Morgunblaðið - 22.10.1974, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
29
fólk — fólk — fólk — fólk
1
á
Þórður Skúlason sveitarstjóri ásamt börnum sfnum tveim.
Mikill kraftur í
byggingarmálum
á Hvammstanga
Rætt við Þórð Skúla-
son sveitarstjóra
ÞEGAR blaðamaður Mbl. var
staddur á Hvammstanga fyrir
nokkru, hitti hann að máli Þórð
Skúlason sveitarstjóra, og
spurði almæltra tfðinda úr hér-
aðinu.
„Það er bezt að byrja á bygg-
ingarmálunum, enda hefur
aldrei verið eins mikið byggt
hér og nú,“ sagði Þórður. „I
sumar var byrjað á 16 íbúðar-
húsum, með samtals 18 íbúðum.
Þá er byrjað á byggingu nýs
slátur- og frystihúss nyrzt í
þorpinu, og er það bygging upp
á tugi milljóna. Það er Kaup-
félag Vestur-Húnvetninga, sem
byggir. Þetta verður glæsilegt
og vel búið hús, og það mun
uppfylla allar erlendar gæða-
kröfur. Hafin er bygging nýrr-
ar rækjuverksmiðju fyrir Mel-
eyri .hf-, og I vor var byrjað að
stækka mjólkurstöðina, en það
verður helmingsstækkun.
Hreppurinn hefur mikinn hug
á byggingu leiguíbúða, og er
ætlunin að byggja 4 fbúðir ef
fjárveitingavaldið gefur grænt
ljós. Af þessarri upptalningu
má sjá, að það er mikill kraftur
f byggingarmálunum hér, og
það eina, sem skyggir á, er
skortur á iðnaðarmönnum,
aðallega smiðum.
— Hér á Hvammstanga búa
nú um 400 manns, og hefur
fbúum heldur farið fjöigandi
uppá síðkastið. Nokkuð hefur
verið um það, að aðkomufólk
vildi setjast hér að, en hús-
næðisskortur hefur háð okkur
eins og fleiri kauptúnum. Það
hefur verið næg atvinna hér við
verzlun og þjónustu, útgerð og
fiskvinnslu, mjólkurstöðina og
smáiðnað. Héðan verða gerðir
út 5 bátar á rækju I vetur. Þeir
eiga stutt að sækja á góð rækju-
mið, rétt út fyrir Heggstaðanes.
Sfðasta vertfð var mjög góð, og
við gerum okkur vonir um, að
þessi vertíð verði einnig mjög
góð. Það eina, sem skyggir á,
eru slæmar horfur f markaðs-
málum.
— I sumar var unnið að dýpk-
un hafnarinnar hér. Sprengt
var sker sunnan við bryggjuna
og dýpkað meðfram henni. Við
þessar framkvæmdir jókst við-
legupláss í höfninni, en hún er
samt sem áður mjög opin og þvf
ekki örugg. Ef gerir stórveður
þurfa bátarnir að fara frá og
halda sjó inni í fjarðarbotni.
Það er mjög aðkallandi að fá
garð, sem lokar höfninni.
Slíkur garður er kominn inn á
áætlun, og bezt væri ef fram-
kvæmdir gætu hafizt á næsta
ári. Höfnin er ekki aðeins notuð
af Hvammstangabátum, heldur
landa hér einnig rækjubátar
frá Skagaströnd, og er aflinn
fluttur þangað landleiðina. Frá
Skagaströnd eru gerðir út 7
bátar á rækju.
-SS.
Lambaskrokkar með hverri
frystikistu, sem seld er
ÞEIR, sem kaupa sér frystikistu
hjá fyrirtækjunum Rafiðjunni og
Raftorgi á næstunni, fá góðan
kaupbæti með kistunum, þvf
með hverri frystikistu, sem seld
verður fram til 10. nóvember,
fylgir einn lambsskrokkur.
Páll Stefánsson, forstjóri inn-
flutningsdeildar fyrirtækjanna,
sagði I samtali við Morgunblaðið í
gær, að þeim hefði dottið þetta í
hug fyrir stuttu, enda reiknuðu
þeir með, að nú í dýrtíðinni
reyndu allir að spara, og því
mætti búast við, að þetta mæltist
vel fyrir.
Hann sagði ennfremur, að
frystikistur ryddu sér sífellt
meira til rúms og það væri áber-
andi hvað fólk væri farið að læra
betur að meðhöndla mat. Það
væri kannski eftirsjá í súr, —
reyk og saltmatnum, en það væri
líka mikill kostur að geta haft
matinn ávallt fersljan. Og þar
hefði frystingin sína'yfirburði.
Þá sagði Páll, að sala á Ignisvðr-
um hefði gengið mjög vel á þessu
ári og um mánaðamótin ágúst-
september hefði verið búið að
selja jafn mikið og allt árið í
fyrra. Ignisverksmiðjurnar voru
stofnaðar skömmu eftir stríð og
eru nú stærstu verksmiðjur
Evrópu I kæli — og frystitækjum.
Það er eftirtektarvert, að á
höfuðborgarsvæðinu selst mest af
kistum, sem eru af stærðinni 285
lítrar, en úti um land selzt mest af
385 lítra kistum.
Trommueinvígi í
Austurbæjarbíói
Hinn kunni bandaríski trommu-
leikari Robert Grauso, sem dvelur
nú hérlendis I boði Félags fs-
lenzkra hljómlistarmanna, hefur
skorað á tvo íslenzka kollega sína,
trommuleikarana Guðmund
Steingrímsson og Alfreð Alfreðs-
son, til nokkurs konar einvígis í
trommuleik. Guðmundur og
Alfreð hafa tekið áskoruninni og
mæta til leiks á sérstökum ein-
vigishljómleikum, sem FlH efnir
til f Austurbæjarbfói f kvöld kl.
11.15.
MÆTIR 20
ARUM OF SEINT!
Þegar Bob Grauso var síðast
hérlendis, var ákveðið að efna til
tónleika f Austurbæjarbíói, þar
sem Grauso og Guðmundur Stein-
grímsson ætluðu að leiða saman
hesta sfna f trommuleik. Þetta var
árið 1954. Bob Grauso var þá að
ljúka herskyldu f bandaríska
flughernum og dvaldi á Kefla-
vfkurflugvelli. Þegar til kom fékk
hann ekki leyfi yfirmanns síns til
að koma fram á hljómleikum f
Reykjavík, og þar við sat.
Grauso varð að sitja heima á
meðan kunningjar hans fslenzkir
spiluðu á hljómleikunum. Nú er
Grauso mættur til leiks, — og
hefur heitið því að mæta í þetta
sinn.
HEIMSÞEKKTUR TROMMARI
Á þeim 20 árum sem liðið hafa
siðan Grauso var hér síðast hefur
hann leikið með kunnum tón-
listarmönnum, bæði í jazzheimin-
um og poppheiminum, þ. á m.
Sonny Stitt, Frank Sinatra, Conny
Francis o.fl. Þá er hann ekki sfður
þekktur fyrir hönnun á nýtfzku
trommum, hinum svonefndu
FIBES trommum, sem margir
þekktir slagverksleikarar leika á í
dag.
Framhald á bls. 39
STANLEY
Næst þegar þú
kaupir verkfæri,
vertu viss um að
þaðsé