Morgunblaðið - 11.08.2012, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
VINNAN
VERÐUR
SVO MIK
LU
SKEMM
TILEGRI
!
Dynjandi hefur úrval af
heyrnahlífum frá 3M.
Komdu og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Háskólanám á sviði skapandi greina
Nám í alþjóðlegum fagháskólum er einstakt
tækifæri til að kynnast suðupotti hugmynda, með
stefnum og straumum víða að úr heiminum.
Í boði er hagnýtt nám, sem sameinar frumkvæði,
hugmyndir og tækni og er í góðum tengslum við
alþjóðleg fyrirtæki.
Nemendur hafa aðgang að vel búnum rannsókn-
ar- og vinnustofum og kennarar eru reyndir
sérfræðingar hver í sinni grein.
Háskólanám erlendis í hönnun, sjónlistum,
stjórnun, eða tísku opnar einnig möguleika á að
hitta rétta fólkið og komast áfram á alþjóðlegum
markaði.
Dæmi um nám í boði:
Fatahönnun • Tískumarkaðsfræði • Tískustílisti • Skartgripa-
hönnun • Grafísk hönnun • Listræn stjórnun • Ljósmyndun
Kvikmyndagerð • Margmiðlun.
Arkitektúr • Innanhússhönnun • Ljósahönnun • Húsgagna-
hönnun • Vöruhönnun • Umbúðahönnun • Viðburðastjórn
Viðskiptafræði • Markaðssamskipti.
ENGLAND • ÍTALÍA • KANADA • KATALÓNÍA • SKOTLAND • SPÁNN
Samstarfsskólar:
Istituto Europeo di Design (Italia, Spain and Catalunia)
Arts University College Bournemouth • Bournemouth University
University of the Arts London (England)
The Glasgow School Of Art (Scotland)
Acadia University (Nova Scotia)
Tónlistarhátíðin Pönk á Patró verð-
ur haldin á morgun í fjórða skipti.
Pönk á Patró er eins og nafnið gef-
ur til kynna haldin á Patreksfirði og
fer fram í Sjóræningjahúsinu svo-
kallaða. Um er að ræða tónlist-
arhátíð fyrir alla fjölskylduna en
dagurinn hefst á tónlistarsmiðju
fyrir börn og unglinga þar sem
Prinspóló sér um fjörið.
„Yngstu þátttakendur hafa verið
alveg niður í fjögurra ára en þá eru
mamma og pabbi yfirleitt skammt
frá. Flestir krakkarnir eru á aldr-
inum sjö til tíu ára, sá hópur virðist
hafa mest gaman af þessu,“ segir
Jóhann Ágúst Jóhannsson, skipu-
leggjandi hátíðarinnar. „Unglingar
mæta alveg og fylgjast með en eru
kannski ekki alveg jafnvirkir í að
taka þátt. Þeim finnst svo sér-
staklega gaman að mæta á tón-
leikana um kvöldið,“ bætir hann við
og bendir á að ekki sé nauðsynlegt
að skrá börnin til leiks, nóg sé að
mæta á svæðið.
„Sjóræningjahúsið er opið frá kl.
11 um morguninn og tónlistar-
smiðjan hefst á slaginu eitt,“ segir
Jóhann en að smiðjunni lokinni
verður þáttakendum boðið á tón-
leika með Prins póló sem leikur
einnig á tónleikum fyrir alla fjöl-
skylduna seinna um kvöldið.
Vanda valið á listamönnum
Jóhann hefur staðið að skipulagn-
ingu hátíðarinnar frá stofnun henn-
ar fyrir fjórum árum og segir við-
tökurnar hafa verið frábærar.
„Hátíðin hefur fengið alveg rosalega
góðar viðtökur öll árin. Maður vissi
ekki alveg hvernig þetta færi í fólk
en hátíðin féll strax í góðan jarðveg
og það mæta fleiri með hverju árinu
sem líður,“ segir hann en áður hafa
komið fram hljómsveitirnar Polla-
pönk, Amiina og Dikta.
Að sögn Jóhanns er mikilvægt að
vanda valið á þeim listamönnum
sem taka þátt hverju sinni enda um
krefjandi starf að ræða. „Við viljum
hafa listamenn sem eru að gera eitt-
hvað spennandi og eru að gera sína
eigin hluti. Síðan þarf auðvitað að
athuga hvort viðkomandi treystir
sér að vinna með krökkunum og
miðla þekkingu sinni,“ segir hann
og bendir á að Prinspóló og félagar
hafi allt sem þarf.
