Morgunblaðið - 22.10.1974, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER 1974
31
fluttur frá Svartsengi að Nesja-
völlum, þar sem í vetur verða
gerðar tilraunir fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur. Þá verður haldið
áfram jarðeðlisfræðilegum rann-
sóknum á Henglinum. Gerðar
hafa verið tillögur um boranir f
Henglinum næsta sumar, sunnar
og vestar en Nesjavellir. Hengill-
inn er eitt af þeim háhitasvæðum,
sem gefur hátt hitastig og er því
hagkvæmt til raforkuvinnslu.
Margt þykir benda til þess, að
heitasti hluti háhitasvæðisins f
Henglinum sé nokkru sunnar og
vestar eru Nesjavellir. Verður
þetta rannsakað með raforku-
vinnslu í huga, en afgangsvatnið
frá henni mætti hugsanlega nýta
til hitaveitu.
— Þá var byrjað á rannsóknum
f Torfajökulssvæðinu f haust, en
það er stærsta háhitasvæði lands-
ins. Landsvirkjun hefur látið í
ljós áhuga á virkjunarmöguleik-
um þar. Þarna yrði að sjálfsögðu
fyrst og fremst um raforku-
vinnslu að ræða, en hún á sjálf-
sagt enn nokkuð langt í land,
sagði orkumálstjóri.
— Við Kröflu er verið að bora
tvær rannsóknaholur og er önnur
búin að gefur góðar vonir, eins og
sagt hefur verið frá. Og á Reyk-
hólum boruðum við í sumar fyrir
þörungavinnsluna. Er lokið bor-
unum þarna, og verið að leggja
varmaveitu til þörungavinnslunn-
Felaqslíf
□ EDDA 597410227 — 1
□ EDDA 597410227 = 2
I.O.O.F. Rb. 1 — 12410228'/!
— Spk.
I.O.O.F. 8 » 1 5510238 = Rkv.
Fíladetfía
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
8.30. Ræðumaður Einar Gislason.
Keflavík
Kristniboðsfélagið í Keflavík held-
ur fund þriðjudaginn 22. október
kl. 20.30 i Kirkjulundi.
Reidar G. Albertsson sér um efni
fundarins.
Allir eru velkomnir.
Kvenfélag Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn í kvöld kl. 20,30 i félags-
heimilinu.
Mætið vel.
Stjórnin.
K.F.U.K., Reykjavík
Basarnefndin sér um fundinn í
kvöld, sem hefst kl. 20.30. Allar
konur velkomnar.
Stjórnin.
Grensássókn
Biblian svarar. Leshringur i kvöld i
safnaðarheimilinu kl. 9.
Sóknarprestur.
Handavinnukvöldin
hefjast í kvöld 22.10 kl. 20—22.
Leðurvinnan á fimmtudaginn 24.10
kl. 20—22.
Farfuglar.
Stofnfundur kvennadeildar
Sálarrannsóknarfélags
(slands verður haldinn miðvikudag-
inn 23. október kl. 5:30 i Garða-
stræti 8. Áhugasamar félagskonui
velkomnar.
Kvenfélagið Heimaey
Munið fundinn í Domus Medica,
þriðjudaginn 22. okt. kl. 8.30.
Stjórnin.
ar. Nýlega var borað fyrir Húsa-
víkurkaupstað á Hveravöllum
með góðum árangri og hafa Hús-
víkingar nú meira vatn er þeir
þurfa. Og fleiri jarðhitarannsókn-
ir eru f gangi. I Þorlákshöfn eru
fyrirhugaðar boranir vegna hita-
veitu á næstunni fyrir sveitar-
félagið þar, á grundvelli rann-
sókna, sem þar hafa farið fram.
Og á Leirá eru f gangi rannsóknir
fyrir Akraneskaupstað. Horfur
virðast nokkuð góðar, og komið
hefur til orða að bora þar með
gufubor, en það er ekki ákveðið.
