Morgunblaðið - 22.10.1974, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
® 22*0*22*
RAUOARÁRSTIG 31
'
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
Hópferðabílar
Til leigu í lengri og
skemmri ferðir
8—50 farþega bílar.
KJARTAN
INGIMARSSON
Sími 86155 og 32716.
DRTSUn 10DR-UU1- BROnLO
ÚTVARP OG STEREO í ÖU.UM BILUM
Bílaleigan ÆÐI
Simi 13009 Kvöldsimi 83389
Feröabílar hf.
Bílaleiga S-81260.
5 manna Citroen G.S. fólks- og
stationbílar 1 1 manna Chevrolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabílar (með bílstjórn).
Knútur Bruun hdl.
Logmannsskrifstofa
Grettisgótu 8 II h
Simi 24940
Hr U TBOÐ S AMNINGAR
Tilboðaóflun — samningagerð.
Sóleyjargótu 1 7 — sfmi 13583.
SÉRVERSLUN
MEÐ
SVÍNAKJÓT
SÍLD & FISKUR
Bergstaóastræti 37 sími 24447
Viðurkenning í verki
Nýtt land gerir nýverið að
umræðuefni þá fullyrðingu
Þjóðviljans, sem skýtur upp
kolli í nær öllum stjórnmáia-
skrifum blaðsins, að allt hafi
verið með feldu f efnahags- og
verðlagsmálum þjóðarinnar, er
vinstri stjórnin iét af völdum. I
þvf tilefni segir Nýtt land:
„Ef málflutningur þeirra
Þjóðviljamanna er réttur,
hvernig stóð þá á þvf, að þegar
ljóst var f mafmánuði sl., að
kaupgjaidsvfsitalan myndi
hækka um 15 stig, að þá greip
vinstri stjórnin til þess ráðs, að
ræna launþega helmingi þeirra
verðlagsuppbóta á iaun, hinn
helmingurinn var hinsvegar
tekinn af launþegum f formi
niðurgreiðslna á landbúnaðar-
afurðir, en þann hluta verðlags-
uppbðtanna verða launþegar aí
greiða að mestu. 1 raun og veru
voru launþegar sviptir öilum
þeim verðlagsuppbótum, sem
þeir áttu að fá á laun sfn frá og
með 1. júnf sl. Hvernig má það
vera, að á sama tfma og þeir
Aiþýðubandalagsmenn lýsa því
yfir að fjárreiður þjððarinnar
og rfkissjóðs hafi verið betri en
nokkru sinni fyrr, þá skuli
gripið til þess ráðs að afnema
samningsbundnar verðlagsupp-
bætur á kaupgjald?“
Stólsetugjald
Og blaðið heldur áfram: „Við
þessari spurningu fæst ekkert
svar. Það er hinsvegar ljðst, að
þessar ráðstafanir voru eins
konar stðlsetugjald, sem Al-
þýðubandalagið varð að greiða,
ef flokkurinn vildi halda stöðu
sinni f rfkisstjðrninni og
þennan skatt áttu iaunþegar að
greiða og það nauðugir . .
Blaðið áréttar hér það, sem
öilum má raunar ljðst vera, að
vinstri stjðrnin sjálf, að Al-
þýðubandalaginu ekki undan-
skyldu, hafði viðurkennt þann
vanda, sem við var að etja, eftir
þriggja ára ðráðsfu vinstri
stjðrnarinnar, og hafði að auki
lagt drög að þeim leiðum til
úrbóta, sem farnar voru.
Málin snerust hinsvegar f
höndum forystumanna Alþýðu-
bandalagsins, þannig að stðl-
setugjaldið, sem þeir reiddu
fram, varð nokkurs konar sðl-
setursgjald, er valdasðl þeirra
gekk til viðar.
