Morgunblaðið - 22.10.1974, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÖBER 1974
7
THE OBSERVER
Friðsamleg
sambúð
í Laos
Eftir Mark
Frankland
Ég var kominn til Vientiane
og stóð við gluggann í hótel-
herbergi mínu horfandi á mó-
rauðan elg Mekongfljótsins
þegar athygli mín beindist að
fjórum gangandi mönnum á
árbakkanum. Þeir gengu í
einfaldri röð, búnir ilskóm og
grænum skyrtum og buxum.
Þeir gengu svo til í takt.
Húfurnar, sem þeir báru,
komu upp um þá. Það voru
litlar derhúfur með mjúkum
toppi, eins og tíðkast nokkuð
hjá brezkum sveitaaðli. Einu
mennirnir í Laos, sem bera
þesskonar höfuðbúnað, eru
félagar í Pathet Lao.
Aðrir vegfarendur niður við
ána skiptu sér ekkert af
þeim. Jafnvel leigubflstjór-
arnir, sem biðu í makindum
fyrir framan hótelið litu ekki
einu sinni upp. Samsteypu-
stjórn hefur tekið við f Laos
— og með henni hafa um
1.000 Pathet Lao hermenn
tekið við störfum sem lög-
reglumenn á höfuðborginni
— og Laosbúum þykir þetta
allt ósköp eðlilegt.
Örstutt héðan, í lestrarsal
upplýsingamálaráðuneytis-
ins, eru þessi umskipti skráð
með Ijósmyndum, og koma
þær þeim nokkuð á óvart,
sem muna fyrri tíma þegar
styrjöld geisaði í Laos. Þá
prýddu veggi ráðuneytisins
myndir af handteknum her-
mönnum frá Norður-Viet-
nam, af flóttamönnum og af
særðu fólki og látnu. í stað
þeirra mynda eru komnar
myndiraf nýju ríkisstjórninni,
sem lítur helzt út eins og
ánægð og endursameinuð
fjölskylda. Þar ber ekki á
siðareglum kommúnista, því
fulltrúar Pathet Lao eru eins
klæddir og allir hinir, í
hvítum kyrtlum og silkibux-
um, en þesskonar klæðnaðar
er krafizt við hirð Laoskon-
ungs.
Ráðherrar Pathet Lao haga
sér einnig að öðru leyti eins
og hinir ráðherrarnir. Þeir
aka til vinnu í Mercedesbif-
reiðum f vestrænum fötum
og með bindi. Og þeir búa
einnig í úthverfunum, sem
risu upp meðan Frakkar fóru
með stjórn landsins, og eru
nú samastaður yfirstétta og
auðmanna.
Sumir vilja í bjartsýni sinni
halda því fram að hóglffið í
Vientiane hafi spillt þessum
kommúnistum. Líklegraerað
þeir kæri sig ekki um að
styggja félaga sína að"
óþörfu. Ef þeir klæddust Mao
jökkum og lifðu áberandi
meinlætalífi, ættu aðrir Laos-
búar erfiðara með að um-
gangast þá. Það væri einnig
hálfkjánalegt, því flestir ráð-
herrar Pathet Lao eru af svip-
uðum uppruna og aðrir ráð-
herrar stjórnarinnar, það er
að segja þeir eru prinsar,
aðalsmenn, eða að minnsta
kosti af þekktum millistéttar-
fjölskyldum komnir (sem er
talsverð upphefð í bænda-
þjóðfélagi eins og Laos).
Öðru máli gegnir um al-
menna félaga Pathet Lao.
Þeir eru flestir búlduleitir og
unglegir sveitastrákar. Þá má
sjá í varðstöðu við hús Pathet
Lao ráðherranna, og þeir
virðast jafn rólegir og væru
þeir að fylgjast með eykjum
sínum á ‘engjunum. Þeim
hlýtur að þykja Vientiane stór
og lífleg borg eftir lífið í rúst-
um þorpa og bæja á yfirráða-
svæði Pathet Lao. Þeir aka
rússnesku jeppunum sínum
með varúð um göturnar;
heima í höfuðborg þeirra
Sam Neua er vart nokkur
umferð.
Enginn veit hve mikil
alvara er á bak við þessa
hóflegu framkomu Pathet
Lao. Fremsti maður þeirra
innan ríkisstjórnarinnar er
Phoumi Vongvichit utanríkis-
ráðherra (sem dvalizt hefur í
New York til að sitja Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna), og gerir hann sitt
bezta til að sannfæra alla um
að hér sé ekki um neitt áróð-
ursbragð að ræða. „Aðal-
atriðið er," segir hann, „að
brjóta niður þann sálræna
múr, sem risið hefur milli
Laosbúa, svo við getum
gleymt því liðna. Sumir ótt-
ast hefndaraðgerðir, en við
höfum lýst því yfir að ekki
verði um neinar hefndir að
ræða. Við verðum allir að
standa saman sem Laos-
búar."