„Með honum í för er til dæmis
Borko sem er tónlistarkennari svo
þeir fara ábyggilega bara í að leyfa
krökkunum að prófa hljóðfærin og
gera eitthvað skapandi,“ segir Jó-
hann og bætir við að skemmt-
anagildið sé einnig í hávegum haft.
„Prinspóló er með skemmtilega
sviðsframkomu og það er mikill
húmor í músíkinni og textunum.“
sigyn@mbl.is
Prinspóló pönkar
á Patreksfirði
Prinspóló Svavar Pétur Eysteins-
son og Kristján Freyr Halldórsson.
Tónlistarsmiðja fyrir börnin
og tónleikar fyrir alla fjölskylduna „Markmiðið er fyrst og fremst að
auka tónlistarlíf á Suðurlandi, og
vekja athygli á þessum fallega
stað,“ segir Björg Þórhallsdóttir,
listrænn stjórnandi nýrrar tónlist-
arhátíðar sem fer fram í Strand-
arkirkju í Selvogi nú um helgina
og næstu helgi.
Á dagskrá hátíðarinnar í ár eru
tvennir tónleikar. Þeir fyrri verða
haldnir á morgun kl. 14. Á þeim
leika Elísabet Waage hörpuleikari
og Gunnar Kvaran sellóleikari
verk eftir m.a. Couperin, Saint-
Saëns og Granados. Seinni tón-
leikar hátíðarinnar verða haldnir
sunnudaginn 19. ágúst kl. 14 en á
þeim koma fram Björg sópr-
ansöngkona, Elísabet Waage og
Hilmar Örn Agnarsson organisti.
Lofgjörð til Maríu Guðsmóður,
Maríubænir og trúarljóð skipa
stóran hluta efnisskrár þeirra tón-
leika.
„Á hverju sumri höfum við
sungið fyrir fullu húsi í kirkjunni
og fólki þykir mjög vænt um að
sækja þennan stað heim og koma í
kirkjunna,“ segir Björg en þær El-
ísabet hafa haldið tónleika á Mar-
íumessu í Strandarkirkju sl. fimm
ár. „Þetta er mjög sérstakur stað-
ur vegna þess að þar ríkir ein-
stakur friður og kraftur sem við
finnum fyrir. Þar er einnig mikil
náttúrufegurð og staðurinn býður
upp á margt fleira, m.a. merka
sögu, fallegar gönguleiðir og
mannlíf,“ segir Björg. Hún segist
stefna að því að halda tónlistarhá-
tíðina aftur á næsta ári og þá yfir
fleiri helgar og jafnvel bjóða upp á
leiðsögn um svæðið og söguslóðir
þess. larah@mbl.is
Ný hátíð í Strandarkirkju
Einstakur
kraftur og friður
á Selvogi kveikjan
Tónlistartríó Hilmar Örn organisti, Björg sópransöngkona og Elísabet
hörpuleikari koma fram á seinni tónleikum hátíðarinnar.
Kanadíski rokkabillí-tónlistarmað-
urinn Bloodshot Bill heldur tón-
leika á Gamla Gauknum í kvöld
ásamt rokkabillí-hljómsveitinni
Langa Sela og Skuggunum. Tón-
leikarnir eru þeir síðustu í tónleika-
ferð Bills um Evrópu. Bill hóf feril
sinn árið 1998 og hefur spilað með
fjölda hljómsveita og þá ýmist á
trommur eða gítar og einnig í dú-
ettum. Bill kemur fram sem eins
manns hljómsveit, leikur samtímis
á gítar, trommur og syngur að auki
sem er mikil kúnst.
Um Bill segir í tilkynningu að
hann sé mikill
grallari og eigi
fjölda platna að
baki. Tónlist hans
sé hrátt og fjör-
ugt rokkabillí
sem geti farið út í
pönkabillí, í bland
við ljúfari tóna.
Langi Seli og
Skuggarnir sjá
um upphitunina en þá hljómsveit
hljóta allir unnendur rokkabillís
hér á landi að þekkja. Húsið verður
opnað kl. 21.
Bloodshot Bill á Gauknum
Bloodshot Bill