Morgunblaðið - 22.10.1974, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
39
Nýr flokkur happdrættislána
til að Ijúka gerð Djúpvegar
SALA A nýjum flokki happ-
drættisskuldabréfa rfkissjóðs
hefst næstkomandi fimmtudag.
Fjármunir þeir sem inn koma
fyrir sölu bréfanna f E-flokknum,
en svo er hinn nýi flokkur ein-
kenndur, skulu renna til greiðslu
kostnaðar við að fullgera Djúpveg
og opna þannig hringveg um
Vestfirði. Framkvæmdum við
Djúpveg miðar vel áfram. Um
þessar mundir er verið að Ijúka
við undirbyggingu sfðasta vegar-
spottans f Djúpveginum, um 3Vi
km kafla f Hestfirði. Enn er eftir
að sprengja á nokkrum stöðum,
steypa brú f Hestfirði og setja
nokkur ræsi áður en endanlegt
slitlag verður sett á veginn. Fyrir-
sjáanlegt er nú að hringvegi um
Vestfirði verði lokið fyrir næsta
haust.
Áður hefur ríkissjóður boðið til
sölu fjóra flokka happdrættis-
skuldabréfa, að verðmæti 580
millj. króna, til að fullgera hring-
veg um landið. Allir þessir flokk-
VikuaflilOO tonn
Siglufirði, 21. október.
SIGLUVlK kom hér inn í morgun
með 100 tonn af sæmilega góðum
fiski.
Góðar gæftir voru hjá bátunum
sl. viku. Tjaldur fékk 30 tonn í 6
sjóferðum, Dagur 24 tonn, Sæunn
24 tonn og smærri bátarnir alls 22
tonn. Vikuaflinn varð því 100
tonn. — Matthfas
— Arabaríkin
Framhald af bls. 1
fundur þessi geti vart orðið annað
en tilraun til að salta þetta mál f
einhvern tíma til að ná samkomu-
lagi á yfirborðinu. Enda herma
heimildir, að Sadat Egyptalands-
forseti hefði verið sammála Kiss-
inger, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, er þeir hittust í sl. viku,
STULKA skarst töluvert í andliti
í umferðarslysi á sunnudags-
kvöld. Bifreið var á leið vestur
Hringbraut og tók ökumaður
hennar u-beygju við gatnamót
Hofsvallagötu, þar sem hann
hugðist aka austur Hringbraut-
ina. Var hann rétt búinn að rétta
bifreiðina af, er honum fannst
hann verða var við bílljós frá
vinstri og snarbeygði þess vegna
til hægri. Tókst þá ekki betur til
en svo að bifreið hans rakst þar
utan í aðra bifreið og stúlka sem
sat í framsætinu kastaðist við
áreksturinn í framrúðuna með
fyrrgreindum afleiðingum.
ar hafa selst upp. I þessum flokki
eru gefin út happdrættisskulda-
bréf samtals að fjárhæð 80
milljónir króna, en hvert bréf er
að fjárhæð tvö þúsund krónur.
Árleg fjárhæð happdrættisvinn-
inga nemur 10% af heildarútgáf-
unni og er dregið um þá einu
sinni á ári, nú fyrst 27. desember
nk. Alls er dregið 10 sinnum, en
vinningar hverju sinni eru sam-
tals að fjárhæð 8 milljónir króna
og skiptast þannig:
2 vinningar á kr. 1.000.000,oo, 1
vinningur á kr. 500.000,00, 20
vinningar á kr. 100.000,00, 350
vinningar á kr. 10.000,00.
Happdrættisskuldabréfin verða
endurgreidd handhafa að 10 ár-
um liðnum ásamt verðbótum i
hlutfalli við þá hækkun, sem
kann að verða á framfærsluvísi-
tölu á lánstímanum.
Sem dæmi um þróun fram-
færsluvisitölu hækkuðu 1000 kr.
bréf sem gefin voru út 20. sept. í
fyrra um kr. 414,00 á einu ári.
Happdrættisskuldabréfin eru
um að aðiljar toppfundarins ættu
að reyna að sópa Palestínuvanda-
málinu undir mottuna í bili og
reyna frekar að einbeita sér að
þvi að halda áfram friðarumleit-
unum skref fyrir skref. Kjarni
vandamálanna er að ná einingu
meðal Arabaríkjanna um hvað
þau geti fallist á að láta í staðinn,
ef Israelar fallast á að láta af
hendi hluta herteknu svæðanna.
