Morgunblaðið - 22.10.1974, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
íslandsmótið í körfuknattleik:
Hver sigrar — hver fellur?
MENN EKKI Á EITT SÁTTIR FREKAR EN FYRRI DAGINN
1. deildar keppni tslandsmótsins I körfuknattleik hófst um helg-
ina. Þar með hðfst að margra áliti mest spennandi körfuknattleiks-
keppni, sem fram hefur farið hérlendis, og vissulega er ekki fjarri
sanni að ætla, að keppnin f vetur verði skemmtileg og jöfn. Mótið f
fyrra var einstaklega jafnt, fyrir tvo sfðustu leikina f mótinu áttu
f jögur lið möguleika á að sigra, og svo fór, að úrslitaleik þurfti um
Islandsmeistaratitilinn milli KR og Ármanns. Sá leikur var f
framhaldi af spennunni, sem áður hafði verið f mótinu, og réðust
úrslitin ekki fyrr en að leiktfma loknum. — Talsverðar manna-
breytingar hafa átt sér stað milli liðanna sfðan f fyrra, og er óhætt
að fullyrða, að þær breytingar gera keppnina á botninum spenn-
andi. HSK, sem undanfarin ár hefur verið neðarlega án þess þó að
falla, hefur farið verst út úr þessu. Þeir hafa misst tvo af sfnum
bestu mönnum, þá Þröst Guðmundsson og Ólaf Jóhannesson.
Breiddin hefur aldrei verið mikil f þvf liði, en f uppbót fyrir þessa
leikmenn hefur liðið fengið I sfnar raðir Stefán Hallgrfmsson úr
KR. — Snæfell teflir fram óbreyttu liði frá þvf í fyrra, nema hvað
þeir skiptu um félög Magnús Valgeirsson framherji þeirra, og
Eirfkur Jónsson stórskytta úr UMFG. IR verður að öllum Ifkindum
með sama lið, og sömu sögu er að segja um Armann. IS hefur fengið
liðsauka, þar ber fyrsta að nefna Jón Héðinsson miðherja frá
I.M.A., Jón M. Indriðason og Frits Heineman, sem verður nú með á
ný. UMFN verður óbreytt nema Stefán Bjarkason kom yfir til
þeirra frá Val. Auk þess að missa Stefán eru Valsmenn Þórislausir
þessa dagana, en hann mun e.t.v. leika með áður en langt um Ifður.
Islandsmeistarar KR missa Hjört Hansson og Guttorm Ólafsson, en
fá I staðinn þá Þröst Guðmundsson og Braga Jónsson frá UMFS. —
Og hvaða áhrif hafa þessar breytingar svo á leik liðanna f vetur,
hverjir koma sterkastir út úr þeim? Hverjir sigra f 1. deild og
hverjir falla? Þessar spurningar og fleiri ræddum við við einn
leikmann frá hverju félagi og báðum þá að spá um röð liðanna f
mótinu f vetur. Auk leikmannanna svarar spurningu okkar einn
kunnur áhugamaður um fþróttir, sem óþarft er að kynna lesendum
nánar.
Baldur Helgason:
— Það verða þrjú lið I fallbar-
áttu og ég veit ekki hvert þeirra
fellur niður. IR vinnur mótið eftir
harða keppni við KR, síðan kemur
Valur (félagið mitt), þá Ármann
og síðan IS. Þau þrjú, sem eftir
eru, verða í baráttunni niðri, og
ég þori ekki að spá meira fyrir þig
núna. —
Agnar Friðriksson IR:
— Þetta hefur aldrei verið eins
tvísýnt. Ég hef ekki séð utan-
bæjarliðin en leikir Rvíkurlið-
anna geta allir farið á hvorn
veginn sem er. Ég hef mun meiri
trú á ÍR-liðinu en í fyrra. —
Agnar þorði ekki að spá um úr-
slitin, en setti Reykjavíkurliðin í
sæti 1 til 5, UMFN í 6. sætið, síðan
Snæfell og spáði HSK falli.
