Morgunblaðið - 22.10.1974, Side 14
J 4. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
—
Björn Olafsson fyrrverandi
ráðherra -Minning
Björn Ölafsson, fyrrverandi
ráðherra og stórkaupmaður, var
um langt skeið áhrifamikill
forystumaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann var ótrauður baráttu-
maður frjálsrar verzlunar á Is-
landi í ræðu, riti og starfi, m.a.
sem viðskiptaráðherra þótt við
ýmsa erfiðleika væri þá að etja
eins og bæði fyrr og síðar.
Björn Ölafsson naut ekki Iangr-
ar skólagöngu frekar en margir
gáfaðir jafnaldrar hans, en hann
gekk menntaveginn engu að síður
í lífi sínu og varð ekki sízt virtur
sem menntamálaráðherra.
Björn Ólafsson var um langt
skeið einn af aðaleigendum dag-
blaðsins Vísis og skrifaði um ára-
bil mikið í blaðið. Hann var afar
ritfær, fslenzkumaður mikill,
hafði fornsögur að bakhjarli og
nútlmaleg viðhorf til nauðsynjar
alþjóðlegra viðskipta og sam-
vinnu.
Um nokkurt árabil stóð tölu-
verður styrr um Björn Ólafsson
innan Sjálfstæðisflokksins. Hann
var ekki viðmælandi allra við
fyrstu kynni, þótti stundum þurr
á manninn, jafnframt því, sem
hann var ákveðinn í skoðunum.
Við frekari kynni ávann Björn sér
þó slíkt traust og virðingu að
mikil eftirsjá þótti, þegar hann
hætti afskiptum af stjórnmálum.
Mér er sérstaklega minnisstætt,
að Bjarni heitinn Benediktsson
lét þau orð falla við mig eitt sinn,
að fáa samstarfsmanna sinna í
stjórnmálum virti hann meira en
Björn Olafsson eftir samstarf
þeirra í ríkisstjórn, en áður höfðu
þessir flokksbræður og forystu-
menn ekki ávallt átt samleið I
stefnumótun og aðgerðum á
stjórnmálasviðinu.
Björn Olafsson var íþrótta-
maður, höfðinglegur I framgöngu
og setti svip á umhverfi sitt. Hann
var sjálfum sér samkvæmur í lífi
sínu og skilaði landi sínu slíku
starfi, að lengi verður minnzt.
Geir Hallgrfmsson.
KYNNI mín af Birni Ólafssyni
fyrrv. ráðherra hófust, þegar ég
var á æskuárum, faðir minn og
hann voru miklir vinir þótt
aldursmunur væri talsverður.
Björn Ólafsson var sjálfmennt-
aður maður og lagði ungur að
árum út í verzlunarrekstur og má
telja hann í brautryðjendastarfi
íslenzkrar verzlunar.
Það leið ekki á löngu að eftir
Birni yrði tekið, hugur hans
spannaði vftt svið, hann starfaði
að stofnun Ferðafélagsins, hann
hafði mikinn áhuga á heilbrigðis-
málum og var um tíma formaður
Bálfararfélagsins og mikinn
áhuga sýndi hann félagsmálum.
Hann sat í bæjarstjórn Reykja-
víkur, síðan á Alþingi og ráðherra
var hann lfka.
Af þessu má sjá, að hann var
mjög til forustu fallinn og á
hverju verki, sem hann tók, var
það unnið af miklum myndar-
skap.
Um slfka menn stendur oftast
nokkur styr. Hann var skoðana-
fastur og fór stundum ótroðnar
slóðir og sýndi þar kjark og skör-
ungsskap. Hann var höfðingi hinn
mesti og vammlausari maður
hygg ég að sé vandfundinn.
Konu sína, Ástu Pétursdóttur,
missti hann fyrir allmörgum
árum, og voru þau mjög samlynd
og tregaði Björn hana mjög. Með
Birni Ólafssyni er genginn einn
af beztu sonum Islands.
Hörður Þórðarson.
Kveðja frá
Ferðafélagi tslands.