Þá er gert ráð fyrir að leiðtog-
arnir ræði viðvörun Kissingers
um að frekari hækkun oliuverðs
geti valdið efnahagskreppu i
heiminum.
Talið er að bjartsýni sú, sem
Kisssinger lét I ljós eftir heim-
sókn sína til Miðausturlanda, sé
byggð á mjög jákvæðum undir-
tektum Sadats og Feisals,
konungs Saudi-Arabiu, við tillög-
um hans og loforðum um að þeir
muni reyna að leiða toppfundinn
í samræmi við tiilögur hans.
I önnur skipti sluppu menn
hins vegar betur frá umferðar-
óhöppum um helgina. Þannig var
á laugardagskvöld ekið á gang-
andi mann í Borgartúninu, svo að
hann kastaðist upp á vélarhlíf bif-
reiðarinnar. Brotnaði framrúðan
og ioftnetsstöngin kengbognaði,
en maðurinn slapp hins vegar svo
til ómeiddur.
I fyrradag var svo bílvelta
vegna áreksturs við Litla-Kaffi í
Svínahrauni. Moskovits og
Bronco var þar ekið áleiðis til
borgarinnar og hugðust ökumenn
beggja bílanna taka fram úr
undanþegin framtalsskyldu og
eignasköttum, en vinningar svo
og verðbætur undanþeganar
tekjuskatti og tekjuútsvari.
Seðlabanki Islands sér um út-
boð happdrættislánsins fyrir
hönd ríkissjóðs, en sölustaðir eru
bankar, bankaútibú og sparisjóðir
um land allt.
Framhald af bls. 40
aðstaða fyrir Akraborgina batna
til mikilla muna, því gert er ráð
fyrir að bifreiðar geti að þeim
loknum, ekið í land eða um borð i
Akraborgina. Ekki er samt
nægjanlegt að slíkt sé gert á
Akranesi, því ef skipið á að koma
að fullum notum verður að gera
slíkt hið samai Reykjavík.
— Viðhorf
Framhald af bls. 40
Kristinn Kristmundsson, skóla-
meistari á Laugarvatni f gær f
samtali við Morgunblaðið „Hér
hvetjum við nemendur til þess að
nota frftfma sinn til útivistar og
gönguferða, en um sl. helgi
dundu skothvellir hér f fjöllun-
um f kring án afláts og fólk, sem
fór héðan f gönguferðir til fjalla
sneri við vegna þessa ástands. Við
viljum friða staðinn hér og um-
hverfi hans af þessu, þvf af þessu
er bein hætta fyrir nemendur
staðarins."
annarri bifreið, sem hægar fór. I
sama mund kom bifreið á móti
þeim en ökumanni Moskovitsins
tökst að sleppa með skrekkinn
með þvf að aka alveg út á vinstri
vegarbrún. Hins vegar skall
Broncóinn á bifreiðinni sem á
móti kom, þeyttist út af veginum
og fór margar veltur en stað-
næmdist loks á hvolfi. Þak hans
hafði þá lagzt saman svo að nam
við sætisbrún að þvf er virtist, en
engu að síður slapp ökumaðurinn
með minniháttar skrámur. Kveðst
hann hafa verið með öryggisbelt-
in á sér og þakkar þeim lífgjöfina.
— Ford og
Brezhnev
Framhald af bls. 1
það yrði að komast á meira jafn-
vægi milli landanna.
Háttsettur bandarískur emb-
ættismaður skýrði fréttamönnum,
sem fylgdust með Ford til Mexí-
kó, frá því að viðræður stæðu nú
yfir milli Sovétmanna og Banda-
rfkjamanna um stutan fund
Brezhnevs og Fords í næsta mán-
uði, og að ákvörðun um málið yrði
tekin á næstu 10 dögum. Hefur
verið rætt um sovézku borgina
Vladivostok, þannig að unnt yrði
að koma fundinum á þegar Ford
fer í heimsókn til Japans og
Kóreu I næsta mányði. Það voru
Sovétmenn, sem Jögðu til að
möguleikar á fundarhaldinu yrðu
kannaðir, til að leiðtogarnir gætu
hitzt áður en Brezhnev kemur i
opinbera heimsókn til Bandaríkj-
anna i júní nk.
