Morgunblaðið - 22.10.1974, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÖBER 1974
Arsenal situr á
botninum
En Liverpool og Manch. Gty í forustu
Liverpool og Manchester
City hafa nú forustu f
ensku 1. deildar keppninni
f knattspyrnu. Bæði liðin
hafa hlotið 19 stig, en
markahlutfall Liverpool-
liðsins er betra og það því í
fyrsta sæti. Bæði þessi lið
lentu f kröppum dansi f
leikjum sfnum á laugar-
daginn, en mörðu sigur
1—0; City vann Luton
Town á heimavelli, en
Liverpool sigraði Queens
Park Rangers á útivelli.
Eftir leikina á laugar-
daginn situr svo hið forn-
fræga félag Arsenal eitt og
yfirgefið á botninum, og
lftur nú verulega illa út
hjá félaginu, sem á að baki
lengri feril f 1. deildar
keppninni en nokkurt
annað enskt knattspyrnu-
félag. Hefur Arsenal stöð-
ugt átt sæti f 1. deild sfðan
1919.
Leikirnir á laugardaginn þóttu
margir hverjir hinir skemmtileg-
ustu og buðu upp á mikla spennu
og mörg mörk, enginn þó eins og
leikur Middlesbrough og
Coventry, en í þeim leik voru
skoruð samtals 8 mörk. Slíkt er
harla óvenjulegt i ensku knatt-
spyrnunní um þessar mundir, þar
sem megináherzlan er lögð á
varnarleik og flest liðanna leika
leikaðferðina 4-3-3, eða 4-4-2.
Svo vikið sé að einstökum leikj-
um, þá þótti leikur Birmingham
og Newcastle einna beztur af
leikjum laugardagsins. Birming-
hamliðið lék þennan leik af-
bragðsvel — sýndi á löngum köfl-
um knattspyrnu eins og bezt
verður á kosið. Fyrsta mark leiks-
ins skoraði Ken Burns þegar á 7.
mínútu, og á 38. mínútu bætti
Archie Styles öðru marki við,
eftir mikil varnarmistök hjá New-
castlemönnum. Stóð þannig í hálf-
leik, og þrátt fyrir góða tilburði
Newcastle manna gekk hvorki né
rak hjá þeim í seinni hálfleik, og
á 80. mínútu tókst Bob Hatton að
innsigla sigur liðs síns með glæsi-
legu skoti af 20 metra færi.
Áhorfendur að leik þessum voru
33.339.
Queens Park Rangers —
Liverpool 0—1
Mjög mikill hraði var í þessum
leik og séð frá upphafi að bæði
liðin ætluðu sér ekkert minna en
sigur. Kom það nokkuð á óvart,
hvað Q.P.R.-liðið lék opið í
þessum leik, þar sem búizt hafði
verið við því fyrirfram að það
mundi reyna að leika upp á
markalaust jafntefli gegn bikar-
meisturunum. Skall oft hurð
nærri hælum við mörk liðanna,
einkum þó hjá Liverpool, og var
það fyrst og fremst frábær mark-
varzla Ray Clemence sem kom í
veg fyrir að Lundúnaliðið
skoraði. Það var Brian Hall sem
skoraði eina mark leiksins, og
gerði hann það á 7. mínútu, eftir
að þeir Steve Boersma og Kevin
Keegan höfðu leikið vörn Q.P.R.
grátt. Áhorfendur að þessum leik
voru 27.394.
Manchester City —
Luton Town 1—0
Gffurleg barátta var í þessum
leik. Luton-leikmennirnir lögðu
ailt kapp á að halda knettinum og
verjast, og tókst þeim það fram á
67. mfnútu, er Mike Summerbee
skoraði með fallegu skoti fyrir
Manchester-liðið. Eftir mark
þetta losnáði nokkuð um leikinn
og bæði liðin áttu allgóð tækifæri.
30.649 áhorfendur voru að leikn-
um.
