Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 10
r
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN
hans er einkum að efla samstarf þeirra sem annast
líffæraþega, stuðla að símenntun og efla samstarf við
sambærilega hópa erlendis. Ennfremur að bæta
tengsl við þær stofnanir sem annast líffæraflutninga
fyrir íslendinga. Endanlegt markmið er síðan að
þessi starfsemi stuðli að bættri þjónustu við líffæra-
þega. Ýmsar hugmyndir um úrbætur í málefnum
líffæraflutninga hafa verið ræddar innan hópsins en
ljóst er að aðgerða er þörf.
Nauðsynlegt er að koma á teymisvinnu þeirra
lækna sem sinna málefnum líffæraþega hér á landi.
Skilgreina þarf starfsvið og verkaskiptingu og skapa
viðunandi starfsumhverfi. Innan Landspítala -
háskólasjúkrahúss þarf að stofna sérstaka einingu
sem annast líffæraþega, þar á meðal mat á sjúkling-
um með tilliti til ígræðslu og meðferð að lokinni
aðgerð. Þá hefur verið til umræðu að flytja ígræðslur
á nýrum frá lifandi gjöfum til íslands. Meirihluti
nýrna kemur nú frá slíkum gjöfum og er unnt að
skipuleggja þessar ígræðslur fram í tímann. Haldið er
fram að of fáar ígræðslur séu framkvæmdar árlega til
að búast megi við jafngóðum árangri og náðst hefur á
stofnunum erlendis. Því er til að svara að mögulegt
virðist að fá ígræðsluteymi undir stjórn íslensks
læknis erlendis frá til að framkvæma aðgerðirnar hér
heima. Búast má við umtalsverðum sparnaði verði
þetta raunin. Nauðsynlegt er að marka stefnu í þessu
efni hið fyrsta. Málefnum beinmergsígræðslu verður
væntanlega sinnt áfram af blóðsjúkdómadeild. Ljúka
þarf undirbúningi að stofnfrumuígræðslum hér á
landi enda ætti að vera raunhæft að ná sambærilegum
árangri og á stofnunum erlendis.
Þegar erlendur samstarfsaðili er valinn á einungis
að leita til ígræðslustofnana sem veita þjónustu af
hæsta gæðaflokki. Framundan er endurnýjun samn-
ings um líffæraflutninga við Ríkisspítalann í
Kaupmannahöfn. Mikilvægt er að úrbætur í
samskiptavandamálum verði tryggðar áður en
ákvörðun um endurnýjun samningsins verður tekin
Heimildir.
1. Pálsson R. Grundvallaratriði í meðferð líffæraþega.
Læknablaðið 2000; 86:557-65.
2. Ásmundsson P. Aðgengi íslendinga að ígræðslulíffærum.
Læknablaðið 2000; 86: 567-9.
3. Andrésdóttir MB, Pálsson R. Nýraígræðsla. Læknablaðið 2000;
86: 571-6.
4. Ólafsson S. Lifrarígræðsla. Læknablaðið 2000; 86: 579-82.
5. Sigfússon G. Hjartaígræðsla. Læknablaðið 2000; 86: 583-6.
6. Guðmundsson G. Lungnaígræðsla. Læknablaðið 2000; 86: 587-
90.
7. Reykdal SEÞ. Mergskipti. ígræðsla blóðmyndandi stofn-
frumna. Læknablaðið 2000; 86: 593-9.
8. Gonwa TA. Transplantation. Am J Kidney Dis 2000; 35/Suppl.
1: S153-S159.
9. Dorling A, Riesbeck K, Warrens A, Lechler R. Clinical
xenotransplantation of solid organs. Lancet 1997; 349: 867-71.
10. Lafferty KJ. A few steps along the path to adult transplantation
tolerance. Transplant Proc 1999; 31(1-2A): 11S-13S.
Lífeyrissjóð lœkna?
„Lífeyrissjóður lœkna tryggir lífeyrisgreiðslur
til œviloka...“
• Heildareignir sjóðsins voru 11,4 milljarðar króna í ársbyrjun 2000.
• 10,4% nafnávöxtun á ári að jafnaði árin 1995-1999.
• Ávöxtun umffam 3,5% eykur réttindi.
• Góð makalífeyrisréttindi.
• Örorkutrygging við starfsorkumissi.
• Hagstæð lán til sjóðfélaga.
• Sjóðfélagar fá reglulega send ítarleg yfirlit.
• Daglegar upplýsingar um innborganir og áunnin stig á vefnum.
,,..og hjáALVÍB getur þú greitt viðbótariðgjald
og valið þá ávöxtunarleið sem þér hentar. “
Stjóm Lífeyrissjóðs lækna mælir með því að læknar greiði
viðbótariðgjöld í ALVÍB (séreignarsjóður í vörslu VIB), sé læknir
ekki aðili að slíkum sjóði.
Læknar eiga fúlltrúa í stjóm ALVÍB.
Iðgjöld sjóðfélaga em færð á sérreikning þeirra auk vaxta og
verðbóta á ári hverju.
Verið velkomin!
LIFEYRISSJOÐUR LÆKNA
Kirkjusandur, 165 Reylgavík. Sími: 560 8970. Myndsendir: 560 8910.
REKSTRARAÐILI: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. • Kirkjusandur, 155 Reykjavík.
Sfmi: 560 8900. Myndsendir 560 8910. Netfang: vib@vib.is. Veffang: www.vib.is.