Morgunblaðið - 22.10.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER 1974
15
Tónleikar
Á öðrum tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands voru fjög-
ur verk, Adagio fyrir strengja-
sveit eftir Barber, 5. píanókon-
sert Beeethovens, Sjávarmynd-
ir Brittens og Harmforleikur
Brahms. Stjórnandi var Samuel|
Jones frá Bandaríkjunum, en
einleikari Michael Roll frá Eng-
landi. Þetta voru mjög ánægju-
legir tónleikar, bæði sakir fjöl-
breytni verkefnavalsins ogl
vegna vandaðrar meðferðar
þess.
Tðnilst
eftir ÞORKEL
SIGURBJÖRNSSON
Adagio Barbers er e.t.v. ekki
tæknilega erfitt, en góð
strengjasveit undir góðri stjórn
getur gert það viðburðaríkt í
tjáningu og göfgað einfaldleika
þess. Natni stjórnandans við
mótun hverrar hendingar gaf
verkinu sterkan svip — og ein-
kenndi stjórn hans konsertinn
á enda.
I 5. píanókensert Beethovens
héldust þeir vel í hendur ein-
leikarinn og stjórnandinn, voru
stórir í smðum án þess að
skilja smáatriði útundan. Brúin
frá gegnfærslu til ítrekunar
fyrsta kaflans, sem svo oft er
farið með sem vændræðalegt
tilhlaup, var t.d. hér mjög
markvisst byggð. Einleikarinn
var óskeikull mjög, og áberandi
hvað hann var kröftugur án
þess að vera hörkulegur.
Britten er af flestum talinn
merkasta óperutónskáld vorra
tíma. Sjávarmyndirnar fjórar
eru líka úr þeirri smiðju,
„sjávarmillispil" úr óperunni
Peter Grimes. Þótt þær séu vin-
sælar I konsertflutningi og úr
samhengi, þá er því ekki að
neita, að þær segja kunningjum
óperunnar mun meiri sögu. Það
er annars merkilegt í okkar út-
gerðarlandi, að þessi mæta
ópera skuli aldrei hafa verið
tekin til flutnings hér.
Tónleikunum lauk með
„tragíska" forleik Brahms.
Flutningurinp bar vitanlega
sömu einkenni vandvirkni og
birtist í hinum verkunum, en ef
maður ’hengir sig í hugtakið
„tragískur" — en það heiti gaf
Brahms forleiknum sjálfur —
þá var leikurinn heldur of létt-
fættur, sérstaklega i byrjun.
Vera má, að stjórnandinn hafi
samt rétt fyrir sér að taka
Brahms svo klassíkum tökum
frekar en rómantískum, og láta
hann tjá „hið tragíska" í anda
Beaumarchais (og þá Mozarts)
fremur en Goethes.
Þetta voru fyrstu tónleikar
Sinfóniuhljómsveitarinnar,
sem ég hef heyrt á þessu ný-
byrjaða starfsári. Það er auð-
heyrt, að hún er nú vel skipuð
mönnum, og engin óeðlileg
bjartsýni að búast við góðu af
henni í vetur. Ég leyfi mér að
benda á að það væri viðkunna-
legt, ef nöfn hljómsveitar-
manna væru birt í efnisskrám,
sem seldar eru á tónleikunum,
væru þar ,,föst síða“ t.d. í stað-
inn fyrir kortið af sætaskipan
hússins.
Píanótónleikar
Philip Jenkins er góður píanó-
leikari, ræður yfir mikilli tækni
og er „músikalskur“. En, eitt-
hvað vantar í leik hans. Ekki er
Tónlist
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
það tæknileg meðferð verk-
anna, því að allt var skýrlega
sett fram og auðheyrt, að Jenk-
ins „getur miklu meira" en
fram kom á þessum tónleikum.
Ekki verður hann heldur sakað-
ur um „ómúsíkalska" túlkun
hún bar þvert á móti vott um
vönduð vinnubrögð og til-
finningalega ögun. Það er ein-
mitt þessi tilfinningalega ögun
og jafnvægi í túlkun, sem er
eins og hömlur á eðlilegri útrás.
I Chaconne eftir Bach vantaði
allar andstæður milli tilbrigð-
anna, og var öll túlkun með
rómantískum blæ. Sterk og
„klassísk" túlkun hæfir betur
þessum tónbálki, jafnvel þó
Busoni hafi verið búinn að fara
höndum um hann. Sónata f F-
dúr, K-332, eftir Mozart var vel
leikin frá tæknilegu sjónar-
miði, en alveg eins og tónlistin
væri ekkert meira en skemmti-
legur leikur, og í Sonata alla
Toccata eftir W. Alwyn, sem er
eins konar „mér kemur það
ekki við“ tónverk, var sama
uppi á teningnum. Þannig
mætti halda áfram með seinni
hluta tónleikanna. Jenkins er
góður píanóleikari, en í með-
ferð hans er tónlistin ekki
mögnuð þeirri spennu, því lit-
flæði og þeim tilfinningalegu
andstæðum, sem með óskýran-
legum hætti dvergmálar f
undirdjúpum mannssálarinnar.
