Morgunblaðið - 22.10.1974, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
5
Athugasemd við grein
dr. Bjarna Jónssonar
DR. Bjarni Jónsson yfirlæknir rit-
ar grein í Morgunblaðið 14. sept.
sl. í sambandi við auglýsingu á
prófessorsembætti I barnasjúk-
dómum og stöðu yfirlæknis á
„Barnaspítala Hringsins“.
Vegna fjarveru las ég ekki
þessa grein fyrr en I dag. Þar
segir: „Má geta þess hér, að
Barnaspítali Hringsins er í raun
barnadeild Landspltala og hefur
ekki önnur tengsl við kvenfélagið
Hringinn en þau, að þær konur
afhentu Landspftala fé, sem þær
höfðu safnað gegn því að barna-
deildin yrði tengd nafni félags-
ins.“
Þessi orð yfirlæknisins gætu
valdið misskilningi og mætti
skilja sem svo að aðalkappsmál
Hringskvenna hefði verið að fá
nafn þeirra tengt barnaspftalan-
um, og sfðan ekki söguna meir.
Nú þykist ég þess fullviss að dr.
Bjarni vanmeti ekki á nokkurn
hátt þátt Hringskvenna I þessu
máli eða að þessi ummæli eigi á
nokkurn hátt að kasta rýrð á
þeirra framlag til barnaspítalans.
Það er rétt meðfarið að félagið
lagði fram fé er konurnar höfðu
safnað til byggingar barnaspftala,
þegar fyrirhugað var að stækka
Landspftalann, því að álitið var að
það gæti flýtt fyrir þvf nauðsynja-
máli, að komið yrði þar upp barna
deild. Hitt er alrangt að deildin
hafi ekki önnur tengsl við Hring-
inn en nafngiftina eina. Árið 1965
þegar barnaspítalinn tók til starfa
höfðu Hringskonur Iagt fram 10
milljónir á móti framlagi ríkisins.
Allt fram á þennan dag hefur
barnaspítalinn verið okkar „óska-
barn“ og reynt hefur verið eftir
mætti að búa hann eins vel að
nýjustu og beztu tækjum og lækn-
ar deildarinnar hverju sinni hafa
álitið að með þyrfti. Sama máli
gegnir með „Geðdeild Barnaspft-
ala Hringsins*' við Dalbraut. Auk
tækjakaupa og húsbúnaðar hefur
félagið séð deildunum fyrir
þroskaleikföngum, svo og fært
þeim börnum jólaglaðning sem
þar þurfa að dvelja á jólunum ofl.
Vegna hinna mörgu velunnara
félags okkar, sem svo oft hafa lagt
okkur lið og trúað okkur fyrir
miklum fjármunum, vil ég að lok-
um segja þetta: Við Hringskonur
munum framvegis sem hingað til
kappkosta að hlúa eins vel að okk-
ar „óskabarni" og völ er á og
vonum að tengslin muni aldrei
rofna.
Reykjavík 18. okt. 1974
Ragnheiður Einarsdóttir,
formaður „Hringsins".
(4, 6, 9, 12, 18 mm)
Mótakrossviður plasthúðaður
(12, 15, 18 mm)
Combi-krossviður (greni, birki)
(3, 4, 6/, 9, 12 mm)
|SS|l
Klapparstig 1 Skeifan 1 9
Símar 18430 — 85244
Einkaritaraskólinn
Þessum nýstofnaða
skóla er ætlað
@ að þjálfa nemendur í a) almennum skrifstofu-
störfum b) ensku c) íslenzku d) verzlunarmáli e)
vélritun f) enskri og íslenzkri bréfritun g) notkun
skrifstofuvéla h) bókfærslu i) hraðritun
@ veita nýliðum starfsþjálfun og öryggi
@ endurhæfa húsmæður til starfa á skrifstofum
@ stuðla að meiri afköstum, hraðari afgreiðslu
@ spara yfirmönnum vinnu við að kenna nýlið-
um
@ tryggja vinnuveitanda hæfari starfskrafta
@ tryggja nemendum hærri laun, betri skilyrði
@ spara námskostnað og erlendan gjaldeyri
Nemendur velja sjálfir greinar sínar. Skólinn
starfar í önnum, þannig, að hver nemandi geti
með tímanum aflað sér fullra réttinda án þess
að taka öll fög samtímis. Kennsla hefst 28. okt.
með þjálfun í ensku samkvæmt Pitmanskerfi-
inu. Skrifstofuþjálfun á laugardögum kl. 1—4
sídegis.
Mímir,
Brautarholt 4, sími 10004 kl. 1—7 e.h.
Fleiri
sólargeislar
Lægra verð!
Þrátt fyrir alþjóðlega verðbólgú
hefur okkur tekist að lækka verðið
á sólargeislanum frá Flórída.
Fáið yður TROPICANA / fyrramálið.
Það kostar minna en áður.
SÓL HF.
88 - Handhljóðritari, léttur,
lipur, öruggur.
85 - Minnistæki fyrir vasa,
vönduð tegund.
95 -
Minnistæki fyrir vasa,
lúxustegund.
86 - Afritunartæki
fyrir miníkasettur.
PHILIPS
sparió tíma
98 -
Elektrónískur borðhljóðritari -
jafnvigur til upptöku sem
afspilunar (afritunar).
Borðhljóðritari -
hagkvæmur og hentugur,
jafnt til upptöku
sem afspilunar. 96 -
PHILIPS-HLJÖÐRITUNARTÆKI.
Hér kynnum viö nýju ,,línuna“ í hljóðritunartækjum frá
PHILIPS. Þau létta starfið á hvaða vinnustað sem er.
Kjarninn í kerfinu er nýja mínikasettan, sem gefur
30 mínútna greinilega upptöku (15 mínútur hvorum
megin). Minna getur slíkt undratæki varla verið.
Þessi PHILIPS-tæki tryggja örugga upptöku við öll
hugsanleg tækifæri - við skrifborðið, í bíl eða flugvél,
á eftirlitsferð um vinnustað, úti jafnt og inni - jafnvel
á gangi um fjöll og firnindi, ef svo stendur á.
philips kann tökin
á tækninni
heimilistæki sf
Sætún 8- 15655
Hafnarstræti 3 - 20455