Jakob Björnsson sagði, að Orku-
stofnun væri með fjölmörg slfk
borungarverkefni fyrir sveitar-
félögin. Orkusjóður veitir til
þeirra lán og er mikil ásókn í þau
nú. Áhugi á hitaveitum hefur far-
ið mjög vaxandi vegna orku-
kreppunnar. — En þar höfum við
lent í erfiðleikum vegna skorts á
borum, þ.e. minni borum en gufu-
bor, svo erfitt er að fullhægja
beiðnum sveitarfélaganna, sagði
Jakob. — Við erum að kaupa nýj-
an bor til almennra jarðhitabor-
ana til að standa betur að vígi
með að veita þjónustu þeim, sem
vilja koma upp hitaveitu. Kemur
sá bor væntanlega með vorinu.
Eins þarf að fá annan gufubor
vegna Kröflu, en hingað til hefur
aðeins verið til einn gufubor, sem
er sameign ríkis og Reykjavfkur-
borgar og hefur mikið verið nýtt-
ur af Reykjavik. Við erum að
reyna að fá annan, en mikil ásókn
er f þá vegna olíukreppunnar. Við
viljum líka fá bor, sem getur bor-
að dýpra en sá, sem við eigum,
helzt a.m.k. 3500 metra. Núver-
andi gufubor borar 1800—2000 m.
Vegna raforkuvinnslu úr jarðhita
á háhitasvæðunum þurfum við
hátt hitastig og við höfum grun
um, að fá megi meiri jarðhita og
heitari, ef við borum dýpra. Ekki
er síður mikilvægt að geta borað
dýpra en nú er unnt á sumum
lághitasvæðunum. Með því móti
kann að vera unnt að vinna meiri
varma úr þeim. Það getur haft
mikla þýðingu fyrir ýmsar hugs-
anlegar hitaveitur, og raunar
einnig fyrir sumar þeirra, sem nú
starfa en þurfa á auknu vatns-
magni að halda.
Vitað er að þegar kemur á
mjög mikið dýpi, veróur bergið
vatnsþétt. Ur slíku bergi f
náttúrulegu ástandi verður jaró-
varmi ekki unninn þótt hitastig
þess sé hátt. En þar ofan við er
bergið vatnsgengt og úr þvf má
vinna varma. Við þurfum að vita
hve djúpt þetta vatnsgenga berg
er, en engin leið er að ganga úr
skugga um það nema bora hæfi-
lega djúpt. Það er því mjög
mikilvægt að fá nýjan og stærri
bor, því næg eru verkefnin.
Þarna fellum við talið í þetta
sinn, en höldum áfram f næstu
grein og verður þá fjallað um
rannsóknir á vatnsafli til raforku-
vinnslu.
— E. Pá.
IGNIS
Kostaboð!
Um leið og þeir
sem kaupa
IGNIS frystíkistu,
ffyrir 10. november
fó ókeviis
dilka skrokk
niðursneiddan og
tilbúinn í kistuna.
IGNIS Frystikista Hæð cm Breidd cm. Dýpt cm Frystiafköst
145 lítr 85,2 60 60 15,4 kg/ 24 klst. kr: 40,305 —
190 lítr 85,2 83 60 20.9 kg/ 24 klst. kr: 46.210 —
285 lítr 91.2 98 64,5 37. kg/ 24 klst. kr: 57.920.—
385 lítr 91.2 124 64,5 37 kg/ 24 klst kr: 63.750.—
RAFTORG HR * RAFIÐJAN HF
v/AUSTURVOLL • RV(K • SlMt 26660 VESTURGOTU11 • RVÍK • S(Mt19294
I Fallegur og nytsamur
hlutur, öskubakki eða
veggplatti
2 Vandaðar umbúðir,
sem jafnframt eru
póstkort
•W' Wixvnmm.uy j .
til vina og kun
innan lands<se
Einn.tveirog þrír
kostir að minnsta kosti við þennan smekklega bakka,
minjagrip Þjóðhátíðarnefndar 1974.
Fast í minjagripaverslunum um ailt iand.