West Ham United —
Ipswich 1—0
Vegur West Ham United fer nú
stöðugt vaxandi, og á laugar
daginn lagði liðið Ipswich Town
að velli, en Ipswich hefur lengi
haft forystu í L deildar keppn-
inni. Voru eigi færri en 33.543'
áhorfendur að leiknum, flestir á
bandi West Ham og létu þeir
óspart til sín heyra. Hafa ekki
verið svo margir áhorfendur á
Upton Park, leikvelli West Ham,
um langt árabil.
Eina markið sem kom í þessum
leik gerði Billy Jennings á 33.
mfnútu, og var það algjörlega
hans eigið verk. Jennings náði
knettinum úti á miðjum velli, lék
sig í gegnum vörn Ipswich og
skoraði af stuttu færi með vinstri
fótar skoti.
Leeds — Wolves 2—0
Ensku meistararnir Leeds
United áttu ekki í vandræðum
með Úlfana í þessum leik, og
hefðu eftir atvikum átt að vinna
stærri sigur. Má vera að það hafi
haft örvandi áhrif á liðið, að fyrr-
verandi framkvæmdastjóri þess,
Don Revie, var meðal áhorfenda.
Á 40. mínútu náði Leeds forustu í
leiknum, er Joe Jordan átti hár-
nákvæma sendingu á Alan Clarke
sem skoraði, og á 81. mfnútu bætti
Mc Kenzie öðru marki við með
mjög fallegu skoti af 30 metra
færi. Áhorfendur voru 32.224.
Leicester —
Sheffield United 3—0
Þarna áttu flestir von á fremur
jöfnum leik, en Leicester-liðið var
í miklum ham og sótti nær stanz-
laust allan leikinn. Frank
Worthington skdtaði fyrsta mark-
ið á 8. mínútu, þegar Keith Weller
hafði brotizt í gegnum vörn
United-liðsins og lagt fyrir hann
knöttinn. Worthington var svo
aftur á ferðinni á fyrstu mínútu
seinni hálfleiks og breytti stöð-
unni í 2:0, og hann átti einnig
góðan þátt í þriðja marki Leicest-
er, sem Len Glover skoraði á 61.
mínútu. Áhorfendur voru 18.443.
Everton — Chelsea 1—1
Þarna var einnig um mjög tví-
sýnan og skemmtilegan leik að
ræða. Chelsea náði forystu á 6.
mínútu er Charlie Cooke skoraði.
Krækti hann í knöttinn, þegar
Chris Garner hafði skallað í stöng
og út. Eftir markið náði Everton
hins vegar betri tökum á leiknum,
en tókst ekki að jafna fyrr en
langt var liðið á seinni hálfleik-
inn. Þá var dæmd vítaspyrna á
Chelsea sem Gary Jones skoraði
örugglega úr.
Carlisle — Derby 3—0
Allir eru á einu máli um að
þarna hafi Carlisle sýnt sinn lang-
bezta leik síðan liðið komst í 1.
deild. Leikmenn liðsins börðust
nú af miklum krafti og ákveðni,
en þetta tvennt hefur þótt helzt á
skorta hjá liðinu í vetur. Varð
leikurinn um tíma mjög grófur og
lá við áflogum leikmanna.
Middlesbrough —
Coventry 4—4
Það er fátítt að átta mörk séu
skoruð í leik í 1. deildar keppn-
inni ensku, og þykir það einkum
mikil tíðindi, að leikmönnum Cov-
entry, sem hingað til hefur ekki
gengið alltof vel að skora, skyldi
takast að gera fjögur mörk gegn
hinni sterku vörn Middlesbrough.
Annars var þessi leikur fyrst og
fremst sigur fyrir Graham
Souness i Middlesbrough-liðinu,
sem átti þarna sannkallaðan
stjörnuleik, skoraði tvö mörk
sjálfur og lagði auk þess tvö mörk
upp.