Sunnudaginn 27. nóvember
1927 var fundur haldinn í húsi
Eimskipafélags tslands. Fundar-
boðandi var Björn Ólafsson stór-
kaupmaður. Á þessum fundi var
Ferðafélag Islands stofnað og
samþykkt lög fyrir það.
Ekki fer á milli mála, að Björr
Ólafsson var annar aðalhvata
maður að stofnun Ferðafélagsins,
þótt hann telji að Sveinn Björns-
son fyrrverandi forseti ætti hug-
myndina að félagsstofnuninni.
Björn hafði ferðazt mikið um
landið, og hann hafði mikla trú á
gildi slíkra ferðalaga. Hann vildi
kenna mönnum að ferðast, eink-
um um óbyggðirnar, með op-
in augu fyrir fegurð og tign
landsins, gróðri þess og nátt-
úrufari. En á þeim tímum var
ekki jafnauðhlaupið að þesshátt-
ar ferðalögum og nú og fróð-
leik og leiðsögn um landið var
raunar hvergi að fá í bókum. Þvf
var það, að hann gekkst fyrir
stofnun Ferðafélags Islands til
þess „að vekja áhuga félags-
manna á ferðalögum um landið,
sérstaklega þá landshluta, sem
lítt eru kunnir almenningi,
en eru fagrir og sérkennileg-
ir. Til þess gefur það út ferða-
lýsingar um ýmsa staði, ger-
ir uppdrætti og leiðarvísa"
eins og segir í fyrstu lögum
félagsins og mun hér koma fram
skoðun Björns og ferðafélaga
hans. Og f ræðu, sem hann hélt,
þegar Ferðafélag Islands var 25
ára, sagði hann meðal annars:
„Eg taldi þá og tel enn höfuð-
nauðsyn að glæða áhuga æsku-
lýðsins fyrir ferðalögum um
landið, svo að hann geti kynnzt
hinni fögru og stórbrotnu náttúru
þess. Þetta land kann enginn að
meta sem skyldi, fyrr en hann
hefur séð það, og hin sterku áhrif
náttúrunnar hafa mótazt f sál
hans“.
Björn Ólafsson var kosinn vara-
forseti í fyrstu stjórn Ferðafélags-
ins og sfðan forseti þess f 4 ár. Á
þessum tíma mótaðist starfsemi
félagsins og að þvf hefur það búið
sfðan. Og þótt að Björn hætti þátt-
töku í stjórn félagsins, þá fylgdist
hann af áhuga með störfum þess
og gengi og ævinlega átti félagið
hauk í horni þar sem hann var.
Um leið og við Ferðafélags-
menn sendum aðstandendum
Björn Ólafssonar innilegar
samúðarkveðjur við fráfall hans,
þökkum við honum giftusama
leiðsögn á fyrstu árum félagsins,
minnugir þess að lengi býr að
fyrstu gerð.
Gfsli Gestsson.
Þorsteinn Kristinsson við Kristsmyndina, ásamt yngsta syni sfnum.
Sýning á mósaík-myndum:
Steinar frá Tasmaníu
Á LAUGARDAG var opnuð sýn-
ing á „grjótmyndum", en þær hef-
ur Þorsteinn Kristinsson gert.
Sýningin er í húsakynnum
verzlunarinnar „Heimilið" að
Sogavegi 188.
Þorsteinn Kristinsson fluttist
til Astralíu ásamt konu sinni,
Ólöfu Óskarsdóttur, og sex börn-
um þeirra árið 1969.
Fjölskyldan er nú komin aftur
hingað til lands.
Þorsteinn settist að í
Strathgordon, sem er á eynni
Tasmaníu og starfaði þar við
orkuver. Efnið í myndirnar fann
hann í námunda við virkjunina,
en þar er mikið um litríkar stein-
tegundir.
Myndir Þorsteins voru sýndar
víðsvegar í Tasmaniu, og tók
hann meðal annars þátt í „sam-
keppnis-sýningu" þar sem Krists-
mynd hans fékk fyrstu verðlaun.
Var sú mynd síðan send víða til
sýningar.
