Morgunblaðið - 22.10.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÖBER 1974
19
Björgvin
Þorsteinsson
„MlNA fyrstu golfkylfu
eignaðist ég átta ára að
aldri. Ég var reyndar ekki
einn um hituna, heldur vor-
um við þrfr félagarnir, sem
þennan grip áttum. Hann
var afar fornfálegur. Tveir
okkar halda enn tryggð við
golfið. Hinn er Gunnar
Þórðarson, golfleikari f
fremstu röð.“
Þannig fórust Björgvin
Þorsteinssyni, tslandsmeist-
aranum f golfi, orð um dag-
inn.
Björgvin er fæddur á
Akureyri árið 1953, og hefur
að mestu alið aldur sinn þar,
en er nú við nám hér f
Reykjavfk. Ungur að árum
fór hann að leika sér á
gamla golfvellinum á Akur-
eyri, sem er skammt frá
heimili hans. Hann dró kerr-
urnar fyrir „alvörugolfar-
ana“ og fékk leyfi við og við
til að slá boltann. Og árang-
urinn hefir ekki látið á sér
standa. Björgvin vakti fljótt
athygli golfleikara á Akur-
eyri, og með þeirra aðstoð og
foreldra sinna sótti hann
fyrst á Islandsmót árið 1964,
ellefu ára að aldri.
„Það ár var mótið haldið f
Vestmannaeyjum og var þá f
fyrsta skipti keppt f ung-
lingaflokki, leiknar 36 hol-
ur. Eg hafnað f þriðja sæti, á
eftir Eyjólfi Jóhannssyni og
Viðari bróður mfnum.“
(Viðar er kunnur knatt-
spyrnu- og handknattleiks-
maður á Akureyri). Og
Björgvin hélt áfram: „Eg
hygg að enginn golfari hafi
farið frá Eyjum ánægðari en
ég var. Eg þóttist loks maður
með mönnum. Sfðan hefi ég
tekið þátt f öllum tslands-
mótunum, ellefu að tölu“.
Það varð þó ekki fyrr en
árið 1970 sem Björgvin
krækti sér f Islands-
meistaratitil, en þá varð
hann unglingameistari.
Fjögur árin þar á undan
hafði hann ávallt hafnað f
öðru sæti unglingaflokks.
Árið eftir var lslandsmótið
haldið á Akureyri, og þá
sigraði Björgvin f meistara-
f lokki eftir harða keppni við
nafna sinn Hólm. 1972 tókst
Björgvin ekki að verja titil
sinn. Þá sigraði annar ungur
golfari, Loftur ólafsson. Tvö
undanfarin ár hefir Björg-
vin aftur á móti orðið ts-
landsmeistari, og nú f sumar
sigraði hann með yfirburð-
um, varð ellefu höggum á
undan næsta manni. Um það
efast enginn, sem til þekkir,
að Björgvin er fremstur
fslenzkra golfleikara f dag.
Björgvin hefir tekið þátt f
nokkrum golfmótum erlend-
is og þá einkum sem einn
landsliðsmanna okkar, og
frammistaða hans verið með
Framhald á 23
Hákon Ólafsson formaður
Skíðasambandsins í viðtali
Efniviður er
alltaf nægur og
aðstaðan fer batnandi
„SKtÐASAMBAND tslands er
elzta sérsambandið innan l.S.t.,
stofnað árið 1946 í Reykjavfk.
Helzti hvatamaður að stofnun
sambandsins var Einar B. Pálsson
og gegndi hann formennsku f
Skfðasambandinu um árabil".
Þannig fórust Hákoni Ölafs-
syni, núverandi formanni Skíða-
sambandsins, orð f viðtali við
Morgunblaðið nýlega.
— Hver eru helztu viðfangsefni
stjórnar sambandsins?
— „Ja, þar er af mörgu að taka.
Eitt allra brýnasta verkefnið er
þó að hvetja og styðja af mætti til
að afla sér menntunar sem skfða-
þjálfarar. Menntaðir skíðaþjálf-
arar eru nær óþekkt fyrirbæri
hér á Islandi, og því höfum við
oftast þurft að leita út fyrir lands-
steinanna til að fá þjálfara, þegar
þátttaka í stórmótum hefir staðið
til. 1 alpagreinunum, svigi og stór-
svigi höfum við þó átt hauk í
horni, þar sem Magnús Guð-
mundsson er, en hann er skíða-
þjálfari að atvinnu í Bandaríkj-
unum. I norrænu greinunum
höfum við ávallt leitað til grann-
þjóða okkar, Svía og Norðmanna
og höfum ætíð mætt þar miklum
skilningi.
