Morgunblaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
Á morgun, 12. ágúst, kl. 16 halda
þeir Matthías Ingiberg Sigurðsson
klarínettuleikari og Christos Pap-
andreopoulos píanóleikari tónleika
í Selinu á Stokkalæk.
Efnisskráin er fjölbreytt og á
henni má finna bæði einleiksverk
fyrir klarínettu og verk fyrir klar-
ínettu og píanó eftir Johannes
Brahms, Francis Poulenc, Þorkel
Sigurbjörnsson, Béla Kóvacs og
bandaríska tónskáldið Nick Nor-
ton. Verkið Nightttt Loops, fyrir
klarínettu, rafhljóð og píanó, sem
Norton samdi sérstaklega fyrir
Matthías, verður frumflutt á tón-
leikunum.
Klarínetta Matthías Ingiberg Sig-
urðsson leikur í Selinu á Stokkalæk.
Klarínetta og píanó í Selinu, Stokkalæk
Inside Iceland nefnist sýning á
ljósmyndum Ástþórs Magnússonar
sem verður opnuð í dag kl. 13 í
hliðarsal Gallerís Foldar. Ástþór
nam tísku- og auglýsinga-
ljósmyndun við Medway College of
Art and Design í Bretlandi og rak
ljósmyndastofu og framköll-
unarfyrirtæki í mörg ár. Á sýning-
unni má m.a sjá nýjar ljósmyndir,
teknar inni í Þríhnjúkagíg sem
teknar eru með nýrri tækni sem
Ástþór kallar glöggmynd en sér-
stakri „Glögg“ er hellt yfir mynd-
irnar til að gefa þeim meiri dýpt
og skerpa á öllum litum, að sögn
Ástþórs. Glöggin myndar glerjung
á myndunum sem ver þær til
framtíðar og gerir að verkum að
þær endast í yfir 200 ár án nokk-
urrar upplitunar, að sögn Ástþórs.
Þá verða sýndar ljósmyndir sem
hann tók af eldgosinu í Vest-
mannaeyjum árið 1973 fyrir
Sunday Times. Ljósmyndabók eft-
ir Ástþór, Inside Iceland, a jour-
ney into the volcano and more,
kemur út við sýningaropnun.
Morgunblaðið/Eggert
Ljósmyndari Ástþór Magnússon.
Ástþór Magnússon sýnir í Gallerí Fold
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
Óskar Guðjónsson saxófónleikari og
brasilíski gítarleikarinn Ife Tolent-
ino leika brasilíska bossanova-tónlist
ásamt Eyþóri Gunnarsyni píanóleik-
ara og Matthíasi Hemstock trommu-
leikara í djasstónleikaröð Hörpu á
veitingastaðnum Munnhörpunni í
dag kl. 15. Næstu tónleikar á dag-
skrá hjá Óskari og Tolentino eru svo
í gróðurhúsinu við Norræna húsið
en þar halda þeir átta tónleika í röð,
dagana 21. til 28. ágúst, og hefjast
þeir allir kl. 22.
Óskar og Tolentino hafa komið
fram á fjölda tónleika hér á Íslandi
en í haust er væntanleg hljómplata
frá dúettinum. Eyþór, Matthías og
Ómar Guðjónsson eru einnig meðal
flytjenda á hljómplötunni.
Hljómar eins og smjör
„Einhvers staðar verður maður að
setja punkt fyrir aftan setningarnar
sínar og það var bara kominn tími á
það. Mér leið þannig að ég væri
kominn á þann stað að ég gæti spilað
þetta þannig að það væri hægt að
þrykkja tónlistina á form sem verð-
ur til að eilífu,“ segir Óskar, spurður
að því hvað hafi komið til að þeir Ife
ákváðu loks að setja tónlistar-
samstarfið á varanlegt form.
„Það eru tólf ár síðan ég kynntist
Ife og við erum fyrst að gefa út plötu
núna, þannig að þetta er án efa bú-
inn að vera stöðugur og endalaus
lærdómur,“ segir Óskar
„Það er einhver mýkt í tónlistinni
sem er ekki bara einhver hending.
Hún er þrælerfið og ofsalega flókin.
Síðan hljómar hún einhvern veginn
allt öðruvísi í eyrunum á manni þeg-
ar maður byrjar að spila. Þetta
hljómar bara eins og smjör,“ segir
Óskar.
„Ást við fyrsta tón“
„Eitt af því sem var efst á listan-
um hjá mér að gera í stórborginni
þegar ég flutti til London ásamt
konunni minni var að hitta Bras-
ilíumann,“ segir Óskar, sem hann og
gerði. „Við Ife grínumst stundum
með það að þetta hafi verið ást við
fyrsta tón. Við urðum strax alveg
ofsalega góðir vinir,“ segir Óskar.
Tónlistarástin hefur verið gagn-
kvæm. „Ég varð strax ástfanginn af
hjómnum hans og tilfinningu fyrir
tónlistinni og ég held að hann hafi
strax orðið ástfanginn af brasilísku
tónlistinni,“ segir Tolentino. „Tón-
listarmennirnir sem ég hef starfað
með hérna hafa einstakan hljóm sem
ég held að ég hafi ekki heyrt neins
staðar annars staðar í heiminum. Á
marga vegu er það betra að spila
brasilíska tónlist með tónlistar-
mönnum sem eru ekki frá Brasilíu
vegna þess að þeir fylgja tilfinning-
unni í tónlistinni, og þeir koma með
eitthvað nýtt og ferskt inn í hana,“
segir Tolentino.