Sýning á verkum Alvars
Aalto í Norræna húsinu
Fyrstu viku febrúarmán-
aðar n.k. verður haldin í
Norræna húsinu í Reykja-
vík sýning á verkum hins
heimsfræga arkitekts
Alvars Aalto. Aalto er
sem kunnugt er einn fræg-
asti arkitekt og hönnuður
heimsins og meðal frægra
bygginga, sem hann hefur
teiknað er Finnlandiahús-
ið í Helsinki, en hér á ís-
landi þekkjum við bezt
Norræna húsið, sem hann
teiknaði á sínum tíma.
Finnlandia-húsið í Helsinki
er mjög líkt Norræna hús-
inu að flestu leyti, bara
margfaltstærra.
Þóra Kristjánsdóttir, sem sér
um að skipuleggja sýninguna f
Norræna húsinu, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að sýn-
ingin á verkum Aalto hefði staðið
til lengi. Verk hans hafa verið
sýnd og kynnt víða um heim, eins
og t.d. nýverið i Sviss, Frakklandi
og Svíþjóð. I Svíþjóð var komið
upp farandsýningu og það er sú
sýning, sem komið verður fyrir f
sölum Norræna hússins. Á sýn-
ingunni verða módel, teikningar
af frægum húsum, myndir sem
hann hefur málað og ennfremur
krystall, sem Aalto hefur hannað.
Þá verður sýnd kvikmynd um
hann og önnur um finnskan arki-
tektúr.
Sagði Þóra að til stæði að arki-
tektinn kæmi sjálfur til íslands,
en það yrði ekki ljóst fyrr en rétt í
þann mund sem sýningin yrði
opnuð. Hins vegar myndi teikni-
stofa hans í Helsinki aðstoða við
undirbúning sýningarinnar og
verið gæti að kona Aaltos kæmi,
en hún er sjálf arkitekt.
Búizt til skfðaferðar, Fannborg f baksýn
Kerlingarfjalla-
mót á f östudaginn
Skíðaskólinn í Kerlingar-
fjöllum heldur hinn árlega
haustfagnað sinn föstudag-
inn 25. október n.k. í þetta
sinn verður hátíðin haldin
í Súlnasal Hótel Sögu, og ef
að líkum lætur verður mik-
ið fjör og margir, sem vilja
nota tækifærið til þess að
hitta vini og kunningja frá
skíðanámskeiðum sumars-
ins. Á síðustu hausthátíð
var fjöldi fólks svo mikill,
að Hótel Borg reyndist
alltof lítil.
Á hausthátíðinni verður
sýnd kvikmynd, tekin í
„Fjöllunum“ í sumar. En
Kerlingarfjallastemmning-
in nær svo að sjálfsögðu
hámarki í söngnum og
dansinum, sem verður lát-
inn duna fram til kl. 02.
Síðar, að líkindum 10.
nóvember, verða skemmt-
anir fyrir yngri flokkana.
IBM keppi-
kefli Araba?
New York, 18. október. AP.
IBM-fyrirtækið bar til baka I dag
fréttir um að Arabar reyni að
taka yfir fyrirtækið.
Hlutabréf í fyrirtækinu stór-
hækkuðu I verði í kauphöllinni í
London í morgun vegna fréttar-
innar, sem var fyrst höfð eftir
egypzku fréttastofunni, en
lækkuðu aftur þegar IMB gaf út
svohljóðandi fréttatilkynningu:
„Við höfum enga vitneskju um
nokkurs konar samningaviðræður
um sölu á IBM-hlutabréfum til
nokkurrar fyrirtækjasamsteypu
Araba."
Egypzka fréttastofan, sem er
hálfopinber, tiltók ekki hvaða
aðilar tækju þátt f samningavið-
ræðum við IBM og heldur ekki
hvaða aðilar stæðuað fyrirtækja-
samsteypunni.
Ný skólanöfn
Menntamálaráðuneytið hefur
samþykkt tillögu fræðsluráðs
Reykjavíkur um nöfn á nýjum
skólum i borginni:
t Hólahverfi í Breiðholti III
verði Hólabrekkuskóli, sem
stendur við samnefnda götu og
var á vinnuteikningum nefndur
Hólaskóli.
I austurhluta Breiðholts II
verði Seljaskóli og í vesturhluta
sama hverfis verði Ölduselsskóli
við samnefnda götu, En á þessum
slóðum enda göturnar á sel og
skógar.
Ac
ELEKTRONISKAR REIKNIVÉLAR
áa strimli, geymsluverki, minni ecía
reikna, Njöd]aUs
minnum, sjálfviní, ^
<
’Sc
C; 'O
>o S
“ m
Ep
(D
'É
(D
0) í?
fi
.t 0
C. Jk
u- J
■Q) 0
> .
cJ
.Y -d)
0) >
C- C
□ 'tt)
_ (D
m-Y
y (d
Hafid jicr
a
n«ta
Kynnidí oss verkefnic5 -
vér rádfleggjum rðttu RICOMAC elektronisku reiknivSlina.
Œ8
© Ö
.4
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
\ + “x Hverfisgötu 33
Sími 20560
b/ ipienjpiA ] uuauuuepuaBpjA epeq.uuaujj§s pauj 'yH
■^gqeipgfm ‘ueqsneuq ‘je|q||epja_jJ!jA.j nja je|aA|u>||aj
"X ©
%%
J -
o ði
3 l
■ (D
< (D
frd
9*3
(D =
0)
ct O
lí
CD D
ct =
œ 3
œ 1
o m*
< ö
H
<‘.3
m'ct
?3'
<
II
Þ
□
a a
tn <■
5'
0)
CD^
*□
n □
U)i>
r.<y
Jö