Morgunblaðið - 22.10.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
Hólmavík:
„Rækjan er undirstaða alls”
Rækjustrfðið svonefnda við
Húnaflóa er nú f algleymingi og
hafa hreppsnefndir Hóimavfkur,
Kaldrananesshrepps og Höfða-
hrepps sent frá sér ályktun um
málið. Þá er von á ályktun frá
hreppsnefndinni á Hvamms-
tanga í dag. Ennfremur hefur
rækjuvinnslustöðin á Blönduósi
sent frá sér athugasemd vegna
þess máls. Þvf miður er ekki hægt
að birta ályktanirnar f heild f
blaðinu f dag, en hér verða birtar
nokkrar glefsur úr þeim. Álykt-
anirnar verða hins vegar birtar f
heild f blaðinu einhvern næstu
daga.
I samþykkt hreppsnefndar
Höfðahrepps frá því sl. sunnudag
segir m.a.:„Hreppsnefndin minnir
á, að á Skagaströnd hefur átt sér
stað um 200 millj. kr. f járfesting í
rækjuiðnaðinum og 60—70
manns hafa af honum atvinnu og
þýðing hans fyrir Skagaströnd
því mjög mikill. Hreppsnefndin
hvetur háttvirta ráðamenn þjóð-
arinnar að horfa á mikilvægi at-
vinnugreinarinnar fyrir þau
byggðarlög er nú stunda hana og
þá hættu, sem skapast ef ætti sér
stað fjölgun báta og vinnslustöðva
frá því sem nú er, en að mati
hreppsnefndar Höfðahrepps má
slíkt ekki gerast loksins þegar
umrædd byggðarlög eru að ná
því marki að geta veitt íbúum
sínum langþráð atvinnuöryggi."
Þá barst blaðinu í gær athuga-
semd frá Særúnu h.f. á Blönduósi.
Segir þar m.a.: „Við viðurkennum
fyllilega rétt annarra byggðarlaga
við Húnaflóa til þátttöku í rækju-
veiðum, bæði þeirra, sem hafa
stundað þær um lengri tima, eins
og Hólmavíkur og Drangness og
einnig hinna, sem aðeins hafa tek-
ið þátt f veiðum og vinnslu 1!4—2
vertíðir, eins og Hvammstangi og
Skagaströnd. Við krefjumst að-
eins jafnréttis og eðlilegrar hlut-
deildar í leyfðum afla, en neitum
að viðurkenna, að önnur fyrir-
tæki eða byggðarlög hafi einokun
á rækjuveiðum og rækjuvinnslu."
I ályktun hreppsnefndar
Kaldrananesshrepps segir t.d.:
„Málið er í eðli sínu einfalt,
hagnýtingu rækjunnar f Húnaf lóa
má líkja við landnám. Þeir sem
fyrstir námu landið í þessu til-
felli, bjargvana útkjálkamenn
beggja vegna Húnaflóa, hljóta í
það minnsta að eiga til þess allan
siðferðilegan rétt, að fá að búa í
friði að því, sem þeir hafa byggt
upp og skipulagt á undanförnum
árum, þegar sannarlega er ekki
landrými fyrir fleiri. Kauptúnin
Drangsnes og Hólmavík eiga sem
áður segir, alla sína afkomu undir
rækjunni. Verði teljandi röskun á
þessum atvinnuvegi, eins og mál-
in standa í dag, má öfgalaust
telja, að forsendu fyrir áfram-
haldandi byggð á téðum kauptún-
um séu brostnar."
Þá er hér loks brot úr ályktun
hreppsnefndar Hólmavíkur:
„Bendir hreppsnefndin á, að
rækjuveiðar hafa verið undir-
staða atvinnulífs á Hólmavík og
Drangsnesi allt frá árinu 1965.
Hefur öll fjárfesting í sjávarút-
vegi, sem er svo til eini atvinnu-
vegurinn á stöðum þessum,
miðast við veiðar þessar. Nú
liggur fyrir álit fiskifræðinga, að
sóknin í rækjustofninn í Húna-
flóa er í hámarki."
