Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR Starfsemi landsbyggðarsjúkrahúsa Sigurður Kristófer Pétursson Höfundur er sérfræðingur í svæfingalæknisfræði, yfirlæknir á svæfingadeild Sjúkrahúss Akraness og í stjórn Læknafélags Islands. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Af sjónurhóli stjórnar cru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjórnar LÍ. Þegar KOM AÐ MÉR AÐ SKRIFA GREIN UNDIR fyrirsögninni Af sjónarhóli stjórnar var sjálfgefið að fjallað yrði um landsbyggðarsjúkrahúsin þar sem ég sit í stjórn Læknafélags Islands sem fulltrúi landsbyggðarinnar. Málefni þessara sjúkrahúsa hafa lítið verið á dagskrá síðastliðið ár, enda hafa tvö önnur mál eðlilega tekið mestan tíma stjómarinnar. Það er að segja gagnagrunnsmálið og sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík. Ekki verður hjá því komist að drepa stuttlega á þessi mál hér í upphafi enda varða þau alla lækna hvar sem þeir vinna á landinu. Því miður hefur enn ekki tekist að ná viðunandi niðurstöðu í gagnagrunnsmálinu en mikilvægt er að það mál verði leitt til lykta með þátttöku félagsins. í tilefni af fyrirhugaðri sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík sendu stjórnir LÍ og LR frá sér sameiginlega yfirlýsingu um málið þann 8. febrúar síðastliðinn. Þar er meðal annars lögð áhersla á að ákvarðanir um aukna samvinnu og/eða sameiningu deilda verði teknar í fullu samráði og í sátt við starfsfólk. Að mati sumra hefur á þetta skort og ber að harma það. Á þetta atriði er sérstaklega minnst því tillögur sem litið hafa dagsins ljós á undanförnum áram um breytingar á skipan heilbrigðismála á landsbyggðinni hafa oftar en ekki komið fram án samráðs við starfsfólk viðkomandi stofnana. Fram hafa komið tillögur eingöngu byggðar á tölulegum upplýsingum. Alkunna er hversu varasamt það getur verið að draga ályktanir af tölulegum upplýsingum um mann- legar athafnir án þess að hafa staðgóða þekkingu á raunveruleikanum sem að baki liggur. Á meðan sameiningarumræður í Reykjavík hafa staðið sem hæst, hafa stjórnendur landsbyggðarsjúkrahúsa fengið frið fyrir tillögugerðarmönnum. Það hefur gefið starfsfólki margra minni sjúkrahúsa andrúm til að huga að tímabærum breytingum á eigin rekstri. Verulegar breytingar hafa orðið á starfsemi flestra Iandsbyggðarsjúkrahúsa undanfarin ár. Sum minnstu sjúkrahúsin hafa hætt skurðstofustarfsemi og önnur hafa tekið upp nána samvinnu við stærri sjúkrahús um þann þátt starfseminnar. St. Fransiskusspítalinn í Stykkishólmi hefur haslað sér völl á nýju sviði við meðferð baksjúklinga með mjög góðum árangri. Á öðrum stöðum hafa menn lagt meiri áherslu en áður á að byggja upp aðstöðu fyrir sérfræðinga á sviði lyflæknisfræði og má þar nefna Sjúkrahús Húsavíkur. Þannig hafa mörg sjúkrahúsanna á landsbyggðinni verið að hverfa frá þeirri ofuráherslu sem lögð var á skurðlækningar, þar sem smæð viðkomandi stofnana og fámenni leyfðu ekki nauðsynlega þróun á því sviði. Heilbrigðisþjónustu í nánd heimabyggðar Það er skylda okkar að tryggja öllum landsmönnum heilbrigðisþjónustu eins nálægt heimabyggð og mögulegt er. Ekki er síður mikilvægt að fólk hafi val og geti leitað annað falli þeim ekki í geð sú þjónusta sem í boði er á einum stað. Annað sættir fólk sig ekki við í nútíma þjóðfélagi.Vera má að litlu sjúkrahúsin í námunda við Reykjavík komi til með að gegna því hlutverki að einhverju leyti í framtíðinni þegar sameining sjúkrahúsanna þar er um garð gengin. Þegar nátturuhamfarir eiga sér stað er veðurfar oft þannig að hjálp verður ekki sótt á stuttum tíma til annarra landshluta eins og best sannaðist er snjóflóðin féllu á Vestfjörðum fyrir fáum árum. Þá skipti tilvist Sjúkrahússins á ísafirði sköpum í björgunarstarfinu. Jarðskjálftarnir sem riðu yfir Suðurland nú í sumar minntu okkur á að náttúru- hamfarir gætu gert sjúkrahús á Reykjavíkursvæðinu óstarfhæf um lengri eða skemmri tíma. Þess vegna er Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri aðalvarasjúkrahús landsins með tilliti til almannavarna. FSA er nú þegar öflugt fjölgreinasjúkrahús, á íslenskan mæli- kvarða, sem þjónar stórum hluta Norður- og Austurlands. Það hníga mjög mikilvæg rök til þess að þjóðin verði að geta staðið undir tveimur vel búnum hátæknisjúkrahúsum, öðru í Reykjavík og hinu á Akureyri. Að sjálfsögðu verður Landspítalinn - háskólasjúkrahús okkar langstærsta sjúkrahús og ber að hafa yfir að ráða þeirri sérfræðiþekkingu, rannsóknar- og meðferðartækni sem ekki er skynsamlegt af faglegum og/eða fjárhagslegum ástæðum að hafa nema á einum stað í landinu. Tæknlframfarir á minni sjúkrahúsum Miklar tækniframfarir hafa orðið í heilbrigðis- þjónustunni á síðustu árum. Sem dæmi má nefna þær breytingar sem orðið hafa í skurðlækningum með tilkomu holsjáraðgerða.Við upphaf þeirrar þróunar hreyrðust þær raddir í hópi lækna að nú væru skurðlækningar orðnar svo tæknilega háþróaðar að ekkert vit væri í því að minni sjúkrahús væru að fikta við slíkt. Hver hefur raunin orðið? Reynslan sýnir að sjúklingar eru ekki jafn veikir eftir þessar aðgerðir og gera þess vegna ekki sömu kröfu um gæslu og meðferð og oft er nauðsynleg eftir hefðbundnar aðgerðir. Enda hafa minni sjúkrahús tileinkað sér þessa nýju tækni með miklum ágætum. Sjúkrahús Akraness hefur lagt sérstaka áherslu á að nýta sér þessa nýju tækni enda er óvíða meiri fjölbreytni í holsjáraðgerðum en þar. Af sömu ástæðu hafa slíkar aðgerðir verið að flytjast út af sjúkrahúsunum í Reykjavík og til einkarekinna læknastöðva. Þessi 602 Læknablaðið 2000/86
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.