Framkoma Phoumis er jafn
hógvær og orð hans. Hann er
hávaxinn en lotinn, og
sagður þjást nokkuð af þung-
lyndi. Til að sjá ætti hann vel
heima í evrópskum háskóla-
bæ, til dæmis sem prófessor í
asískri heimspeki. Þó er hann
einn af sex áhrifamestu
kommúnistum Laos, og
dvaldist um árabil í óbyggð-
um þar sem hann þurfti oft
að hafast við í hellum til að
forðast loftárásir Bandaríkja-
manna. Hann er ólíkur
Souphanouvong prins,
þekktasta leiðtoga Pathet
Lao, að því leyti að hann er
laus við allan hroka. Hann
játar að Laos sé vanþróað
land, en segir: „Við urðum
seinna til en aðrar þjóðir" —
og bætir þv! kurteislega við
að öll aðstoð sé vel þegin,
hvaðan sem hún komi. Hann
kvaðst ekki bera neitt hatur
til þeirra auðugu fjölskyldna,
sem margfölduðu auð sinn í
styrjöldinni. „Nú þegar friður
er kominn á aukast viðskipta-
tækifærin, og þær fá tæki-
færi til að verða enn auð-
ugri."
And-kommúnistar í Vienti-
ane virðast ánægðir með
framkomu Pathet Lao. Þó
óttast þeir að Norður-Viet-
namar, sem enn hafa her-
sveitir í Laos andstætt
ákvæðum vopnahléssamn-
ingsins, knýi kommúnista !
Laos til að taka upp harðari
stefnu. Tveir æðstu leiðtogar
Pathet Lao hafa enn ekki
látið til sín taka, heldur halda
þeir sig í gömlu aðalstöðvum
miðstjórnarinnar uppi í
fjöllum, en báðir eru sagðir
mjög á bandi kommúnista-
stjórnarinnar í Hanoi, höfuð-
borg Norður-Vietnams.
Enn sem komið er hefur þó
vopnahléssamningurinn
verkað betur í Laos en nokk-
ur þorði að vona þegar hann
var undirritaður. Vientiane er
eina höfuðborgin í Indókína,
sem er vænlegt að heim-
sækja. Þegar ég fór þaðan
var ég hættur að taka eftir
Pathet Lao hópunum, sem
voru á eftirlitsferðum framhjá
hótelglugganum mínum.
Smyrnateppin vinsælu komin aftur. Ekta Ryagarn, ready cut. ílöng og rúnn, ótrúlegt úrval. Hof, Þingholtsstræti 1. Skrifstofustarf óskast Óska eftir skrifstofustarfi hálfan daginn. Hef kvennaskólapróf og margra ára reynslu i alm. skrif- stofustörfum. Upplýsingar í sima 31395.
Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grisaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmíðstöðin Laugalæk, sími 35020. Brotamálmar Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓTATÚN 27, Simi 25891.
Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt í hálfum skrokk- um tilbúið í frystikistuna. 397 kr. kg-* . Kjötmiðstöðin * sími 35020. eNmRRCFRLDRR 7( RIRRHRÐ VÐRR
Flugfreyjufélag íslands
Fundur verður haldinn að Hagamel 4 22.
október kl. 20.30.
Fundarefni: Ymis mál.
Stjórnin.
GAFNALJOS m
BEKKJARINS... \
\
Pað er langt síðan myndvarpan varð
óhjókvæmileg við kennslu.
Eftirtektin eykst, nemandinn skilur og man betur
— þvílíkur munur að kenna með eða ón
myndvörpu.
Það er því óríðandi fyrir nemendur og kennara
að nota bestu tegund.
MODEL 299 fró 3M uppfyllir þær óskir:
Hún blindar ekki.
Myndir og teksti koma
skýrt fram ó tjaldinu
— sömuleiðis litir.
Rykfrí
„Fresnel" linsa.
Minni hiti,
en meira Ijós.
Auðveld og örugg í notkun.
** Hljóðlaus.
■ Góð þjónusta ef eitthvað bregður útaf.
Biðjið um sýningarheimsókn ón skuldbindingar,
3M-UMBOÐIÐ Á ISLANDI:
G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON H/F.
ÁRMÚLA 1 — REYKJAVlK, SlMI (91)85533
SÖLUUMBOÐ OG ÞJÖNUSTA:
FILMUR & VÉLAR S/F. SKOLAVORÐUSTIG 41, REYKJAVlK, SIMI (91)20235.
ELDTRAUSTIR
SKJALASKÁPAR
3ja og 4ra skúffu.
SÆNSK
GÆÐAVARA
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 4, HAFNARFIRÐI
SÍMI 51 91 S