Blönduós:
„Krefjumst aðeins jafnréttis”
t gær millilenti á Reykjavfkurflugvelli gömul orustuflugvél sem
brezki sjóherinn notaði I lok strfðsáranna. Þessi vél fór til Amerfku
fyrir nokkrum mánuðum og var á heimleið aftur f gær. Það var einn
af gamla laginu sem orustuvélin hitti á vellinum eins og sjá má þar
sem gamli Ford er að kippa vélinni inn á stæðið.
Eldð á gangandi á Grindavík-
urveginum
Grindavík, mánudag.
UNGUR piltur frá Keflavík varð
fyrir bíl hér utan við bæinn að-
faranótt sunnudagsins og hlaut
veruleg meiðsli. Var hann meðal
allmargra ungmenna sem vega-
laus voru er dansleik lauk hér.
Unglingarnir lögðu af stað gang-
andi í þeirri von að fá bílfar.
Skyggni var mjög slæmt og ísing
mikil á veginum.
Pilturinn, sem er um tvítugt,
varð fyrir bíl og hlaut nokkurn
höfuðáverka og slæmt fótbrot og
kvartaði um þrautir I síðu. Hann
var fluttur I sjúkrahúsið i Kefla-
vík. Þetta slys varð um klukkan
2.45. Nokkru áður hafði bfll farið
út af veginum, en stúlka sem hon-
um ók og var ein f bílnum slapp,
meiddlst ekki. pyj,
Útför
Þorsteins á
Vatnsleysu
Skálholti 21. okt.
EFTIR úlfgráa rigningarviku
birtust Biskupstungur í allri sinni
fegurð og tign, í stafalogni var
íslenzki fáninn í hálfa stöng á
hverjum bæ í virðingar- og þakk-
lætisskyni við látinn heiðurs-
bónda, Þorstein Sigurðsson á
Vatnsleysu, sem borinn var til
moldar f Torfastaðakirkjugarði
s.l. laugardag að viðstöddu einu
mesta fjölmenni, sem sést hefur
austan fjalls. Kveðjuathöfn var f
Skálholtskirkju og flutti séra
Guðmundur Öli Ólafsson sóknar-
prestur minningarræðuna og
jarðsöng. Félagar úr karlakórn-
um Fóstbræður sungu. Ein-
söngvari var Kristinn Hallsson,
en orgelleikari Sigurður ísólfs-
son. Heyra mátti m.a. lofsönginn
Blessuð sértu sveitin mín. Ur
kirkju báru kistuna forystu- og
starfsmenn búnaðarsamtakanna.
A Torfastöðum báru kistuna
sveitungar og sfðasta spölinn
ættingjar. Þar sungu og sveit-
ungar m.a. sigursönginn Dauðinn
dó, en lifið lifir, en orgelleikari
var Sigurður Erlendsson. Að at-
höfn lokinni bauð Ágústa Jóns-
dóttir, eiginkona hins látna, og
fjölskylda hennar fólki að þiggja
veitingar í félagsheimilinu að
Aratungu.
Björn.
HAFA SELT FYRIR
893 MELLJ. KRÓNA
ISLENZKU sfldveiðiskipin f
Norðursjó seldu alls 43 sinnum f
Hirtshals og Skagen f sfðustu
viku. Alls seldu skipin 2.746 lest-
ir fyrir 99.7 millj. kr. og meðal-
verðið sem fékkst f vikunni var
kr. 36.60.
Frá því að sfldveiðarnar hófust
í vor og fram í lok síðustu viku
höfðu skipin aflað samtals 31.611
lestir, sem selst hafa fyrir 893.3
millj. kr. og meðalverð fyrir hvert
kg er kr. 28.26. Á sama tfma í
fyrra höfðu skipin aflað 37 þús.
lestir fyrir alls 91Ö.4 millj. kr. og
Framhald á bls. 39
290 millj. kr. í innstæðu-
lausum ávísunum á árinu
Að kvöldi hins 18. þ.m. fór fram
skyndikönnun innstæðulausra
tékka á vegum Seðlabanka Is-
lands. Könnunin náði til innláns-
stofnana f Reykjavfk, Kópavogi,
Hafnarfirði, Keflavfk og Selfossi.