Stefán Hallgrímsson HSK:
— Efstu félögin verða að mínu
mati KR sem sigrar, IR f öðru
sæti, Ármann og síðan ÍS. Allir
leikir þessara liða innbyrðis verða
úrslitaleikir. Nú, við í HSK
verðum skammt á eftir, sfðan
kemur Valur, þá HSK og UMFN
fellur. En ég vildi ekki hafa lifi-
brauð af þvf að veðja á leiki móts-
ins. —
Kári Marfsson Val: — Ég
held, að iR-ingarnir verði sterk-
astir, og endurheimti Islands-
meistaratitilinn. Valur kemur
næst, eftir harða keppni við KR
og Ármann. Leikir þessara liða
verða jafnir og reyndar úrsiita-
leikir allir saman. Því næst koma
UMFN og ÍS álík að styrkleika en
HSK fellur niður því ég held, að
Snæfell eigi eftir að koma á óvart.
Birgir Guðbjörnsson KR:
— Þetta verður jafn erfitt og í
fyrra. Ármenningar verða okkur
erfiðastir þótt við náum sigri í
mótinu annað árið í röð. Ég hef
trú á, að Valsmenn spjari sig og
lendi í 3. sæti, síðan kemur IR-
liðið, sem verður slakara en í
fyrra og á eftir þeim kemur IS.
Njarðvikingarnir verða sterkir en
komast samt ekki ofar en í 6.
sætið. HSK liðið verður slakt í
vetur og kemst ekki hjá falli, því
ég held, að Snæfellsliðið spjari
sig.
Jón Sigurðsson Ármanni:
— IS verður erfiðasti keppi-
nautar okkar f vetur, þeir eru
sterkir líkamlega og gefast aldrei
upp. KR liðið nær ekki lengra en
þeir hafa þegar komist, og IR-
ingar eru í mannahraki. Valsliðið
virkar baráttulaust. Okkar sterk-
asta vopn f vetur verður maður á
mann vörnin, og á henni ætlun
við að vinna íslandsmótið í fyrsta
skipti. Spá mín er þessi: Ármann,
IS, KR, Valur, UMFN, HSK og
Snæfell fellur strax niður.
Gunnar Þorvarðsson
UMFN:
— Það, sem ég hef séð til lið-
anna, lofar spennandi leikjum.
KR sigrar, við ætlum okkur 2.
sætið á undan ÍR-ingum, sfðan
kemur Ármann og svo IS. Þessi 5
lið skera sig úr í vetur. Valur
verður nr. 6, sfðan Snæfell, en
HSK fellur nú loks enda hafa þeir
ekki sama mannskap og áður.
Bjarni Gunnar ÍS:
— Baráttan verður milli IS, KR
og Ármanns, og IR hefur alla
möguleika á að verða með í henni
ef Birgir Jakobsson kemur inn í
lið þeirra. Baráttan á botninum
verður milli HSK og Snæfells.
Mfn spá er þessi: ÍS, KR, Ármann,
IR, Valur, UMFN, Snæfell, HSK.
Einar Sigfússon Snæfelli:
— Eg er bjartsýnn fyrir okkar
hönd. Það eina, sem háir okkur,
er það að fá enga leiki áður en
mótið hófst. Samt sem áður
ætlum við okkur ekki að verða
neðar en i 6. sæti, á undan UMFN
og HSK, sem fellur. Ég hef trú á,
að IS vinni mótið, en IR getur
orðið sterkt.
B í
Arsþing Borðtennissam-
bands tslands verður haldið 9.
nóvember n.k. f Leifsbúð,
Hótel Loftleiðum. Hefst þingið
kl. 14.00.
Fara ber eft
ir reglunum
Eins og áður hefur komið
fram var Haustmót BLl haldið
um síðustu helgi með þátttöku
12 liða, sem kepptu í 4 riðlum.
Áður en úrslitakeppnin hófst á
sunnudaginn kom f ljós við nán-
ari athugun, að b-lið ÍS var
ólöglegt. Það var b-lið Vfkings
sem bar fram mótmæli gegn því
að b-lið IS fengi að halda áfram
f úrslitakeppninni, en þessi tvö
lið léku f sama riðli og sigraði
IS-b á hagstæðara stigahlut-
falli. Víkingar fóru fram á það
við iS-b, að þeir hættu þátttöku
í mótinu, þar sem fyrir lá viður-
kenning fyrirliða liðsins á, að
lið hans væri ólöglegt, þar sem
einn útlendingur, Norðmaður,
lék með því.