Heimsmethafar
í verðbólgu
Þðrarinn Þórarinsson, rit-
stjóri Tfmans, segir svo í viku-
legum stjðrnmálaþönkum sfn-
um sl. sunnudag:
„Af hinni erfiðu glfmu við
verðbðlguna á þessu ári ættu
fslendingar að læra það, að þeir
eiga að stefna að öðru á árinu
1975 en að vera heimsmethafar
f verðbðlgu. Þeir eiga að stefna
að þvf að tryggja næga atvinnu
og óbreytt lffskjör, en það tekst
því aðeins, að verðbðlgunni
verði haldið nægilega f
skef jum. Nú er farið að tala um
nýjar grunnkaupshækkanir,
enda þðtt allir viti, að engar
forsendur eru fyrir þeim að
óbreyttum aðstæðum ..." —
„Vissulega þarf nú að stefna að
öðru en að tslendingar verði
áfram heimsmethafar f verð-
bðlgu. Og áreiðaniega mun
þjððin veita því athygli, hverjir
það verða, sem viija láta ts-
lendinga halda metinu áfram.“
Svo ör verðbðlga, sem hér
hefur verið undanfarin
misseri, og heldur enn þeim
hraða, er til var stofnað f
vinstri stjðrninni, er alvarleg
meinsemd, sem sporna þarf
gegn, þð seint sé. Hún er höfuð-
orsök þess vanda, sem atvinnu-
vegirnir hafa átt við að glfma;
sem er að sliga flest sveitar-
félög f landinu, og stefnir vel-
megun alls almennings f sam-
drátt og lffskjaraskerðingu. Og
verðbólgan kemur harðast
niður þar sem sfzt skyfdi: á
elztu og yngstu borgurunum.
Kapphfaup kaupgjatds og
verðlags, sem aðeins kemur
fram f smærri krðnum og dýr-
ari nauðsynjum almennings,
bætir engra hag. Raunveru-
legar lffskjarabætur fást
aðeins fyrir vaxandi verðmæta-
sköpun f þjóðarbúinu, en
vinnufriður og rekstraröryggi
atvinnuveganna er algjör for-
senda þess, að málum verði
þokað f þá átt.
Séra Bernharður Guðmundsson skrifar frá Addis Abeba:
Billjónari
I ÞANN tíð, fyrir löngu sfðan,
þegar ég var ungur drengur og
einseyringsstykki glöddu smá-
fólkið, hafði orðið milljón
mikla og djúpa þýðingu. Við
töluðum oft um það strákarnir
hvað við myndum gera, ef við
værum milljónerar. Það var
auðvitað jafnfjarstætt eins og
að — ja — heimsækja karlinn í
tunglinu.
En margt er skrítið í henni
verslu. Nú hefur hvort tveggja
gerzt, máninn hefur verið
heimsóttur margsinnis og viö
erumflestir orðnirmilljónerar,
jafnvel margmilljónerar. Því
flestir eiga einhvers konar þak
yfir höfuðið og bág má íbúðar-
nefnan vera, ef hún er ekki
virði nokkurra milljóna. Mér
virðist jafnvel að þessir 18
mánuðir, sem ég hef verið hér f
Addis hafi bætt a.m.k. einni
milljón við milljónirnar, sem
fbúöaeigendurnir geta glaðzt
yfir heima á Fróni.
En hafi menn grætt 1—2
milljónir á verðbólgunni
þennan tfma, þá hef ég „grætt“
stórum meira. Milljón, billjón,
trilljón, dilljón, sögðum vér hér
áður fyrr, þegar tákna ætti
óendanlegt rfkidæmi. Eitthvað
slíkt ætti ég að segja nú um
núverandi efnahagsaðstæður
mínar. Þó verðum við að lifa á
einfaldan hátt, því að endar ná
varla saman um mánaðamót.
En við erum óendanlega rfk,
samanborið við fátæktina hér
allt um kring.
Ríkidæmi er nefnilega af-
skaplega afstætt hugtak.
Nágranna mínum sem á enga
sokka finnst ég vera vell-
auðugur, af því að ég á 7 pör.