Fram komu ails 994 tékkar án
fullnægjandi innstæðu að fjár-
hæð samtals 29.827.000,00, sem
reyndist vera 1,34% af veltu
föstudagsins í tékkum hjá
ávísanaskiptadeild Seðlabankans,
en hún var nánar tilíekið 2.224
milljónir króna. Ofangreint hlut-
fall er löluvert fyrir ofan meðal-
lag miðað við fyrri kannanir.
Frá síðastliðnum áramótum
hafa tékkainnheimtu Seðla-
bankans borizt um 14.500 inn-
stæðulausir tékkar samtals að
f járhæð um 260 millj. króna, og er
þá síðasta skyndikönnun ekki
meðtalin.
1 fréttatilkynningu frá Seðla-
banka Islands í gær um málið
segir: „Af ofangreindum tölum og
úrvinnslu þeirra má ráða, að
hluta tékkamisfelisins megi rekja
til kæruleysis reikningshafa f
meðferð tékka, og á það við lægri
fjárhæðir. Meginhluti heildar-
fjárhæðar og stærri fjárhæðir
tékka stafar af engu öðru en
beinni misnotkun."
Víðtækt samstarf vegna alþjóð-
legs kvennaárs I Rætt við Cuðnýíu weigadóttur i
MBL. sneri sér f gær til Guðnýjar
Helgadóttur, formanns Kvenrétt-
indafélags tslands og innti hana
fregna af fyrirhuguðu vetrar-
starfi félagsins, og þá sérstaklega
með tilliti til þess, að Sameinuðu
þjóðirnar hafa lýst árið 1975 al-
þjóðlegt kvennaár:
— Vetrarstarfsemi Kvenrétt-
indafélagsins mun mótast að
verulegu leyti af hinu fyrir-
hugaða kvennaári og á fyrsta
vetrarfundi félagsins verður
meðal annars rætt um þetta, en
fundurinn verður á þriðjudaginn
í næstu viku.
Það var í febrúarmánuði sl. að
kvennaárið bar fyrst á góma hjá
félaginu, og voru þá þrjár konur
skipaðar í nefnd til að gera til-
lögur um með hvaða hætti félagið
gæti staðið að aðgerðum vegna
þessa alþjóðlega kvennaárs. Sfðar
kom í ljós, að ýmis samtök önnur
voru ýmist búin að skipa nefndir
til að fjalla um sama mál eða
bjuggust til að gera það, og var þá
ákveðið að hafa samvinnu um að
minnast ársins.
— Hvaða samtök er hér um að
ræða?
— Það eru, auk Kvennréttinda-
félagsins, Kvenfélagasamband ís-
lands, Kvenstúdentafélag Islands,
Félag háskólakvenna, Félag Sam-
einuðu þjóðanna á Islandi, og loks
Rauðsokkahreyfingin, sem frétt
hafði af samstarfi þessu og óskaði
eftir þátttöku f því.
Síðan þetta samstarf hófst hafa
nefndirnar allar starfað saman,
en ég vænti þess, að sérstök fram-
kvæmdanefnd með fulltrúum
allra þessara aðila verði skipuð á
næstunni, þar sem fjölmennar
nefndir eru sjaldnast mjög
atkvæðamiklar.
Framhald á bls. 39
Kosningar í Háskólanum
í kvöld
I KVÖLD fara fram kosn-
ingar til 1. desembernefnd-
VERÐANDI: Þjóðsagan og veruleikinn
HegOun VerOandi fyrir þessar 1. des.-kosningar er með
eindæmum. Pélagið hefur fengið því fraingengt, að kosninga-
reglugerð er túlkuð eins þröngt og unnt er. Það hefur gefið
út grænan snepil, þar sem ráðizt er með avíviröingum gegn
Vöku og framboöi hennar. Þá hefur Þjóðviljinn farið ham-
förum gegn Vöku og Hrafni Gunnlaugssyni.