— Hvernig er fjárhag sam-
bandsins háttað?
„Eins og flest hinna sérsam-
bandanna eigum við í örðugleik-
um með rekstrarfé. Þar af leið-
andi er starfsemin ekki eins öflug
og æskilegt væri. Við verðum að
sníða okkur stakk eftir vexti.
Þessi rekstrarvandræði eru þess
valdandi að okkur tekst ekki að
reka kynningarstarfsemi af þeim
krafti sem við óskum. T.d. margir
orðið til að gagnrýna hversu norr-
ænu greinarnar hafa orðið útund-
an við útbreiðslu skfðaíþróttar-
innar, gagnrýni sem á nokkurn
rétt á sér. Þar strandar jú á fjár-
magninu. Það er staðreynd að
mun fleiri hafa áhuga á alpa-
greinunum, og þar af leiðandi
verðum við að leggja meira fé í
þær.“
— Hvað um önnur verkefni
stjórnarinnar?
„Hlutverk stjórnarinnar, sem
samanstendur af níu mönnum.
fimm hér I Reykjavík og einum
fulltrúa frá hinum meiriháttai
skíðastöðunum á landinu, Akur
eyri, tsafirði, Húsavík og Siglu-
firði, er ef til vill fyrst og fremst
að efla samskiptin á milli félag-
anna á landinu svo og við aðrar
þjóðir. Einnig raðar stjórnin
niður mótum vetrarins, það er að
segja þeim mótum sem opin eru. I
vetur verða haldin fimm svo-
nefnd punktamót auk Landsmóts-
ins sem fram fer á Isafirði. Eftir
útkomu skíðamannanna úr
þessum sex mótum er landsliðið
svo valið. Annars höldum við full-
trúaráðsfund á Akureyri helgina
19.—20. okt., þar sem þessi mál
verða til umræðu."
— Hvenær á Unglingameistar-
.mótið að fara fram og hvar?
„Það mun fara fram um
páskana um leið og Landsmótið.
Unglingamótið verður haldið á
Akureyri og Ölafsfirði. Alpa-
greinarnar fara fram á Akureyri,
en norrænu greinarnar í Ólafs-
firði. AnnarserUnglingameistara
mótið orðið mun stærra í sniðum
en Landsmótið. A unglingamót-
inu erkepptítveimur flokkum
drengja og einum stúlknaflokki.
Það er mín persónuleg skoðun, að
Unglingamótið ætti að halda á
undan Landsmótinu og gefa þeim
unglingum sem þar sigra kost á að
taka þátt í Landsmótinu sem
nokkurs konar verðlaun. Þetta
fyrirkomulag hafa Norðmenn á
sínum mótum. En því miður er
þetta illframkvæmanlegt, þar sem
nær allir unglingarnir eru I skól-
um og erfitt fyrir þá að slfta sig
frá náminu um viku skeið til
skiðakeppni."
— Eru fyrirhuguð samskipti við
aðrar þjóðir á vetri komanda?
„I fyrra tókum við á ný þátt í
heimsmeistaramótinu í alpagrein-
um, sem fram fór í St. Moritz. Um
nokkurt skeið hafði þátttaka
okkar Islendinga legið niðri.
Nokkru áður en mótið fór fram
sendum við þrjá af okkar kunn-
ustu skfðamönnum til Mið-
Evrópu til að taka þátt í nokkrum
undirbúningsmótum. Arangur
þeirra var framar öllum vonum
og var sínu betri við hvert mót
sem þeir tóku þátt í. t.d. náðum
við betri árangri en Norðmenn og
segir það sína sögu. Einnig áttum
við einn fulltrúa á heimsmeistara-
mótinu í norrænum greinum, sem
fram fór í Falum í Svfþjóð. Ekk-
ert er enn ákveðið um samskipti
við aðrarþjóðirnema áframhald
verður á hinni árlegu lands-
keppni við Skota, sem fram fer f
Skotlandi síðari hluta vetrar. En
Olympfuleikar eru á næsta leiti,
verða haldnir í Insbruck
1976, og auðvitað stefnum
við að þátttöku þar. Því munum
við þegar hefja undirbúning með
þá glæsilegu keppni í huga. Það
hljómar ótrúlega, en er satt, að
Danir tóku þátt f sfðustu heims-
meistarakeppni í alpagreinum.
