Morgunblaðið - 22.10.1974, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 8. SlÐUR
MnaMHBnBBBHBHnnBMaNonir'^ .yem*. tiimiMM ragwa—>■——a—■
I AF
| GEFNU
TIL-
EFNI
Leyfist undirrituðum að bera fram eftirfarandi
spurningu til Ellerts B. Schram, formanns K.S.Í., af
gefnu tilefni:
Var Bjarni Felixson fararstjóri KSÍ í landsliðs-
ferðinni til Danmerkur og Austur-Þýzkalands, eða
var hann ef til vill fréttamaður Sjónvarpsins, svo
sem halda mætti eftir að Bjarni hefur fjallað um
annan þennan landsleik f sjónvarpinu?
Hafi Bjarni verið fararstjóri í ferð þessari, mun
gjaldkeri KSt, Friðjón Friðjónsson, sjálfsagt harma
misnotkun þá er þarna hefur átt sér stað, og stendur
honum Morgunblaðið opið til þess að koma túlkun
sinni á málinu á framfæri,
*’v ' • - ■ MMWMBMWOTMtlKffUaHB—
FH í aðra umferð
STÓRLEIKUR Geirs Hallsteins-
sonar fleytti FH-insum f aðra um-
ferð f Evrópubikarkeppninni f
handknattleik, en úrslit f leik FH
og SAAB, sem leikinn var f
Laugardalshöllinni á laugardag-
inn var 16:14 fyrir FH. Naumari
gat sigurinn þvf ekki verið. Sam-
anlögð markatala úr leikjunum
tveimur 37:36 fyrir FH. En það
var heldur ekki ráðist á garðinn
þar sem hann var lægstur. Sænsk-
ur handknattleikur hefur lengst
af veríð sá bezti á Norðurlöndun-
um, og sænsk lið jafnframt þau
Norðurlandalið, sem lengst hafa
náð að jafnaði f Evrópubikar-
keppninni. Erfiður hjalli er þvf
að baki hjá FH-ingunum, og verði
liðið ekki sérlega óheppið, þcgar
dregið verður f annarri umferð,
þá á það að eiga góða möguleika á
að komast lengra.
Það var auðséð á leiknum á
laugardaginn, að mikið var í húfi
og að engum ofsögum hafði verið
sagt af hörkunni f leik liðanna f
Svíþjóð. Þarna var leikinn hand-
knattleikur af grófustu gerð, og
verður að segja eins og er, að þar
átti sænska liðið algjörlega frum-
kvæðið. Sænsku blöðinn sögðu
eftir hinn nauma sigur SAAB í
leiknum i Svfþjóð, að þeirra lið
hefði verið „rotað út úr Evrópu-
keppninni," en við það má bæta,
að það hafi sannarlega kunnað að
berja frá sér á móti.
Svíarnir léku leikinn á laugar-
daginn án tveggja beztu manna
sinna, Björns „risa“ Andersson,
sem verður frá keppni vegna
meiðsla fram í desember, og
E3fström, sem handarbrotnaði í
leik SAAB og Hellas í sænsku 1.
deildar keppninni helgina áður.
Þeim leik tapaði SAAB 17:12,
enda augljóst að Hellas liðið er
miklu betra um þessar mundir.
En FH-inga vantaði einnig tvo
menn. Ólafur Einarsson var sem
kunnugt er dæmdur í keppnis-
bann eftir leikinn í Svíþjóð, og í
leiknum á laugardaginn kom
strax í ljós, að Gunnar Einarsson
mundi ekki geta leikið. Hann
sneri sig á æfingu daginn fyrir
leikinn, og var það aðeins tilraun
hjá þjálfara FH-inganna, Birgi
Björnssyni, að láta hann byrja í
leiknum. En draghaltur var
Gunnar ekki mikils virði fyrir
FH-ingana og var honum fljótlega
kippt útaf. Að sögn munu meiðsli
Gunnars þó ekki vera alvarlegs
eðlis og standa vonir til að hann
geti leikið í landsleikjaferð þeirri
sem fslenzka landsliðið heldur nú
í.