Eða par sem við ókum framhjá,
tötrum klæddum burðarkonum
með vatnskúta eða eldiviðar-
bagga — er ekki þar hyldýpis-
gjá, sem skilur að þann sem
hef ur þann sem ekki hef ur.
Eða hvað finnst þjónum
okkar? I þessu ógnar atvinnu-
leysi, sem hér ríkir höfum við
ráðið fleira fólk en viö höfum
þörf fyrir til að geta stutt við
fleiri bök. Veröld hvíta
mannsins hlýtur að vera þeim
óraunveruleg, draumur. Viö
höfum dæmi um það að þjónar
sem unnu störf sín af stakri
prýði, gættu fyllsta hreinlætis,
elduðu hollan og góðan mat,
beinlínis afklæddust þessari
kunnáttu um leið og vinnu-
fötunum og fjölskyldur þeirra
þjáðust af sömu afleiðingum fá-
fræði og sinnuleysi og nágrann-
ar þeirra.
Hvítur maður hér í Eþíópíu,
ja líklega alls staðar í þriðja
heiminum, lifir við óleysanlegt
vandamál. Nefnilega hið nag-
andi samvízkubit, sem skapast
af því grófa misrétti sem hann
verður daglega að horfast í
augu við og fær ekki breytt.
Hann getur ekki deilt ytri
kjörum með þeim fátæklegu af
heilsufarsástæðum, andlega er
hann reyndar ófær um það lika,
þar sem hann hefur kynnzt því
að hafa stóla og borð og sæmi-
legar, hlýjar flfkur. Og þótt
hann deili út öllu handbæru fé
sfnu, er það eins sem dropi í
hafið og ástandið virðist engu
betra allt um það.
Hin eina raunverulega hjálp
er hjálpin til sjálfsbjargar og
það vinnst bezt með stuttum
en öruggum skrefum, — þeg-
ar eitthvað er kennt sem
er innan spannfæris ein-
staklingsins og hann get-
ur gert að sínu. Þess vegna
er það raunhæfari þróunar-
hjálp, þegar Rannveig kennir
konu að prjóna heldur en þegar
sendar eru að gjöf dráttarvélar,
sem enginn í þorpinu hefur ráð
á að fylla bensíni, hvað þá að
kaupa til hennar plög.
Það er stórt stökk úr fornöld
fram f tækniöld.
En mannleg náttúra er söm
við sig. Við erum sífellt
þvinguð að segja þjónunum að
gera sitthvað sem við höfum
vanizt frá fyrsta fari að gera
sjálf.Hins vegar eru þjónarnir
hjá hvíta fólkinu yfirstétt í
þorpinu, því að þeir hafa til-
tölulega rúm fjárráð. Um
daginn gaf ein nágrannakonan
þjónustustúlku sinni ýmiss
konar varning, semfyllti all-
stóran kassa. Hún fór heim en
kom fljótlega aftur með sfna
þjónustustúlku og lét hana
bera kassann heim. Þá var
Tsige semsé fína frúin, sem
vann úti!
Skrifstofur vorar
verða lokaðar
í dag, frá háctegi vegna jarðarfarar Björns Ólafssonar
fyrrv. ráðherra.
VERKSMIÐJAN VÍFILFELL HF„
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO HF.,
Skrifstofur vorar
og verksmiðjur
verða lokaðar í dag frá hádegi vegna jarðarfarar Björns
Ólafssonar fyrrv. ráðherra.
VERKSMIÐJAN VÍFILFELL HF
bó\rel
Heimilismatur
íHánubagur
Kjöt og kjötsúpa
iíli&bibuliagur
Léttsaltað uxabrjóst
meó hvítkáisjafningi
Jföötubagur
Saltkjöt og baunir
^riöjubagur
Soðin ýsa með
hamsafloti eða smjöri
jfimmtubagur
Steiktar fiskbollur
með hrísgrj. og karry
Haugarbagur
Soðinn saltfiskur og
skata með hamsaf loti
eða smjöri
gmnnubagur
Fjölbreyttur hádegis-
og sérréttarmatseðill