Morgunblaðið - 22.10.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
27
— Fréttabréf
Framhald af bls. 13
FERÐAMÁL:
Allmikil umferð hefur verið
um sunnanverða Vestfirði i
sumar og vegir yfirleitt verið
góðir, þ.e.a.s. þeir sem búið er
að leggja. Allmiklar vegabætur
hafa verið gerðar i sumar á
Barðaströnd og má segja að
kominn sé ágætis vegur frá
Vatnsfirði til Patreksfjarðar ef
frá er talin neðsta brekkan á
Kleifaheiði Patreksfjarðarmeg-
in. Brýn nauðsyn er að leggja
þar nýjan veg hið bráðasta, þar
sem brekkan er oft stórhættu-
leg á vetrum, en reynt er að
halda Kleifaheiði opinni yfir
veturinn, þar sem verulegur
hluti neyslumjólkur Patreks-
firðinga kemur af Barðaströnd-
inni.
Búist er við mjög aukinni um-
férð um alla Vestfirði næsta
sumar með tilkomu hringvegar-
ins um Vestfirði, þegar Djúp-
vegurinn verður endanlega
opnaður fyrir umferð.
Hótel Bjarkalundur lokaði 1.
okt., en Hótel Flókalundur er
enn opinn.
Páll Ágústsson.
— Um
gullkrýnda . .
Framhald af bls. 28
að hér væri um vænan dilk að
ræða, En það er misskilningur:
„ ... mynd af sauð, er snýr
höfði til vinstri handar ...“ seg-
ir í lýsingu merkisins og þar
með er í eitt skipti fyrir öll
endanlega skorið úr um kyn —
eða kynleysi skepnunnar.
Þann 20. október árið 1911
klukkan 6.30 sfðdegis sótti það
fyrirtækið, sem fyrirferðar-
mest hefur orðið íslenzkra fyr-
irtækja og jafnframt stærsti
iðnrekandi landsins um sitt
merki. Mikið vatn hefur runnið
til sjávar síðan, en þannig leit
fyrsta merki Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga út í þá
daga.
Nú eru tæplega 6400 vöru-
merki á skrá hér á landi og það
er erfitt að segja hvert sé
frægast þeirra allra. En hvað
sem því líður, þá eiga öll merk-
in það sameiginlegt, að i bókum
vörumerkjaskrárritarans er að
finna nákvæma lýsingu á útliti
þeirra — lýsingu eins og þessa
á einkar frægu íslenzku merki,
sem var skrásett 6. júní 1914:
„ ... kross með hökum og eru
hakarnir á lengd helmingur af
lengd hverra hinna fjögurra
krossálma og jafnir þeim á
breidd, en breidd hverrar
krossálmu er helmingur af
lengd hennar ....“
Kannski hljómar þetta eins
og óleysanlegt stærðfræðidæmi
eða þá atómljóð, en vitanlega á
lýsingin við Þórsmerki Eim-
skipafélags tslands.
Ó.S.
LESIÐ
-- --J
™J«ön(hnj.
, <etn„
------
DRGLEGn
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Kaupmenn athugið
Félag matvörukaupmanna og félag kjötverzlana
boða til almenns félagsfundar að Marargötu 2,
miðvikudaginn 23. okt. n.k. kl. 20.30.
Stjórnirnar.
Fiskiskip til sölu
150 lesta nýtt skip til atnhendingar strax. 270 lesta loðnuskip byggt
1968, 207 lesta 1963, 190 lesta 1960 með nýlegri vél, nýrri
loðnudælu, mikið at veiðarfærum fylgir, 165 lesta 1962 með nýjum
loðnuútbúnaði, 129 lesta með nýrri vél (Alfa 600) og nýjum tækjufn,
105 lesta 1967, mjög gott togskip, 140 lesta byggður 1962, ný
endurbyggur með nýja vél. 101 lesta og 7 5 lesta A-þýzkir stálbátar,
einnig eikarbátar 38 lesta 1954, 20 lesta 1961 með nýlegri vél, 1 7
lesta 1972 (frambyggður).
Fiskiskip
AUSTURSTRÆTI 14, 3JA HÆÐ.
SÍMI 22475, HEIMASÍMI 13742.
Heilsuræktin
Heba,
Auöbrekku 53, Kópavogi
Nýir tímar í megrunarleikfimi hefjast
aftur 4. nóv. 4 vikur og 6 vikur í senn.
Dagtímar og kvöldtímar, tvísvar og fjór-
um sinnum í viku. Sauna, sturtur,
sápa, sjampó, Ijós, olíur, gigtarlampi
hvíld og nudd.
Upplýsingar og innritun í síma
42360 og 43724.
Hafið þér skoðað
lituðu
borð-
og
stóla-
settin
okkar?
ATVIU ATVIU ATVin
Hreinleg og samvizkusöm
aðstoðarstúlka
á tannlækningastofu í miðbænum óskast.
Skrifleg umsókn sendist Mbl. fyrir 24.
þ.m. merkt: „Klínikdama 4636"
Sendisveinn
Sendisveinn óskast, hálfan eða allan
daginn.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Skrifs to fu vélar h f.,
Hverfisgötu 33,
Sírnar: 19853—20560.
Bezt
að
auglýsa
í Morgunblaðinu