Á væntanlegri hljómplötu Óskars
og Tolentinos flytja þeir bossanova-
tónlist eftir ýmsa þekkta brasilíska
tónlistarmenn en Tolentino segir
það vera í bígerð að gefa út plötu
ásamt Óskari og öðrum íslenskum
tónlistarmönnum með frumsömdu
efni. Tolentino vinnur nú einnig að
gerð hljómplötu þar sem hann flytur
bítlalög með brasilísku ívafi en Ósk-
ar, Ómar og Eyþór koma einnig
fram á þeirri plötu.
Fyrsta hljómplatan eftir
tólf ára tónlistarsamstarf
Óskar og Tolent-
ino spila á níu tón-
leikum nú í sumar
Dúettinn Eftir tólf ára tónlistarsamstarf og fjölda tónleika er komið að
fyrstu hljómplötu Óskars saxófónleikara og Tolentinos gítarleikara.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar ı Þjónustu- og símaver 411 1111 ı www.reykjavik.is
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir þátttakendum í sérstakt þróunar- og
tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) á þjónustusvæði
Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar.
Boðið er upp á NPA til reynslu til samræmis við framtíðarsýn borgarinnar í þjónustu við
fatlað fólk en þar er lögð áhersla á að borgarbúar sem þurfa aðstoð í daglegu lífi hafi
val um hvernig þeirri aðstoð sé háttað. Með því að gera samning um NPA fær notandi
greiðslur í stað þjónustu, velur aðstoðarfólk, er verkstjórnandi, ákveður sjálfur hvað hann
vill gera og hvernig aðstoðarfólk nýtist.
Unnið er að gerð reglna um tilraunaverkefnið og verða umsóknir afgreiddar þegar þær
reglur hafa verið samþykktar og tekið gildi. Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða verður
horft til fjölbreytni í vali á þátttakendum í verkefnið.
Í tilraunaverkefninu er gert ráð fyrir að þeir sem eiga lögheimili í Reykjavík eða á
Seltjarnarnesi og falla undir lög um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992 með síðari
breytingum, eru á aldrinum 18-66 ára og þurfa daglega aðstoð geti tekið þátt. Foreldrar
fatlaðra barna sem þurfa daglega aðstoð geta sótt um fyrir hönd barna sinna.
Vakin er athygli á því að:
Um þróunarverkefni er að ræða en gert er ráð fyrir lögfestingu NPA árið 2014.•
Afgreiðsla umsókna getur tekið allt að sex mánuði.•
Grundvallarskilyrði fyrir samningi um NPA er að velferðarþjónusta sem veitt er á•
grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks og félagsþjónustu sveitarfélaga fellur niður,
enda kemur NPA í stað þessara þjónustuþátta.
Þjónustumiðstöðvar borgarinnar taka á móti umsóknum og veita upplýsingar og ráðgjöf
um ferli umsókna. Samvinna er höfð við umsækjendur við mat á stuðningsþörf, gerð
samkomulags og samnings um NPA. Umsækjendur eiga rétt á að tilnefna sér talsmann
vegna umsóknarferilsins sé þess óskað. Umsóknarfrestur er til og með 10. september nk.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast á þjónustumiðstöðvum
og á vef Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is.
Notendastýrð
persónuleg aðstoð
Þríeykið geðþekka Trio Lyrico
leikur á tónleikum á Gljúfrasteini á
morgun kl. 16.
Tríóið samanstendur af Ástu
Maríu Kjartansdóttur sellóleikara,
Ingileif Bryndísi Þórsdóttur píanó-
leikara og Lilju Guðmundsdóttur
sópransöngkonu. Á tónleikaskránni
má finna bæði íslensk og erlend
verk í útsetningum fyrir píanó,
selló og sópransöng.
Stofutónleikar í húsi skáldsins
hafa verið haldnir einu sinni í viku í
allt sumar og heppnast vel. Næst á
dagskránni eru Arnhildur Val-
garðsdóttir píanóleikari og síkáta
kammerpoppsveitin Melchior. Upp-
lýsingar á gljufrasteinn.is.
Tríó Ásta María, Ingileif og Lilja skipa Trio Lyrico.
Stofutónleikar Trio Lyrico
Um helgina flytja Valdís G. Greg-
ory sópran og Bragi Jónsson bassi
íslensk einsöngslög í Hörpu. Tón-
leikarnir eru hluti af tónleikaröð í
Kaldalóni í Hörpu sem haldin er
með það að markmiði að kynna ís-
lenska söngtónlist. Á tónleikunum
verða flutt lög á borð við Drauma-
landið og Í fjarlægð svo tónleika-
gestir ættu að kannast við bróður-
part dagskrárinnar. Þriðjungur
Trio Lyrico sér svo um undirleik en
þar er á ferðinni píanóleikarinn
Ingileif Bryndís Þórsdóttir.
Íslensk söngtónlist kynnt í Kaldalóni