Morgunblaðið - 22.10.1974, Qupperneq 21
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
21
George Foreman, ásamt þjálfara sfnum, Dick Sadler
28. október n.k. munu þeir
Muhammed AIi og George Fore-
man berjast I Zaire um heims-
meistaratitilinn I hnefaleikum
þungavigtar. Upphaflega átti
keppni þessi að fara fram 23.
september sJ., en var frestað á
sfðustu stundu, þar sem Foreman
varð fyrir meiðslum á æfingu.
Hundruð fréttamanna vfðs
vegar að úr heiminum voru
komin tii Zaire til þess að fylgjast
með viðureign kappanna, og búið
var að leggja gífurlega fjármuni I
undirbúning keppninnar.Var þvf
mikið um að vera, er Ijóst varð, að
Foreman myndi ekki geta tekið
þátt f keppninni á tilsettum tfma,
en eftir mikið japl og jaml og
fuður var ákveðið að fresta henni
til 28. október. Skuldbundu kepp-
endurnir sig til þe'ss að dveljast í
Zaire fram að þeim tfma.
Meðfylgjandi viðtal við heims-
meistarann, George Foreman, var
tekið, áður en hann hélt til Zaire,
en samkvæmt nýjustu fréttum
mun kappinn nú gróinn sára
sinna, og kveðst hann hlakka til
slagsins við Ali. Og auðvitað
hefur Ali látið ýmis orð — flest
stór — falla um keppnina. Og
núna er bara að bfða og sjá hvað
setur.
Hendurnar vafðar
HNEFALEIKAKEPPNI aldarinnar. Kötturinn gegn mús-
inni. Ali kjaftur gegn George múmíu.
Hvaða nafni sem þessi keppni verður nefnd, er eitt víst
að engin hnefaleikakeppni hefur verið auglýst eins mikið
og einvígi þeirra Ali og Foremans.
Þessar litríku kempur, Muhammad Ali, öðru nafni
Cassius Clay, og George Foreman, munu leiða saman hesta
sína í Afríkuríkinu Zaire 29. október n.k. og keppa um
titilinn „Heimsmeistari í þungavigt."
Launin sem þeir fá fyrir að berjast verða ekki af lakari
endanum — hvor um sig mun fá 5 milljónir dollara, eða um
520 milljónir króna. Mikið er I húfi og hafa báðar kempurn-
ar undirbúið sig sérlega vel fyrir þessa keppni, Ali á
austurströnd Bandaríkjanna og Foreman á vesturströnd-
inni í litlum bæ í Norður-Kaliforníu, sem heitir Pleasanton.
Við heimsóttum George Foreman I æfingabúðirnar
skömmu áður en hann lagði af stað til Zaire og hafði
kempan lokið við morgunæfingarnar. Hann hafði hlaupið í
Hitinn var yfir 40 gráður, þegar við renndum I hlað f Pleasanton, þar
sem George Foreman, heimsmeistari í hnefaleikum þungavigtar
stundar æfingar.
Æfingarnar áttu að hefjast kl. 2, og voru margir forvitnir áhorf-
endur og blaðamenn mættir fyrir utan æfingahöllina, sem minnir mig
á gamla Hálogaland.
Meistarinn var ekki mættur og lftill negrastrákur spurði dyravörð-
inn: „Hvenær kemur meistarinn"?
Nokkrum mfnútum á eftir áætlun sást meistarinn koma akandi á
brúnum Rolls Royce, og löng bflalest á eftir honum með fylgdarliðið.
Þegar Foreman steig út úr bflnum ruddust krakkarnir til hans og báðu
um eíginhandaráritun f bækur sem þau höfðu meðferðis. Foreman.
sýndi mikia þolinmæði og gekk rólega f áttina að æfingahöllinni með
lífverði f bak og fyrir.
Okkur var sfðan hleypt inn f höllina, sem hafði verið Iagfærð sem
æfingasalur fyrir meistarann. Dágóð stund leið þar til Foreman kom
inn í salinn og gekk inn f hringinn og byrjaði að mýkja sig upp.
Þjálfari Foremans, Dick Sadler, tilkynnti f hátalarakerfinu að kempan
ætlaði að berjast í 12 lotur við 6 hnefaleikara, 2 lotur við hvem.
Þegar Foreman byrjaði að valsa I hringnum eftir hljómlist æstust
krakkarnir upp og hrópuðu: „Þú ert okkur hetja, og þú átt að lumbra á
helv . . . honum Ali“. Foreman brosti bara og tók þessu öllu með
jafnaðargeði og hélt áfram að dansa og nú eftir Bossa Nova. Þjálfarinn
sagði mér, að þessi æfingaraðferð hefði gefið góða raun f sambandi við
undirbúning fyrir keppnina, og að þeir ætluðu að halda þessu áfram.
Mestarinn fór úr æfingafötunum og þjálfarinn smurði hann f
framan með feiti, til að minni hætta væri á að hann fengi skrámur.
Síðan gekk fyrsti hnefaleikarinn inn f hringinn og þeir byrjuðu að
kljást.
Það var ekkert vafamál að Foreman var f góðri æfingu og hann hafði
algjöra yfirburði yfir mótherja sinn, og lék sér að honum eins og
köttur að mús. Sfðan barðist hann við þá hvem af öðrum, en eftir 12
lotur sagðist hann vera orðinn þreyttur, gekk út úr hringnum f áttina
að hnefaleikabolta og sagðist ætla að berja hann svolftið.
