Morgunblaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 36
36 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
Það verður haldintvö hundruðmanna veisla í fé-
lagsheimilinu hér í Bol-
ungarvík,“ segir Sig-
urður Gíslason á Hóli
sem í dag heldur upp á
níræðisafmæli sitt en
veisluhöld hefjast klukk-
an 17 og lýkur þeim
klukkan 23 í kvöld.
Óhætt er að lofa miklu
fjöri því líkt og í öllum
betri veislum verður
haldin vegleg flug-
eldasýning sem vinir
hans í björgunarsveitinni
standa fyrir en að auki
mun tónlistarmaðurinn
Baldur Geirmundsson
halda uppi fjörinu með
harmonikkuleik.
Sigurður er fæddur og
uppalinn í Bolungarvík en á langri ævi sinni hefur hann komið víða
við og m.a. starfað sem húsasmiður í 25 ár. „Ég var í ellefu ár í Borg-
arnesi sem byggingarmeistari og byggði þar ýmsar frægar bygg-
ingar á borð við kirkjuna, hótelið og kaupfélagið svo fátt eitt sé
nefnt,“ segir Sigurður. Þá má einnig nefna að við lok árs 1959 fluttist
hann til Svíþjóðar þar sem hann lagði stund á tækninám í Háskól-
anum í Lundi. Að námi loknu, árið 1963, réðst hann til starfa á Teikni-
stofu Sambandsins þar sem hann starfaði í þrjú ár, eða til ársins 1966,
er hann hóf störf sem tæknifræðingur á tæknideild Kópavogsbæjar.
Hjá Kópavogsbæ vann hann í alls 27 ár.
Eftir að hafa haldið upp á sjötugsafmæli sitt fluttist Sigurður aftur
til Bolungarvíkur. Ákvað hann þá að kaupa sér trillu í stað þess að
setjast í helgan stein og lét þannig gamlan draum rætast. „Ég var bú-
inn að ganga með þetta í maganum frá því að ég var strákur að eign-
ast trillu en aldrei haft tækifæri til þess,“ segir Sigurður og bætir við
að sá tími sem hann átti á sjó hafi verið honum mjög kærkominn og
ánægjulegur. „Þetta var algjör draumur.“
Nú tuttugu árum síðar er trillan löngu seld en Sigurður er hins veg-
ar enn í fullu fjöri og t.a.m. mjög iðinn við að renna ýmsa smíðisgripi
og er vert að geta þess að gripirnir verða til sölu í veislunni og mun
söluandvirðið renna óskipt til Líknarsjóðs Lionsklúbbs Bolung-
arvíkur. Að auki verður til staðar samskotabaukur til styrktar starf-
inu. khj@mbl.is
Sigurður Gíslason fagnar níræðisafmæli
Veisluhöld, þanin
nikka og skoteldar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Keflavík Guðmundur
Óskar fæddist 6. nóv-
ember kl. 15.16. Hann
vó 4.250 g og var 52
cm langur. Foreldrar
hans eru Harpa Dögg
Kristjánsdóttir og
Þórir Sigfússon.
Nýir borgarar
H
erdís Anna fæddist á
Akureyri og ólst þar
upp en dvaldi flest
sumur á Gautlöndum í
Mývatnssveit.
Hún var í Barnaskóla Akureyrar,
Gagnfræðaskóla Akureyrar, lauk
stúdentsprófi frá MA 1982, stundaði
fiðlunám frá níu ára aldri við Tónlist-
arskóla Akureyrar, lauk fiðlukenn-
aranámi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1986, skipti þá yfir á víólu
og lauk þaðan prófi í víóluleik 1987.
Hún hóf nám við Tónlistarháskólann í
Stuttgart 1988 og lauk þaðan MA-
prófi í víóluleik 1992. Þá lauk Herdís
prófum utanskóla sem leiðsögumaður
frá Leiðsögumannaskóla Íslands 1992.
Herdís lék með ýmsum hljóm-
sveitum í Þýskalandi á námsárunum
og hefur verið fastráðinn víóluleikari
við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá
1995. Hún leikur nokkuð reglulega
með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
og með Óperunni, hefur leikið með
Kammersveit Reykjavíkur, Dísunum
og ýmsum kammerhópum, hér á landi
og erlendis.
Töfraveröld Dúó Stemmu
Herdís og eiginmaður hennar,
Steef van Oosterhout, hafa komið
fram undir heitinu Dúó Stemma frá
1999 og flutt efnisskrána „Töfra-
veröld tóna og hljóða“. Þetta er
skemmtileg og fræðandi barna-
dagskrá með stuttri hljóðfærakynn-
ingu og „hljóðsögum“, krydduðum
hljóðum og tónum frá margvíslegum
hljóðgjöfum og hljóðfærum. Spiluð
Herdís A. Jónsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhlj.sv. Íslands – 50 ára
Fjölskylda á fjöllum Steef, Herdís, Jakob og Tómas á Mælifellshnjúki í Skagafirði í síðustu viku.
Músíkalska fjallageitin
Dúó Stemma Hjónin Herdís og Steef í tilþrifamikilli sveiflu við túlkun sína
á „Töfraveröld tóna og hljóða“ í Norræna húsinu.
Sjáðu
Við erum flutt
Sjáðu, Hverfisgötu 52, 101 Reykjavík
Sími: 561-0075 - sjadu.is
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is