Á sýningunni hér eru um
fimmtán myndir. Sýningin verður
opin á verzlunartíma fyrst um
sinn.
Islenzkur málari
sýnir 1 Sviss
Kári Eirfksson, listmálari,
sýndi dagana 10. september til
5. október 26 olfumálverk f
Galerie Atrium Artis í Genf f
Sviss. Hlaut sýningin góða dóma.
28. september var 15 mfnútna
þáttur f sjónvarpinu um Kára og
tvo aðra listamenn, en það var f
fyrsta skiptið, sem sjónvarpið
gerði sýningu frá Atrium Artis
svo hátt undir höfði.
Blaðið Tribune de Geneve birti
í syrpu með gagnrýni um
sýningar í Genf umsögn um
sýningu Kára, sem blaðið kallar
„Lifandi litabletti": Kári Eiríks-
son er íslenzkur, fæddur 1935 á
Dýrafirði og hefur stundað nám í
Reykjavík og síðan í listaskólan-
um í Kaupmannahöfn og Flórens.
Hann sýnir nú í fyrsta skipti fyrir
almenning í Genf f Galerie Atri-
um Artis í skiptum fyrir Pierre
Vogel sem fór með nokkur verka
sinna til sýningar á þessari fjar-
lægu eyju. Kári Eiríksson sýnir
olíumálverk, nafnlaus, abstrakt
að gerð, lifandi litabletti, sum
gerð af ábúðamiklum innblæstri,
ef maður vill kalla það svo, önnur
samansett af ströngum
geometrískum formum. Enn önn-
ur hafa til að bera þessa
grásvörtu hraunbletti, sem fyrir
skömmu gleyptu lítinn bæ á eyj-
unni.“
Monique Priscille skrifar í blað-
ið La Suisse 25. septemtíer um
Karl Eiriksson: „Liturinn, sem
sprautast úr túbunni, fer um
léreftið og skilur eftir kynlega
samtvinnun, er minnir á þornaða
og harðnaða vafurjurt. Undir
þessu flókna mynstri greinir mað-
ur stórar borgir, heitar sólir og
báta, f dálftið leiksýningar-
kenndri skiptingu milli skugga og
birtu. Kári Eiríksson er íslenzkur.
Innblástur hefur hann fengið frá
ættjörð sinni. Þaðan þessi eld-
gosalogar, þetta stirðnaða hraun,
þessi mosaskófir á steinum og
vatnið að mæta eldinum. Hann
notar dökka hreina liti. Agnirnar,
sem breiðast yfir sjálft léreftið,
gefa hugmynd um steingervinga.
Þrjár myndir halda sérstaklega
athyglinni. Þær sameina leit list-
málarans: dökk form og lóðrétt á
samfelldum glampandi lita-
grunni. Áhrif svarts og heitra lita
eru auðveld, en hér er byggingin
falleg, túlkunin er þétt í sér. I
öðrum myndum Kára Eiríkssonar
finnst manni eins og hann hafi
látið dragast út í hið auðvelda,
sem hefur þá yfirhöndina yfir
umhugsun og leit. Liturinn er
stundum, vel að merkja, þurr og
fráhrindandi.
Hinn 25. september birtist önn-
ur umsögn um Kára í blaðinu
Tribune de Geneve, skrifuð af
Dominique Bord í syrpu af um-
sögnum. Þar segir: „Það lítur út
fyrir, að það, sem Galerie Atrium
Artis sýnir, beri nafnið „mál-
verk“. Það er út af fyrir sig að
hugsa sér, að það skuli hafa verið
sjómenn á bátum, liggjandi við
akkeri í íslenzkri höfn, sem hafa
innblásið Kára Eiríkssyni svona
drjúpandi abstaktlist, en að viður-
kenna, að þessi tegund af verkum
eigi heima við hlið mynda eftir
Fautrier og Plattner á því
minningarspjaldi, sem kallast list-
rænt, það jarðar við hreina fjar-
stæðu."
Œuvres récentes
du peintre Islandais
eiriksson
Du 10 septembre au 5 octobre 1974
GALERIE ATRIUM ARTIS
Sýning Kára f Sviss