Morgunblaðið - 06.12.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1974
5
Vönduð biblíuhandbók komin út
tlT er komin hjá Erni og Örlygi
bókin Biblluhandbókin þin, f þýð-
ingu séra Magnúsar Guðjóns-
sonar, en biskupinn yfir lslandi,
herra Sigurbjörn Einarsson ritar
formála. Bók þessi er sænsk að
uppruna, en verið er að þýða hana
yfir á fjölmörg tungumál, þvf hún
hefur vakið mikla athygfi bæði
hjá bibfíufróðum og þeim sem
lftið hafa kynnt sér hina helgu
bók.
Bókin er helguð minningu séra
Hallgríms Péturssonar f tilefni af
300. ártfð hans. Hluti af söluhagn-
aði rennur til byggingar Hall-
grfmskirkju f Reykjavfk.
Bókin er 308 blaðsíður og
skreytt fjölda mynda. í undirtitli
bókarinnar segir að hún skýri í
máli og myndum heiti og hugtök í
Heilagri ritningu.
1 formálsorðum sínum segir
séra Sigurbjörn Einarsson biskup
m.a.: Sú bók, sem hér kemur út á
íslenzku, mun geta bætt verulega
úr tilfinnanlegri vöntun á
hjálpargögnum við lestur Heil-
agrar ritningar. Sá er og til-
gangurinn með útgáfu hennar.
Hún hefur að geyma skrá um
mikilvæg heiti og hugtök með
upplýsingum og skýringum.
Efninu er svo fyrir komið, að auð-
velt er að finna greið svör við
mörgu því, sem lesandinn
staldrar við. Myndirnar eru mjög
til glöggvunar og lffgunar á
efninu.
Myndirnar eru mjög til glöggv-
unar og lífgunar á efninu.
Ætla má, að öllum fróðleiksfús-
um mönnum þyki fengur í þessari
handhægu bók og mörgum þeim,
sem nota Biblíuna að staðaldri,
mun verða mikið gagn að þeirri
leiðsögn, sem hér er í boði. Bókin
er fyrst og fremst samin til afnota
við kristinfræðinám i barnaskól-
um og er prýðilega til þess fallin.
En henni er einnig ætlað að leið-
beina hverjum þeim, sem vili
fræðast um Biblíuna, það sögu-
svið, sem umlykur hana, þann
boðskap, sem hún flytur. Ég
þakka útgefanda og þýðanda og
vona, að þessi bók fái verðskuld-
aðar viðtökur og færi mörgum
gleði og blessun.
Þýðandinn, séra Magnús Guð-
jónsson, segir í eftirmála: Megin-
efni bókarinnar skiptist i rúma 50
þætti, sem gerð eru nákvæm skil.
Þá eru í henni meira en 1200
uppsláttarorð í stafrófsröð, sem
vísa til annarra orða, svo að gildi
bókarinnar verður enn meira.
Auk þess eru orðaskýringar, lit-
myndir og svart-hvítar myndir,
kort, línurit, ártöl, fjölda margir
ritningarstaðir og margt annað,
sem að gagni kemur við lestur
Biblíunnar. Margur spyr f dag:
Hver er hamingjuleiðin og hvar
er til hennar leita? Hún er nær
en nokkur hyggur. „Taktu og
lestu“, var eitt sinn sagt við niður-
brotinn ungan mann. Hann
hlýddi, tók Bibliuna og las, og
varð siðan mikill spekingur.
Taktu og lestu Biblíuna, þar
finnur þú hamingjuleiðina, les-
andi góður. Lestur hennar verður
þér auðveldari og gagnlegri, ef þú
F'rá vinstri: Örlygur Hálfdánarson, séra Magnús Guðjónsson, biskup-
inn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson og Hermann Þorsteins-
son. Ljósmynd Mbl. Ol.K.M.
hefur Biblfuhandbókina þina við
höndina. Hún er vissulega upp-
sprettulind mikillar visku og
speki og vel þess virði, að eftir
henni sé tekið.
Ég lýk þessum eftirmála með
hvatningarorðum spámannsins:
„Ó, land, land, land, heyr orð
Drottins".
Setning, prentun og band «
bókarinnar er unnið hjá Prent-
smiðjunni Eddu hf. Hilmar
Helgason gerði káputeikningu.
tökum upp
nýj ar vörur
í allar deildir
daglega
til jóla.
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSiNS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20 A