2. deild
Manchester United vann einn
sigurinn enn á laugardaginn og
hefur nú örugga forustu í 2. deild-
ar keppninni. Er nú aðeins spurn-
ingin hvort leikmenn liðsins
halda út það sem eftir er — flestir
virðast sammála um að lið United
sé það bezta sem nú leikur í 2.
deildinni, ásamt liðum Aston
Villa og Sunderland, en þau lið
gerðu jafntefli 0—0 á laugar-
daginn í leik, þar sem öll áherzla
var lögð á vörnina.
Æfingar J.R.
Þar sem nokkrar villur voru í
frásögn blaðsins af vetrarstarfi
Júdófélags Reykjavíkur, skal það
tekið fram, að æfingatímum verð-
ur þannig háttað, að á mánudög-
um verða æfingar fyrir konur og
„old boys“, á þriðjudögum æfing-
ar fyrir drengi 10—14 ára, fyrir
framhaldsflokk og fyrir byrjend-
ur, á miðvikudögum fyrir konur
og „old boys“, á fimmtudögum
fyrir drengi 10—14 ára, á föstu-
dögum fyrir byrjendur 15 ára og
eldri og á laugardögum verða svo
samæfingar fyrir alla flokka.
Á fimmtudögum verður svo
þjálfaranámskeið og sameiginleg
æfing allra félaga innan Júdósam-
bands íslands í húsakynnum
félagsins í Brautarholti 18.
West Ham United færist stöðugt ofar á töflunni, og kann svo að fara að liðið blandi sér f toppbaráttuna f
1. deildar keppninni. Myndin er úr leik West Ham og Manchester City. Það var Bobby Gould sem átti
markskot sem Keith Mac Rae, markvörður City, gómar, en Tommy Booth hefur einnig verið til varnar.
1. DEILD
Liverpool 13 5 0 1 14:4 412 7:4 19
Manchester City 14 7 10 14:3 123 5:12 19
Ipswich Town 14 5 10 11:1 305 7:8 17
Everton 14 3 5 0 10:7 141 9:9 17
Stoke City 13 4 3 0 13:5 2 13 7:10 16
Middlesbrough 13 2 2 1 11:9 412 8:5 16
Derby County 14 3 2 0 13:6 1 4 3 8:13 16
Newcastle United 13 4 3 0 11:6 1 2 3 8:13 15
Burnley 14 4 0 3 13:11 3 1 3 10:12 15
West Ham Uníted 14 4 12 17:9 1 3 3 8:13 14
Wolverhampton Wanderes 14 2 3 1 10:7 233 5:8 14
Birmingham City 14 4 1 3 15:13 213 5:7 14
Sheffield United 14 4 2 1 11:7 1 2 4 8:17 14
Carlisle United 14 3 13 5:4 223 7:8 13
Coventry City 13 1 4 1 8:9 2 2 3 10:14 12
Leeds United 14 4 1 1 11:3 0 2 5 5:12 11
Leicester City 12 2 3 2 8:5 113 8:13 10
Tottenham Hotspur 13 3 14 11:10 1 0 4 5:10 9
Queens Park Rangers 13 1 2 4 5:8 1 3 2 6:8 9
Chelsea 13 12 3 4:9 2 3 2 9:11 9
Luton Town 14 12 3 7:12 043 5:9 8
Arsenal 13 -12 2 8:6 116 4:13 7
2. DEILD
Manchester United 14 5 1 0 14:3 5 2 1 10:4 23
Sunderland 13 4 3 0 13:2 321 9:4 19
Norwich City 13 6 10 13:2 14 1 5:7 19
Aston Villa 13 5 10 17:2 142 4:6 17
York City 14 3 3 1 11:5 2 2 3 9:11 15
West Bromwich Albion 12 3 2 2 9:5 221 5:2 14
HullCity 14 2 4 0 6:3 2 2 4 10:21 14
Fulham 13 3 2 2 13:5 132 2:4 13
