Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 39
FRÆÐIGREINAR / LÍFFÆRAFLUTNINGAR
H j artaígræðsla
Gunnlaugur
Sigfússon
Frá Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Gunnlaugur
Sigfússon, Barnaspítala
Hringsins, Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sími: 560 1000; netfang:
gulli@rsp.is
Lvkilorð: hjartaígrœðsla,
hjartasjúkdómar.
Ágrip
ENGLISH SUMMARY
Hjartaígræðsla er í dag viðurkennd meðferð við
hjartasjúkdómum á lokastigi, bæði í börnum og
fullorðnum. Horfur eftir hjartaígræðslu eru almennt
góðar, 85% þeirra sem ganga undir slíka aðgerð eru á
lífi eftir eitt ár og um 65% eftir fimm ár. Langvinn
höfnun í formi kransæðasjúkdóms er stórt vandamál
og veldur flestum dauðsföllum hjartaþega.
Fylgikvillar ónæmisbælingar eru hvimleiðir, en
lífsgæði eftir hjartaígræðslu eru almennt mjög góð.
Inngangur
Hjartaígræðsla er í dag viðurkennd meðferð við
hjartasjúkdómum á lokastigi. Þessi aðgerð hefur
gjörbreytt viðhorfi okkar til margra hjartavöðva-
sjúkdóma og meðfæddra hjartagalla, sem áður voru
taldir ólæknanlegir. Lífshorfur einstaklinga sem
gengið hafa undir hjartaígræðslu fara sífellt batnandi,
en aðgerðin er þó engan veginn fullkomin lækning.
Þótt nýtt hjarta geti umbreytt lífi viðkomandi
einstaklings eru mörg vandamál samfara þessu nýja
framandi líffæri. Við tekur varanlegt eftirlit hjá
læknum og ævilöng Iyfjameðferð, sem ekki er án
aukaverkana (1).
Sögulegt yfirlit
Arið 1967 framkvæmdi Dr. Barnard í Cape Town í
Suður Afríku fyrsta hjartaflutninginn í mann og vakti
Sigfússon G
Heart transplantation
Læknablaðiö 2000; 86: 583-6
Heart transplantation has been established as an accepted
treatment for end-stage heart disease, in both adults and
children. Survival following heart transplantation today is
good, one year actuarial survival is 85% and approximately
65% after five years. Chronic rejection presenting as an
post-transplant coronary artery disease is the main limiting
factor for long term survival. Complications from
immunosuppression are troublesome, but quality of life is
generally very good.
Key words: heart transplantation, heart diseases.
Correpondence: Gunnlaugur Sigfússon. E-mail:
gutii@rsp.is
þessi aðgerð mikla athygli (2). Næstu árin voru
margir hjartaflutningar framkvæmdir víða um heim
en árangur af hjartaígræðslu á þessum árum var hins
vegar mjög slakur, einkum sökum vanþekkingar á
höfnun og/eða sýkingum samfara ónæmisbælingu.
Vegna þessa bönnuðu margar stofnanir þessa aðgerð
og annars staðar lognaðist hún út af. Nokkrar
stofnanir héldu þó áfram rannsóknum og tilrauna-
starfsemi með þessa líffæraflutninga. Með tilkomu
Number of transplants
Year
Fígure 1. Heart transplant volumes from 1982-1998. Data from: Tlie Registry ofthe International Society for lleart and
Limg Transplantation: sixteenth official report-1999.
Læknablaðið 2000/86 583