Þjálfarinn studdi við pokann, en höggþunginn var svo mikill hjá
Foreman, að f hvert skipti, sem hann lamdi pokann tókst þjálfarinn
bókstaflega á loft. Það er haft eftir Joe Louis gamla, að Foreman sé
höggþyngsti hnefaleikari sem uppi hefur verið og höggþyngri en Ingo
hinn sænskí, sem lék sér þó að þvf að lemja gegnum múrsteinsveggi til
þess að sýna höggkraft sinn.
Þegar æfingunum var lokið náði ég tali af þjálfaranum og spurði
hann, hvort ég gæti fengið viðtal við meistarann. Sadler sagði, að
ekkert væri sjálfsagðara, en að ég yrði að hinkra við þangað til
meistarinn kæmi út úr búningsherberginu.
Áhorfendur biðu enn úti í salnum og ætluðu auðsýnilega ekki að Iáta
meistarann sleppa án þess að ná tali af honum. Lffverðirnir voru á
réttum stað og vörnuðu fólki að ryðjast inn f búningsherbergið.
fjöllunum skammt frá heimili sínu og fengið sér síðan
morgunverð, sem hver meðalstór f jölskylda hefði átt fullt í
fangi með að torga: 12 egg, 8 brauðsneiðar, 1,5 1 af
appelsínusafa, stór skammtur af fleski og svona til að fylla í
holurnar: Vi líter af ís!!
En meistarinn þarf mikla næringu, því að hann brennir
miklu og æfingarnar eru sérlega lýjandi og erfiðar.
George Foreman varð Olympíumeistari í hnefaleikum
1968 og á frekar stuttan iþróttaferil að baki. En hann hefur
staðið sig frábærlega vel og segir sjálfur, að hann hafi
aldrei verið betri en um þessar mundir, né heldur betur
undirbúinn.
Mótherji hans, Muhammad Ali, er einhver litríkasti
íþróttamaður sögunnar. Stundum er hann kallaður Ali
kjaftur. Hann varð Olympíumeistari í Róm 1960 og komst á
hátindinn, þegar hann sigraði Sonny Liston í einvígi um
heimsmeistaratitilinn. Yfirburðir hans voru slíkir á árun-
um 1963—1965 að hann gat spáð fyrir um það, hvenær og í
hvaða lotu hann mundi sigra mótherja sína.
Eftir smá bið kom Foreman út úr búningsherberginu og ruddist þá
fólkið að honum, tók myndir og bað hann að rita nafn sitt, og
blaðamenn kölluðu til hans spurningar.
Foreman tók þessu öllu með mikilli þolinmæði og þakkaði öllum
fyrir að hafa komið og sýnt sér svona mikínn áhuga. Gekk hann sfðan f
átt að dyrunum og sýndi á sér fararsnið. Þjálfarinn hvíslaði einhverju
að honum og Foreman sneri við og sagði:
„Hvar er !slendingurinn?“
Ég stóð fyrir aftan heljarmennið og kynnti mig og við gengum sfðan
afsfðis með alla Iffverðina f eftirdragi. Foreman sagði þeim, að engin
hætta væri á ferðum og við byrjuðum sfðan að rabba saman, fyrst um
tsland og sfðan keppnina.
Foreman sagðist aldrei hafa komið til fslands, en hefði hins vegar
lesið um land og þjóð. — Það er sagt að tslendingar séu gáfað fólk,
sagði hann.
Nú minntist ég á AIi við Foreman og þau ummæli hans, að Foreman
væri mú.nfa og lafhræddur við sig.
— Nei, ég er ekki hræddur við Ali, sagði meistarinn og brosti. —
Þetta brölt f AIi er auglýsingabreila og gefst vel. Hann er lftrfkur
sprellikarl og góður hnefaleikamaður og hefur gert mikið og margt
fyrir fþróttina. Við þurfum heldur ekki að kvarta yfir Iaununum sem
við fáum fyrir að slást f Zaire.
Sumir halda þvf fram, að AIi sé að syngja sitt sfðasta og að leikurinn
verði ójafn, þér f hag?
— Ég hefi aldrei vanmetið neinn af mfnum mörgu mótherjum og
sfzt af öllum Ali, svaraði Foreman. — Hann er mjög teknfskur
hnefaleikari og ákaflega háll og það þarf mikið til þess að sigra hann.
Hann er auk þess sagður vera f m jög góðri æfingu núna.
— Mundir þú vilja keppa á Islandi?
— Þvf ekki það, sagði meistarinn og brosti. — Skákkeppnin tókst vel
hjá ykkur, og var mikil auglýsing fyrir tsland og skákmennina báða.
En áttu 10 milljónir dollara til að borga okkur?
— Hvað um framtfðina? Ætlar þú eð leggja hanzkana á hilluna eftir
þessa keppni eins og Ali segist ætla að gera?
— Nei, þetta gengur alltof vel hjá mér til þess að ég hafi áform um
slfkt núna. Ég held áfram þangað til að það fer að halla undan fæti,
sem ég vona að verði ekki fyrr en eftir 2—3 ár.
Þegar hér var komið sögu var þjálfari Foremans og lífverðir hans
teknir að ókyrrast og gáfu honum óspart merki um að koma. Var ekki
um annað að ræða en að þakka fyrir sig og óska Foreman gengis f
keppninni f Afrfku.
Fyrir utanbeið Rolls Royce bfllinn ásamt einkabflstjóra og meistar-
inn steig upp f bflinn og veifaði til viðstaddra. Hann sat f aftursætinu
og hélt á bók f hendi, þegar lestin lagði af stað. Þessi bók var
greinilega biblfan.
i.
Kempan smurð fyrir keppnina
Foreman „dansar“ i hringnum
Foreman slæst við „skuggann“
tslenzkur vfkingur og meistarinn