Notts County 14 3 4 0 11:6 034 4:10 13
Notthingham Forest 14 2 2 3 10:9 3 1 3 7:12 13
Blackpool 13 3 2 1 9:4 124 5:9 12
Bristol City 11 2 3 0 5:2 132 3:5 12
Oldham Athletic 12 5 0 2 10:6 023 3:7 12
Bristol Rovers 12 4 2 1 9:4 023 2:11 12
Oxford United 12 3 0 2 6:7 1 3 3 5:12 11
Bolton Wanderes 11 4 1 1 9:3 014 2:9 10
Southampton 13 2 4 1 11:9 1 0 5 7:13 10
Millwall 14 4 1 2 11:5 0 1 6 2:15 10
Portsmouth 14 1 4 1 6:6 1 2 5 6:15 10
Sheffield Wednesday 14 13 3 7:10 1 2 4 4:9 9
Cardiff City 13 114 5:9 1 1 5 5:15 6
KNATTSPYRNUURSLIT
ENGLAND 1. DEILD:
Birmingham — Newcastle 3:0
Carlistle — Derby 3:0
Everton — Chelsea 1:1
Leeds — Wolves 2:0
Leicester — Sheffield Utd. 3:0
Manchester City — Luton 1:0
Middlesbrough — Coventry 4:4
Queens Park — Liverpool 0:1
Stoke — Burnley 2:0
Tottenham — Arsenal 2:0
West Ham — Ipswich 1:0
ENGLAND 2. DEILD:
Blackpool — Manchester Utd. 0:3
Bolton — Cardiff 2:1
Bristol R — Millwal! 2:0
Fulham — Bristol C. 1:1
Norwich—Portsmouth 2:0
NottsCounty — Oxford 4:1
Oldham—York 2:3
Sheffield Wed. — Hull 2:1
Southampton — Orient 4:2
Sunderland — AstonVilla 0:0
W.B.A. — Notthingham 0:1
ENGLAND 3. DEILD:
Aldershot — Bury 1:1
Blackburn — Port Vale 2:2
Urslit
getrauna
Birmingham - Newcastle
Carlisle - Derby
Everton - Chelsea
Leeds - Wolves
Leicester - Sheífield Utd.
Manch. City - Luton
Middlesbro - Coventry
O.P.R. - Liverpool
Stoke - Burnley
Tottenham - Arsenal
West Ham - Ipswich . .
Sunderland . Aston Villa
Brighton — Preston 0:4
Charlton — Chesterfield 3:2
Crystal Palace — Walsall 1:0
Grimsby — Gillingham 2:1
Hereford — Halifax 0:0
Plymouth — Peterborough 2:0
Swindon — Wrexham 2:1
Tranmere — Huddersfield 1:2
Watford — Bournemouth 1:0
SKOTLAND 1. DEILD:
Arbroath — Partick Thistle 2:0
Ayr Utd. — Dundee Utd. 1:1
Celtic — Hibernian 5:0
Dumbarton — Aberdeen 2:3
Dundee — Monrton 3:0
Hearts—Airdrieonians 2:1
Motherwell — Kilmarnock 2:0
Rangers — Clyde 3:1
St.Johnstone — Dunfermline 2:1
SKOTLAND 2. DEILD:
Álbion — Forfar 5:3
Cowdenbeath — Hamilton 1:1
East Fife — Falkirk 1:0
East Stirling — Alloa 4:0
Meadowbank — St. Mirren 2:4
Montrose — Stanraer 1:2
Queen of the South — Brechin 3:0
Queens Park — Clydebank 1:0
Stirling — Raith Rovers 2:1
Stenhosemuir — Berwick 2:0
V-ÞÝZKALAND
1. DEILD:
Bayern Múnchen —
Eintracht Frankfurt 2:1
FC Köln — Schalke 04 4:2
Hamliurgcr SV —
Wuppertaler SV 4:1
VFB Stuttgart —
Einsiracht Braunswich 0:0
VFL Bochum —
FC Kaiserslautern 4:0
Hertha BSC Berlín —
Werder Bremen 2:0
Fortuna Dusseldorf —
Tennis Borussia 3:2
Rot-Weiss Essen —
MSVDuisburg 3:0
Kickers Offenbach —
Borussia Mönchengladbach 4:3