Morgunblaðið - 22.10.1974, Qupperneq 40
2WoT0imMaí>ií>
RucivsincnR
^-»22480
26.0KT.
laugardagur
Merkjasala
til styrktar
geösjúkum
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1974
Háhymingsbúrið verð-
ur í togi — Búið að
ríða háhymingsnótina
Filippus hertogi frá Bretlandi kom við í Reykjavík i gær á
heimferð sinni frá Ameríku. Hann kom hér við á vesturleið fyrir
viku og stanzaði þá stuttan tima á Reykjavíkurflugvelli.
1 gær staldraði hann við í hálfa klukkustund og tók Einar
Ágústsson utanrikisráðherra á móti honum og kaffi þá hertoginn I
skrifstofu Agnars Kofoed-Hansen flugmálastjóra.
Filippus flaug vél sinni sjálfur hingað, en hann flýgur mikið. Á
meðfylgjandi mynd er hertoginn t.v. með flugmálastjóra á leið I
kaffisopann.
Kanna ódýrari
leiðir fyrir
fréttir NTB
„NTB VERÐUR ekki beðin um að
hefja sendingar frétta hingað til
Islands fyrr en kannað hefur
verið með hvaða hætti ódýrast er
að fá þessa þjónustu fyrir landið,“
sagði Höskuldur Jónsson í fjár-
málaráðuneytinu í gær þegar
Morgunblaðið leitaði frétta af
gangi þessara mála. „Við höfum
greitt upp allt sem við skulduðum
til lokunardags," hélt Höskuldur
áfram, „en það var tímabilið 1.
júní — 15. okt. og gjaldið á því
tímabili var liðlega 700 þús. kr.
Þetta er því dýr þjónusta, en Póst-
ur og sfmi kannar nú hvort hægt
sé að fá fréttir sendar á streng og
á hvaða verði. Ætti það ekki að
takalangan tíma.“
Kjarvalsmyndirnar:
Matsmenn
kvaddir til
MORGUNBLAÐIÐ hafði í
gær samband við Knút
Hallsson í menntamála-
ráðuneytinu og spurði
hvað liði ákvörðunum um
Kjarvalsmyndirnar i
vinnustofu meistarans við
Austurstræti.
Knútur sagði að mennta-
málaráðuneytið hefði beðið
borgardómara að kveðja til
matsmenn, sem eiga að
skera úr um eignarrétt á
myndunum.
40 millj. kr. bryggja
fyrir Akraborgina
inni einni. Við bryggjuna yrði
einnig aðstaða fyrir smábáta.
Þegar þessum framkvæmdum á
Akranesi verður lokið, mun öll
Framhald á bls. 39
Viðhorf
Þjóðverja
könnuð
I DAG fór íslenzk sendinefnd
utan til Bonn í Þýzkalandi til við-
ræðna við Þjóðverja um land-
helgisdeiluna. Morgunblaðið
1 hafði i gærkvöldi tal af Einari
Ágústssyni utannkisráðherra og
innti frétta af væntanlegum við-
ræðum: „Við sendum ekki neinar
tillögur," sagði utannkisráðherra,
„því fyrst og fremst er verið að
kanna viðhorfin hjá Þjóðverjum.
Við höfum ekkert rætt við þá
síðan í maí, en verksmiðjutogar-
arnir og stærri togararnir eru
ennþá aðalmálið hjá okkur. Við
vitum ekki þeirra viðhorf, en í
sendinefnd okkar eru Hans G.
Andersen, Már Elísson, Jón
Arnalds og Kristján Ragnarsson."
„VIÐ ERUM nú að klára að útbúa
veiðarfærið sem við munum sfðan
reyna að veiða háhyrninga f,“
sagði Konráð Júlfusson skipstjóri
á Sigurvon AK 56 þegar við
hringdum f hann til Stykkishólms
f gær. „Netið er búið til úr þorsk-
trollsefni og er hringnót, sem er
37 m á dýpt og 130 m á lengd. Við
áætlum að fara til Eyja f vikunni,
en þar munum við stoppa f 1—2
daga til þess að útbúa búr fyrir
væntanlegan afla. Búrið, sem við
munum draga á eftir skipinu,
munum við búa úr 20 tómum olfu-
tunnum, plönkum og netum, en
það verður sett þannig saman að
innanmálið verður 15x15 metrar.
Það verður spennandi að prófa
þetta, en hins vegar höfum við
reknetin með, svo allt er klárt f
sfldina einnig ef færi gefst.“
Konráð sagði að ef þeir veiddu
háhyrning yrðu þeir að koma
honum f búrið við skipshlið og
draga sfðan búrið til hafnar.