Samkvæmt reglum ISl verð-
ur útlendingur að sækja um
leyfi hjá viðkomandi sérsam-
bandi, sem síðan sendir beiðn-
ina áfram til ISÍ, um hvort
hann megi leika með íslenzku
liði í opinberri keppni. Þetta
mun ekki hafa verið gert með
umræddan leikmann.
Þótti mörgum sem beint lægi
við að b-lið IS drægi sig út úr
mótinu, en málinu var vfsað til
stjörnar Blaksambandsins, sem
var stödd á mótsstað og hélt
hún fund á staðnum. En við-
brögð hennar voru þau, að hún
tók enga afstöðu, heldur vísaði
þvf til Blakdómstóls BLl. Hvort
stjórn BLl hafi ekki viljað taka
fram fyrir hendurnar á dómstól
BLl, sem réttilega á að fjalla
um þessi mál, skal látið ósagt,
en nauðsynlegt var að ákveðið
yrði, hvort liðið fengi að halda
áfram keppni.
Halldór Jónsson þjálfari IS
sagðist geta fallizt á tillögu sem
fram kom á áðurnefndum
skyndifundi BLI, að víta IS
fyrir athæfið, þ.e. að vera með
ólöglegt lið. IS-b Iék svo í úr-
slitum keppninnar með hinn
ólöglega leikmann I öllum leikj-
um sfnum.
Kærumál eru alltaf fremur
leiðinleg, en spurningin er,
hvort lið eigi að komast upp
með að brjóta settar reglur.
Þessi mál hafa verið það mikið
til umræðu undanfarnar vikur,
að óþarfi er að bæta þar neinu
við. Hver svo sem dómur Blak-
dómstólsins verður, þá mun
hann ekki hafa áhrif á úrslit
mótsins, en ef b-lið Víkings
hefði leikið í úrslitunum, hefði
mótið getað farið á annan veg.
En úr þvi fæst sennilega aldrei
skorið, þar sem úrslitakeppnin
verður sennilega ekki leikin
upp aftur.
pól.
TÉKKNESKUR LANDSUDSÞJÁLFARI
— Við gerum okkur góðar vonir
um að fá tékkneskan þjálfara til
þess að vera með landsliðið frá
áramótum og fram yfir Olympíu-
keppnina, sagði Bergur Guðna-
son, formaður tækninefndar
Handknattleikssambands ts-
lands, á fundi sem stjórn sam-
bandsins boðaði til með frétta-
mönnum ás.l. miðvikudag.
— Það er ekkert leyndarmál,
að okkur gekk mjög erfiðlega að
fá landsliðsþjálfara, sagði Bergur,
— fyrst var reynt að fá erlendan
þjálfara, en þegar það gekk ekki
var leitað til þjálfara innanlands
og tókst að Iokum að fá Birgi
Björnsson til þess að bjarga okk-
ur fram yfir áramót.
Bergur sagði, að þessi mál
hefðu komið til umræðu á þeim
fundum sem fulltrúar HSl hafa
setið erlendis að undanförnu. Þar
hefðu þeir leitað eftir ráðum og
þjálfara. Væri nú svo komið að
líkur væru til þess að þjálfari
fengist frá Tékkóslóvakíu, en sem
kunnugt er þá er handknattleik-
urinn orðinn mjög þróuð íþrótt
þarlendis og mikið um vel-
menntaða þjálfara. Þannig er
einnig t.d. í Rúmeníu og
Júgóslavíu, en þaðan er enga
þjálfara að fá, þótt gull sé í boði,
a.m.k. ekki fyrst um sinn, þar sem
allir þeir þjálfarar þessara landa
sem starfað hafa erlendis hafa
verið kallaðir heim, fram yfir
Olympíuleikana 1976.
Þá sagði Bergur, að Islendingar
mundu hafa möguleika á að senda
tvo þjálfara á námskeið til
Rúmeníu, er haldið verður í apríl
— maf, og færi svo illa að ekki
tækist að fá erlendan þjálfara til
starfa, mundi HSl leggja á það
áherzlu að senda íslenzkan
þjálfara til náms erlendis með
það fyrir augum að hann tæki
sfðan við þjálfun landsliðsins.