Slakur leikur
Það væru hreinustu öfugmæli
að segja að meistarabragur hafi
verið á leik FH og SAAB á laugar-
daginn. I heild var leikurinn ákaf-
lega slakur og stundum næsta
leiðinlegur á að horfa. Leikmenn
beggja liðanna gerðu sig seka um
klaufalegar vitleysur og hefur
þar sennilega valdið bæði æfinga-
leysi hjá liðunum og svo tauga-
spenna, sem var gífurlega mikil
hjá báðum aðilum. SAAB-liðið er
greinilega mjög vant þvi að leika
á útivelli, og lék það lengst af
skynsamlega, reyndi að halda
knettinum eins mikið og því var
mögulega unnt, og skjóta ekki
fyrr en sæmileg færi gáfust.
Hnoðaði það mikið inn í vörn FH-
inga, enda greinilega næsta
fátækt af langskyttum. Bauð
þetta upp á mikið brölt og átök,
sem stundum urðu í grófasta lagi.
Þann góða handknattleik sem
sást í þessum leik sýndu FH-
ingar, og maðurinn á bak við allt
spil liðsins var Geir Hallsteinsson.
Furðaði marga á þvf, að Svíarnir
skyldu ekki freista þess að taka
hann úr umferð, sem sennilega
hefði verið eina ráðið til þess að
stöðva hann. Geir segist sjálfur
ekki vera kominn f nógu góða
æfingu, en samt sem áður var
hann inná allan leikinn, og var
engin þreytumerki á honum að
sjá. Þvert á móti virtist hann
magnast f seinni hálfleik, og þá
sýndi hann a.m.k. tvívegis svo
glæsileg markskot, að sjaldan hef-
ur annað eins sézt f Laugardals-
höllinni. Hann skaut utan frá
punktalínu svo föstum skotum, að
varla var hægt að eygja knöttinn
fyrr en hann söng í marki Sví-
anna. Auk þess er svo tækni Geirs
með knöttinn áberandi betri en
hjá flestum öðrum íslenzk-
um handknattleiksmönnum, en
stundum virtust félagar Geirs í
FH tæplega fylgjast með þvf hvað
hann var að gera, og leikbrögð
hans nýttust þess vegna ekki sem
skyldi.
Enginn virtist taugaspenntari í
leik þessum en Viðar Símonarson,
enda hefur Viðar sennilega sjald-
an gert eins margar villur í leik.
Hvað eftir annað reyndi hann að
skjóta úr harla vonlitlum færum,
og skot hans voru einnig óvenju-
leg, laus og óörugg, einkum í fyrri
hálfleik. Víðar náði sér svo á strik
þegar á leikinn leið og skoraði þá
falleg mörk, auk þess sem hann
skilaði knettinum sérstaklega vel
frá sér til samherjanna.
Mestu munaði í þessum leik um
markvörzlu liðanna. Hans Jons-
son f sænska markinu var bezti
maður liðs síns og varði hvað eftir
annað sérlega vel. Hins vegar er
Jonsson greinilega mjög skapstór,
og þegar halla tók undan fæti hjá
SAAB-Iiðinu lét hann það fara
afskaplega í taugarnar á sér og
varði eftirleiðis ekki eins vel.
Hjalti Einarsson var í FH-mark
inu. Til að byrja með varði hann
nokkuð vel, en sfðan virtist hann
„detta úr stuði“ og fékk á sig ódýr
mörk. En á sfðustu sekúndum
leiksins tókst honum að bæta fyr-
ir þessi mðrk með þvf að verja, er
Svíarnir náðu hraðaupphlaupi og
tryggði hann þar með tveggja
marka sigur FH — það sem þurfti
til þess að komast áfram. Reyndar
hefði FH komizt í aðra umferð
þótt markamunurinn hefði orðið
aðeins eitt mark, þar sem þá hefði
gilt reglan um fleiri mörk á úti-
velli.
Mikil stemmning var í Laugar-
dalshöllinni á meðan á leiknum
stóð og fögnuður í leikslok ólýsan-
legur. — Þetta er sannarlega
heimavöllur, varð einum sænska
leikmanninum að orði eftir leik-
inn, og bætti því við, að áhorfend-
ur hefðu verið mjög erfiðir fyrir
SAAB-leikmennina í þessum leik.