Að vísu voru það Grænlendingar
sem kepptu í þeirra nafni. Eftir
mótið orðuðu þeir það að eiga við
okkur samskipti. Ekki er ólíklegt
að af þeim geti orðið þegar á
þessum vetri.“
Gætir ekki aukinnar grósku í
skfðaiðkan hér á landi?
„Jú, vissulega. Augu fólks eru
sífellt að opnast fyrir hvers konar
fþróttaiðkan með líkamsþjálfun í
huga. Skíðaíþróttin er afar vel
fallin til slíks, hóflegt erfiði og
ágæt skemmtun. Að sama skapi
hafa augu ráðamanna opnast
fyrir ágæti skíðaíþróttarinnar og
stöðugt rísa ný mannvirki til að
Framhald á 23
Með góðum skfðalyftum gjörbreyttist staða skfðafþróttarinnar til batnaðar. Mynd þessi er tekin á
góðviðrisdegi f Hveradölum og sýnir biðröð við eina lyftuna.
Jon
Sammels
JON Sammels, sem fæddur
er f Ipswich, var atvinnu-
maður hjá Arsenal um nfu
ára skeið samfleytt. Hann
gat sér snemma góðan orð-
stfr sem hraðsnúinn mið-
vallarspilari, með ágæta
hæfileika til að skora mörk.
En leiktfmabilið 1970/1971
var hann eins og úti að aka
sem leikmaður Arsenal. Það
tfmabil lék hann aðeins 13
af 42 leikjum félagsins f 1.
deildinni og skoraði aðeins
eitt mark.
Sammels var þvf seldur
fyrir 100 þús. pund til
Leicester.
Margir urðu til að efast
um, að maður sem væri orð-
inn svo rótgróinn f stórborg,
mundi una sér f tiltölulega
lítilli borgsem Leicester.
Sammels svaraði á eftir-
farandi hátt: „Jú, ég veðjaði
á réttan hest.“ Þess má geta
að Sammels og félagar hans
f Leicester hafa mjög mik-
inn áhuga á hverskonar veð-
málastarfsemi, eins og er
reyndar tftt um Breta. „Auð-
vitað kynnti ég mér vel allar
aðstæður hér f Leicester og
hreifst af þeim. Einkum
kann ég vel að meta, hve
hraðinn er hér miklu minni
en f London.“
Fyrsta leiktfmabfl sitt
með Leicester !ék hann 40
leiki og skoraði 5 mörk. Að
vfsu ekki mjög mörg mörk,
en tekið skal tillit til að nú
leikur hann aftar á vellinum
og hefir þvf minni mögu-
leika á að skora en þegar
hann lék með Arsenal. Hann
skýtur yfirleitt á mark mjög
óvænt af löngu færi. Kraft-
urinn f skotum hans er mjög
mikill og flest hafna þau
rétt undir eða yfir slá. Allt
gerir hann af mikilli kunn-
áttu. Stundum aðhefst hann
lftið á miðjunni, en tekur
svo á rás og splundrar gerð-
um andstæðinganna.
Og Sammels heldur áfram
að tala um Leicester. „Það
er margt hér við að vera. Við
leikmennirnir tengjumst
mun nánari böndum hér en
f London. Það gerir það að
verkum að okkur tekst betur
upp f knattspyrnunni en ella
væri. Ef okkur langar til að
sjá önnur iið leika, er stutt
að fara til kunnra knatt-
spyrnuborga. Derby,
Coventry, Forest, Birming-
ham, allir þessir staðir eru f
næsta nágrenni. Hér finn ég
mig, ég hefi aldrei verið
betri en einmitt nú.“
Áhangendur Leicester og
margir fleiri telja, að liðið
hafi mjög góðum knatt-
spyrnumönnum á að skipa,
og að aðeins vanti herzlu-
muninn á að Leicester
blandi sér f toppbaráttuna.
Framkvæmdastjóri Leicest-
er, Bloomfield, er stöðugt á
höttunum eftir hinum rétta
manni, fyrir rétt verð auð-
vitað, iðnum markaskorara.
Ef að hann finnst, verður
Framhald á 23