Sfðan yrði væntanlega að flytja
háhyrninginn flugleiðis til fram-
andi landa.
Skothvellir
dundu yfir
Laugarvatni
„VIÐ HÖFUM rætt hér um al-
menna áskorun til rjúpnaskytta
að fara hvergi um landsvæði án
heimildar og þá sérstaklega hérna
f kring um Laugarvatn", sagði
Framhald á bls. 39
Wm ■' •
Þeir voru með vel hlaðið á bflnum heyflutningamennirnir skammt frá
Breiðholti f gær, en eitthvað gekk úrskeiðis f stabbanum eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd.
UM ÞESSAR mundir er unnið að
gerð viðlegukants fyrir Akraborg-
ina á Akranesi. Verk þetta var
hafið sfðla sumars, og mun vart
Ijúka fyrr en í vor. Enn er ekki
Ijóst, hve mikið verk þetta muni
kosta, en gert er ráð fyrir 40—50
millj. kr. samkvæmt núverandi
áætlun.
Magnús Oddsson, nýráðinn bæj-
arstjóri á Akranesi sagði í samtali
við Morgunblaðiðígæraðnú væri1
unnið að sprengingum í höfninni.
F’yrst hefði verið ekið uppfyllingu
í hluta af höfninni, en er þvf
hefði lokið hefði verið borað nið-
ur f gegnum uppfyllinguna niður
í klöpp, sem er undir henni.
Nokkur hundruð slíkar holur
hefðu þurft að bora og sfðan væri
klöppin sprengd og því næst er
uppfyllingarefninu og sprengdu
klöppinni mokað burtu.
Þá sagði Magnús, að núverandi
áætlun gerði ráð fyrir, að verkið
kostaði góðar 40 millj. kr. En
þessi aðstaða kæmi, sem betur
fer, fleirum til góða, en Akraborg-
„Sœmileg vísbending um
gott veður nœstu 3 árin "
— segir Páll Bergþórsson veðurfrœðingur
LOFTSLAG á Islandi í 11 aldir
hét fyrirlestur, sem Páll Berg-
þórsson veðurfræðingur flutti á
Sögusýningunni á Kjarvals-
stöðum sl. sunnudag. Þar bend-
ir hann á að veðurfarsbreyting-
ar á Islandi og Spitzbergen séu
um margt eins, nema að þær
komi fram á tslandi þremur
árum seinna. Við höfðum sam-
band við Pál f gær og spurðum
hann hvernig veðri hann spáði
á Islandi næstu þrjú ár miðað
við þessa kenningu.
„Ég spái sæmilegu veðri
næstu þrjú ár,“ svaraði hann,
„þolanlegu, þótt þetta kunni
auðvitað alltaf að breytast, en
sfðustu þrjú ár á Spitzbergen
voru nokkuð dærnigerð fyrir
hitatfmabilið 1931—1960. Það
er þvf sæmileg vfsbending um
gott veður.
Á Spitzbergen var byrjað að
mæla veður fyrir aldamót, en
skýringuna á skyldleika með
hitabreytingum hér og þar tel
ég vera að hinir norðlægu
straumar sem koma frá Spitz-
bergensvæðinu eru 1—4 ár á
leiðinni til Islands, en vega-
lengdin er um 2000 km.“
Fyrsti rækjuaflinn
frá K0LBE3NSEY
Tveir bátar á rækju við Grímsey
Tveir bátar, Þorsteinn Vald. frá
Hrfsey og Sæþór frá Dalvík, hafa
að undanförnu stundað rækju-
veiðar við Grímsey með góðum
árangri að sögn Kristjáns Jóns-
sonar hjá K. Jónsson á Akureyri í
gær. „Dalvíkurbáturinn hefur nú
verið að reyna rækjuveiðar við
Grímsey annað slagið undanfarin
tvö ár, en nú hefur verið veitt þar
síðan í ágúst,“ sagði Kristján, „og
rækjan þarna er mjög góð og stór.
Veðráttan vill hins vegar hafa
mikil áhrif á veiðarnar þarna úti
á opnu hafi og tíðin hefur verið
fremur slæm upp á síðkastið.
Þegar veður hefur gefið er afli
hins vegar ágætur. Þá var Sæþór
að koma með ljómandi góðan
afla, sem fékkst við Kolbeinsey,
en þetta er fyrsti rækjubáturinn,
sem veiðir þar sfðan rannsóknar-
skipið Hafþór fann góð rækju-
mið þar að sögn skipsmanna.
Annars vinnum við stöðugt í
niðursuðu hér, á loðnu fyrir
Japansmarkað, kavíar búum við
til og eitt og annað, en nú vinna
hér um 80 manns að staðaldri og
við erum alltaf í gangr.“