Astæöan er sú, að Verðandi hefur loks ákveðið að kasta
grímunni og kernur nú fram seri. strangtrúuð kommaklíka.
Eínhvern grun hafa þó Veröandimenn um, að stúdentar séu
ekki allir reiöubúnir til aö sitja undir útleggingum 19.
aldar spekinga á sögunni, þrætubókarlist og efnishyggju
Hegels, Marxs og sporgöngun.anna þeirra, seri. herrnd or upp á
Islandssöguna.
Vel er viö hæfi að fá skáld frernur en sagnfræðing til
að ræða þetta efni þeirra, þjóðsöguna og veruleikann, og
mun þjóösagan vafalau:;t .ikipa þar æöri sess. Nú bíða menn
eftirvæntingarfullir eftir aö heyra, i.vort landnám Islands
hafi verið þáttur í heimavaldustofnu írskra munkreglna,
hvort siðskiptin hafi veriö fjárn.ögnuO af dönsku kaupmanna-
valdi, hvort "jvik" Jóns Sigurössonar í fjárkláöamálinu
hafi veriö rurinin undan rifjum daruka dýralæknaauðvalds-
ins, hvort ekki beri á einiivorn hátt aö bæta sauðkindinni
11 alda arðrán íslenzkrar stór r>xridastéttar.
En þeim stúdentum, sem ekki hafa mikinn áhuga á vanga-
veltum af þessu tagi, er bent á# aö Vaka býöur nú fram undir
kjöroröinu TJáNINGARFRELSl OG SKOÐANAMYNDUN og Hrafn Gunn-
laugsson rithöfund sem rujöumann dagsins. Kosiö veröur á
stúdentafuridi þriöjudagínn 22. okt. kl. 20. Húsinu veröur
lokaö kl. 21.19-2100, og hofnt þá kosning. Listi Vöku er
A - listi.
VAKA ^A
/WyLLVSTEINM
marxismavs eða
X-A 2
Hér er sýnishorn af einu veggspjaldanna, sem setja svip sinn
kosningabaráttuna 1 Háskólanum.
ar í Háskóla íslands.
Fyrsta desembernefnd sér
um hátíðarhöld og útvarps-
dagskrá á fullveldisdaginn
1. desember. Tveir listar
eru í kjöri A-listi Vöku og
B-listi Verðandi. Kosinga-
réttur er takmarkaður við
þá, sem mæta á almennum
stúdentafundi í kvöld, sem
hefst kl. 20. Fundarsalnum
verður lokað kl. 21.30, þeir,
sem mæta síðar, geta ekki
neytt atkvæðisréttar síns.
A-listi Vöku leggur til, að
fullveldisdagurinn verði að
þessu sinni helgaður um-
ræðum um skoðanamynd-
un og tjáningarfrelsi. Til-
laga Vöku er sú, að Hrafn
Gunnlaugsson, rithöfund-
ur, verði aðalræðumaður
dagsins og Markús Möller,
stærðfræðinemi, flytji
ræðu af hálfu stúdenta.
B-listi Veröandi leggur hins
vegar til, að fullveldisdagurinn
verði helgaður umræðum um Is-
land — þjóðsöguna og veruleik-
ann og Þorsteinn frá Hamri verði
aðalræðumaður dagsins.
Kosning til 1. desembernefndar
fer fram á almennum stúdenta-
fundi á Hótel Sögu. Fundurinn
hefst kl. 20, en húsinu verður
lokað kl. 21.30. Efsti maður á A-
lista Vöku er Berglind Ásgeirs-
dóttir, en efsti maður á B-lista
Verðandi er Gylfi Páll Hersir.