Birtingur - 01.01.1962, Blaðsíða 94
Geir Kristjánsson
Borgaravarnir
Maríuklukkan grær á grænum völlum —
og norskir sérfræðingar í bænum. Yfii'
Hvítahafi sprungu eldkúlur heitari en
sólin.
— Iivar endar þetta? spurði konan. —
Húsgrunnurinn kominn upp í milljón.
Bara grunnurinn!
— Bezt að vera við öllu búinn, sagði mað-
urinn og hætti að raula: Maríuklukkan
. . . Hann hafði þann undarlega vana að
vera alltaf að reikna eitthvað á blaði með-
an hann talaði við fólk, eins þegar hann
talaði við konuna sína.
— Ég vil hafa rennu úr eldhúsinu útí
öskutunnurnar. Láttu arkitektinn vita, að
ég vilji hafa rennu úr eldhúsinu útí ösku-
tunnurnar.
— Skal gert, reiknaði maðurinn. — Þeir
hafa pantað hjá mér tuttugu þúsund
sjúkrabörur, bætti hann við og hélt áfram
að reikna.
— Ég hlakka til, þegar við flytjum, sagði
konan. — Það er svo einstaklega fallegt
útsýni á þessum stað.
— Okkar hús verður fyrsta húsið í bæn-
um með prívat loftvarnarbyrgi, reiknaði
maðurinn. — Fullar þrjár hæðir neðan-
jarðar. Ég hef borið það undir þá norsku.
og þeir halda að það dugi. Allt sprengt
niðrí klöpp einsog þeir gei-a í Svíþjóð.
Konan leit áhugalaust á manninn, kann-
ski hafði hún ekki hlustað.
— Já, ég hlakka til, þegar við flytjum,
. sagði hún svo með semingi einsog hún
hefði ætlað sér að segja eitthvað annað,
en gleymt því.
— Þeir norsltu segja að 90% geti bjarg-
azt. Það var maðurinn sem talaði og nú
var hann farinn að reikna, hvað 90% af
sjötíu þúsundum væri mikið.
— Sextíu og þrjú þúsund! sagði hann.
— Æi, þú veizt að ég skil ekki tölur, Jón
minn. Minnstakosti ekki svona háar tölur,
hló frúin. — Þú ert alltaf að tala við mig
um viðskipti.
— Viðskipti eru viðskipti, reiknaði mað-
urinn. — Þeir eru að hugsa um að kaupa
af mér teppi líka. Ég á kost á stórum
lager hjá hernum. Þeir norsku hafa mælt
með því eins og börunum.
— Hvaða börum? endurtók konan. Ein-
hvern veginn kom henni ekki annað í
hug en barir.
— Sjúkrabörunum, manneskja. Þessum
tuttugu þúsund sem þeir eru búnir að
panta hjá mér.
— Til hvers eiga þær að vera? Augun í
konunni urðu alveg kringlótt.
— Hvað er þetta, kona! Hlustarðu eklci
á fréttirnar? Þeir eru alltaf að sprengja.
88 Birtingur