rannsóknar- og þróunarstarf gefinn kostur á að sækja um skattfrádrátt af tekjuskatti
í tengslum við slík verkefni. Fyrirtæki sem ekki greiða tekjuskatt fá samsvarandi
endurgreiðslu.
Rannís leggur mat á hvort umsóknir uppfylli skilyrði laganna og tilkynnir viðkomandi
fyrirtækjum um niðurstöðuna auk tilkynningar til Ríkisskattstjóra. Sótt er um á slóðinni
http://rannis.is/sjodir/skattivilnun/ „Rafræn skráning umsóknar“.
Á heimasíðu Rannís er handbók með leiðbeiningum og upplýsingum um umsóknar-
ferlið, en þar má einnig finna fyrrgreind lög auk reglugerðar.
Frekari upplýsingar veita starfsmenn Rannís í síma 515 5800.
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og
framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda-
og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s.
Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
Umsóknarfrestur til 1. september
Skattfrádráttur
rannsóknar- og þróunarkostnaðar
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
gr
af
ís
k
hö
nn
un
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.