Nokkurn skugga dró yfir vænt-
anlega heimsókn Fords til Jap-
ans, er hundruð þúsunda Japana
fóru í mótmælendagöngur víða
um landið í dag á alþjóðlegum
„andstyrjaldardegi" til að láta í
Ijós andúð sína á fregnum um að
bandarískum skipum búnum
kjarnorkuvopnum, hefði verið
leyft að athafna sig í japönskum
höfnum. Þá var heimsókn Fords
til Japans 18.—24. næsta mánaðar
mótmælt á þeirri forsendu, að til-
gangur ferðarinnar væri að
styrkja hernaðarbandalag Banda-
ríkjanna við Japan og S-Kóru.
Óskað eftir
upplýsingum
frá Eþiópíu
MORGUNBLAÐINU barst f gær
eftirfarandi frá Hjálparstofnun
kirkjunnar:
„I sambandi við bréf séra Bern-
harðs Guðmundssonar í Morgun-
blaðinu sfðastliðinn föstudag, þar
sem hann óskar eftir að fólk sendi
notaðan fatnað til Eþiópíu, hefur
Hjálparstofnun kirkjunnar borist
fjöldi fyrirspurna víðsvegar að.
Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur i dag sent simskeyti til séra
Bernharðs og óskað eftir nánari
upplýsingum um hugsanlega
framkvæmd þessa máls þar eð
ekki liggur ljóst fyrir hvort yfir-
völd í Eþiópíu munu leyfa inn-
flutning á notuðum fatnaði.
Strax og nauðsynlegar upplýs-
ingar berast mun Hjálparstofnun-
in tilkynna um ákvörðun sína í
fjölmiðlum.
Hjálparstofnun kirkjunnar
Ingi K. Jóhannesson.
w
Agæt rjúpna-
veiði ti in
helgina
Fornahvammi, 21. okt.
RJUPNAVEIÐI gekk ágætlega
um helgina og var gott veiðiveð-
ur. Frá Fornahvammi fóru um 20
menn í rjúpu og þeir fengu frá 6
og upp f 38 rjúpur hver.
Óhemjumikið er af rjúpu í
Snjófjallakambinum við Forna-
hvamm, en veiðimenn sögðu að
rjúpan væri fremur stygg og vont
væri að sjá hana í snjónum.
Hafsteinn
— Víðtækt
Framhald af bis. 2
— Að undanförnu hafa birzt
fréttatilkynningar og áskoranir
frá „Kvennársnefndinni" hinu
alþjóðlega kvennári aðlútandi.
Eiga þau samtök, sem þú taldir
upp hér að framan ekki aðild að
þeirri nefnd?
— Nei, og það hefur þvi miður
ekki komið nægilega skýrt fram
hverjir séu aðilar að svokallaðri
„Kvennaársnefnd", en ég veit
ekki til þess, að annar aðili en
Menningar- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna standi að þeirri
nefnd.
En samstarfsnefnd þeirra
samtaka, sem ég nefndi áðan
ætlar að halda fund með frétta-
mönnum á morgun, og þá mun
verða nánar greint frá því, sem
við hyggjumst fyrir f tilefni
alþjóða-kvennaársins, sagði
Guðný Helgadóttir að lokum.
— Hafa selt
Framhald af bls. 2
þá var meðalverðið kr. 24.57.
Hæsta meðalverð s.l. viku fékk
Rauðsey frá Akranesi kr. 44.44
þegar skipið seldi 75.4 lestir fyrir
3.3 millj. kr. Hilmir frá Fáskrúðs-
firði var hins vegar með hæstu
heildarsöluna, en skipið seldi 91.1
lest fyrir 3.5 millj. kr.
Loftur Baldvinsson EA er enn
sem fyrr söluhæsta skipið. Skipið
hefur nú selt 2.107 lestir fyrir
57.5 millj. kr. og meðalverð það,
sem skipið hefur fengið er kr.
27.29. Guðmundur RE er svo í
öðru sæti, hefur fengið 1.963
lestir, sem selzt hafa fyrir 55.8
millj. kr. og meðalverðið er kr.
28.43. Gfsli Ámi RE er þriðji í
röðinni, en skipið er búið að selja
1.337 lestir fyrir 38.5 millj. kr.
meðalverðið er kr. 28.80.