— Þeir öskruðu stöðugt á okkur
og höfðu mjög truflandi áhrif
með klappi sínu og stappi, sagði
hann.
Norskir dómarar dæmdu þenn-
an leik. Hlutverk þeirra var ekki
öfundsvert, en þeir sluppu þó
nokkuð vel frá því. Að mátti
finna, hversu þeir létu leikmenn
SAAB komast upp með mikið og
stöðugt röfl. Einnig fannst manni
furðulegt, að þeir skyldu ekki
vfsa beinustu leið útaf þeim leik-
manni SAAB-liðsins, sem barði
Framhald á bls. 23
Geir Hallsteinsson
— Það var meiri spenna f
þessum leik en leiknum í Svf-
þjóð á dögunum, sagði Geir
Hallsteinsson eftir leikinn á
laugardaginn, þar sem hann
sannarlega sýndi sfna gömlu,
góðu takta, og var tvfmæla-
laust maðurinn sem fleytti
FH-ingum yfir hjallann. —
Markvörðurinn þeirra var
okkur mjög erfiður f þessum
leik, bjargaði oft mjög vel, og
auðvitað hafði það meira en
Iftið fyrir okkur að segja, að
missa Gunnar Einarsson úr
liðinu.
— Ég á töluvert eftir til þess
að komast f mitt bezta form,
sagði Geir, og bætti þvf við að
hann væri æfingalftill, hefði
verið frá æfingum f röska
fjóra mánuði vegna veikinda,
sem hann kvaðst nú vonast
eftir að hann væri að yfirstfga,
þannig að hann gæti einbeitt
sér betur að æfingum. — Þetta
var mjög erfiður leikur fyrir
mig, sagði Geir, — þar sem ég
varð að vera inná allan leik-
inn.
Geir kvaðst sannfærður um
að FH-ingar ættu eftir að
komast lengra f keppninni að
þessu sinni. — Við eigum að
geta gert miklu meira en við
höfum sýnt að undanförnu,
sagði hann.
Birgir Björnsson
— Ég er ekki ánægður með
leikinn, en hins vegar mjög
ánægður með sigurinn, sagði
Birgir Björnsson, eftir leikinn
á laugardaginn. — Þetta var
svipaður leikur og úti f Svf-
þjóð, a.m.k. hvað hörkunni við-
kom, — munurinn var bara sá,
að þessi Ieikur var langtum
betur dæmdur.
Birgir sagði að miklu hefði
munað fyrir FH-liðið að þeir
bræður Gunnar og Ölafur gátu
ekki leikið þennan leik með
liðinu. — þegar þeir koma inn
f liðið aftur er ég viss um að
við eigum eftir að gera betur f
næsta Evrópubikarleik, hvaða
liði svo sem við mætum, en
Birgir sagðist ekki hafa eitt lið
frekar öðru á óskalistanum
yfir næsta mótherja f keppn-
inni.
LIÐ FH: Hjalti Einarsson 1, Geir Hallsteinsson 4, Sæmundur
Stefánsson 2, Gils Stefánsson 3, Jón Gestur Viggósson 2, örn
Sigurðsson 2, Viðar Sfmonarson 2, Þórarinn Ragnarsson 2,
Gunnar Einarsson 1, Erling Kristensen 1.
LIÐ SAAB: Hans Jonsson 4, Greger Larsson 2, Jan Jonsson 3,
Jan Aake Fredrikson 2, Per-Ove Anderson 2, Klas Lagerström 1,
Bo Lennart Persson 3, Kent Gustavsson 2, Lars Jonsson 2, Rolf
Jonsson 1, Mikael Nystrand 1, Mats Sjöberg 1.
Geir Hallsteinsson sýndi enneinu sinni hversu mikill afburðarmaður hann er f handknattleik á laugardaginn. Það var hann sem átti
mestan heiðurinn af þvf að FH komst f aðra umferð Evrópubikarkeppninnar.