— Trommu-
einvígi
Framhald af bls. 29
STJÓRNAR 18 MANNA
HLJÓMSVEITINNI
Á hljómleikum FlH mun
Grauso stjórna og leika með 18
manna hljómsveit FlH. Það má
með sanni segja að Grauso hafi
hleypt miklum krafti í hljómsveit-
ina, enda segja þeir sem bezt til
þekkja, að hljómsveitin hafi sjald-
an eða aldrei leikið af jafn
miklum áhuga.
Á hljómleikunum mun einnig
leika dixieland hljómsveitir af
miklum móð. Okkar færustu
dixielandleikarar koma fram
undir stjórn ágætra dixielandleik-
ara.
Það fer ekki á milli mála að hér
verða á ferðinni tónleikar, sem
koma til með að hafa sveifluna f
lagi.
NAMSKEIÐFYRIR
TROMMULEIKARA
Að undanförnu hefur Robert
Grauso leiðbeint islenzkum kol-
legum sínum á sérstöku nám-
skeiði, sem haldið hefur verið á
vegum FlH. Námskeiðið hefur
verið afar vel sótt. Yngsti nem-
andinn er 12 ára, en sá elzti
kominn vel á sextugsaldurinn.
Grauso er mjög ánægður með
frammistöðu nemenda sinna, og
hefur látið þess getið, að kunnátta
íslenzkra slagverksleikara sé
mjög til fyrirmyndar. Námskeið
þetta er eitt af mörgum þjálfunar-
námskeiðum, sem FlH hefur á
dagskrá fyrir félagsmenn sína.
(FráFlH)
— Svavar
Framhald af bls. 26
sagði Svavar: Ég vona að í þessu samstarfi verði
annar háttur á en oft áður, þegar ólíkir flokkar
vinna saman. Það er svo mikill vandi fyrir höndum
og svo mikið f húfi að vel takist til, að þetta
samstarf verður að bera árangur vegna þjóðar-
heildarinnar. Það er ekki sízt unga fólkið, sem á
allt sitt undir þvf, að það takist að leysa aðsteðjandi
efnahagsvanda, tryggja rekstrargrundvöll atvinnu-
veganna og atvinnuöryggi almennings, sem og að
hefta verðbólguflóðið, sem harðast bitnar á þeim
yngstu og þeim elztu.
— Stella
Framhald af bls. 26
meiri gaum og nýta skólann betur til að byggja upp
starfskrafta úr eigin röðum.
Aðspurð um núverandi stjórnarsamstarf sagði
Stella, að hún hefði í fyrstu verið eilítið tortryggin
á samstarf við Framsóknarflokkinn. Hins vegar
vonaði hún að vel tækist til. Aðsteðjandi vandi
kallaði vissulega á samstarf stjórnmálaflokka, þótt
ólíkir væru um margt. Hinsvegar væri framtíðar-
verkefnið að vinna Sjálfstæðisflokknum hreinan
meirihluta á Alþingi Islendinga.
— Þorkell
Framhald af bls. 26
okkur og sæmilega. Eg er ánægður með árangurinn
af námskeiðinu.
Aðspurður um núverandi stjórnarsamstarf sagði
Þorkell, að samstarf landsbyggðarflokkanna félli
sér vel sem bónda og strjálbýlismanni, og hann
vonaði heilshugar, að stjórninni tækist að fleyta
þjóðinni yfir erfiðleika náinnar framtíðar til festu
og farsældar í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar.
— Þorleifur
Framhald af bls. 26
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Þeir hafa allir lagt
hönd að verki, sem ég er sannfærður um að á eftir
að bera ríkulegan ávöxt.
Aðspurður um afstöðuna til núverandi stjórnar-
samstarfs sagði Þorleifur, að hann væri mjög
ánægður með ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar, og
miðað við þann mikla vanda, sem við væri að glíma,
hefði verið nauðsynlegt að við tæki ríkisstjórn með
sterkan þing- og þjóðarmeirihluta á bak við sig, og
þetta stjórnarsamstarf hefði verið eini möguleik-
inní því efni.
Skrifstofa okkar
verður lokuð
í dag frá hádegi vegna jarðarfarar Björns Ólafssonar
fyrrv. ráðherra.
ELDING TRADING COMPANY h/f
Umferðarslys um helgina